Morgunblaðið - 18.06.2012, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 18.06.2012, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012 Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Útiflísar á frábæru verði Gæði og glæsileiki á góðu verði Eigum á lager yfir 1.000m2 á sérverði (4 litir) 3. flokkur. ATH fleiri litir væntanlegir Af hverju lenda flísar í 3. flokki? Flísarnar hugsanlega hornskakkar. – Eitthvað að yfirborði flísanna. –Litatónar etv. ekki alveg réttir. – Kannski aðeins kvarnað úr hornum. – Afgangar af framleiðslu frá 1. og 2. flokk. ATH! 3. flokkur er aðeins seldur í heilum pakkningum og ekki er hægt að skila afgöngum. 1.790 kr. fm 2 Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Úrval - gæði - þjónusta Allt fyrir gluggana á einum stað Mælum, sérsmíðum og setjum upp „Ég reikna með að það verði sama óreiðan og hingað til. Málþófið hélt áfram á laugardag þar til ræðutím- inn var á enda. Það virðast ekki vera nein teikn á lofti um að meiri- hlutinn ætli að taka af skarið og af- greiða mál samkvæmt 64. grein þingskapa,“ segir Þór Saari, þing- maður Hreyfingar, um stöðuna. „Það hefur verið talað um það í margar vikur að gera það en ekkert orðið úr því. Það var talað um það á laugardag að þingið myndi starfa á mánu- dag og þriðju- dag og svo áfram í júlí. Það er erfitt að festa hönd á því hvað ger- ist. Það er ekki ólíklegt að ef veiðigjaldið fer ekki í gegn á næstu dögum þá verði júl- íþing. Ég lít þannig á eftir að hafa setið ótal fundi með þingflokks- formönnum og formönnum flokk- anna síðustu daga að þingið sé ekki starfhæft. Ég held að þingið sé komið á þann tímapunkt á þessu kjörtímabili að það væri skyn- samlegt að boða til kosninga sem fyrst. Þetta gengur ekki. Hvernig ætli það verði á haustþingi ef þing- ið er búið að vera meira og minna óstarfhæft síðan fyrir páska?“ Kominn tími á kosningar ÞINGMAÐUR HREYFINGARINNAR SEGIR ÞINGIÐ KOMIÐ Í ÖNGSTRÆTI Þór Saari Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Mér finnst það mjög hæpið og eigin- lega ómögulegt að þingið starfi áfram svo nærri kosningum. Við erum kom- in miklu nær forsetakosningunum en talið var forsvaranlegt. Það var rætt um það í þinginu á sínum tíma að við mættum helst ekki fara fram yfir 7. júní vegna þess að þá hæfist kosn- ingabaráttan vegna forsetakosning- anna formlega með umfjöllun í fjöl- miðlum. Nú er kominn 17. júní. Hver dagur sem líður gerir þetta því enn vandræðalegra fyrir þingið og stjórn- armeirihlutann,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, um stöðuna á þingi. Haldið áfram endalaust „Mér finnst eðlilegra að það verði gert hlé á þingfundum. Ástæðan fyrir því að ríkisstjórnir hafa í gegnum tíð- ina samið við stjórnarandstöðu um þinglok hefur verið sú að menn hafa ekki talið viðeigandi að framlengja þingið endalaust til þess að koma mál- um í gegn. Nú er hins vegar uppi sú óvenju- lega staða að þingið er framlengt endalaust til að ná fram málum; mál- um sem komu inn í þingið löngu eftir að frestur var liðinn og hafa fengið mjög neikvæða gagnrýni frá sérfræð- ingum og fulltrúum sveitarfélaga um allt land. Við höfum farið fram á það og talið það skyldu okkar sem stjórnar- andstöðu að það yrði þá farið yfir mál- in eins og þau standa nú af sérfræð- ingum til þess að meta hvort sjávarútvegsfrumvörpin muni kosta þúsundir starfa eins og rök voru færð fyrir í upp- hafi. Við fram- sóknarmenn telj- um það mjög óábyrgt af þinginu að sam- þykkja mál sem gætu sett undir- stöðuatvinnuveg og efnahag lands- ins í uppnám.“ – Hvað með 64. greinina, þann möguleika að stöðva þingræður til að koma málum í atkvæðagreiðslu? Rætt um „kjarnorkuákvæðið“ „Mér finnst ólíklegt að ríkisstjórn- in muni beita því sem í daglegu tali er kallað kjarnorkuákvæðið og hefur ekki verið beitt, að mér skilst, síðan 1949 þegar það urðu óeirðir á Austur- velli vegna aðildar að Nató. Það væri býsna gróft að beita því ákvæði um mál sem er vanbúið, er ekki búið að fara yfir af sérfræðingum og er framhald máls sem hefur hlotið einróma neikvæða gagnrýni. Að beita þessari aðferð til að knýja þetta mál í gegn væri því mjög gróft. En ég geri ráð fyrir því að við höldum áfram að funda á morgun [í dag] og sjáum hvort hægt verði að ná niðurstöðu,“ segir Sigmundur Davíð og bætir því við að honum þyki eðlilegt að þing komi aftur saman í ágúst. „Það væri mjög erfitt gagnvart starfsmönnum þingsins að halda starfsfólkinu í júlí andstætt því sem þingsköp gera ráð fyrir. Mér þætti því eðlilegra að þingið kæmi saman aftur um miðjan ágúst,“ segir Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson. Morgunblaðið/Kristinn Þingsalurinn Þingið átti að ljúka störfum 31. maí sl. Það starfar enn. Ólíðandi að þingið rekist á kosningar  Formaður Framsóknar vill þinghlé Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.