Morgunblaðið - 18.06.2012, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012
Hádegisverðartilboð
Tvíréttað í hádegi frá 1.890,-
Fljót og góð þjónusta
Veitingastaður / verslun
Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is
Könnun Samtaka atvinnulífsins og
Seðlabanka Íslands sýnir að stjórn-
endur 400 stærstu fyrirtækja lands-
ins telja horfur framundan neikvæð-
ar.
Samkvæmt könnuninni telur mikill
meirihluti stjórnenda aðstæður í at-
vinnulífinu slæmar og fer þeim
stjórnendum fækkandi sem búast við
að aðstæður batni á næstunni.
Um er að ræða ársfjórðungslega
könnun og fór mælingin fram um
mánaðamótin maí-júní. Könnunin var
unnin af Capacent og náði til 406
stærstu fyrirtækja landsins m.v.
heildarlaunagreiðslur. Svarhlutfall
var 55%.
Að mati 63% svarenda eru aðstæð-
ur í atvinnulífinu slæmar og er það
óbreytt hlutfall frá mælingunni sem
fram fór í mars. Þriðjungur svarenda
taldi aðstæður hvorki góðar né slæm-
ar og 3% svöruðu að aðstæður væru
góðar.
Hljóðið virðist ögn þyngra í stjórn-
endum fyrirtækja á landsbyggðinni;
þar telja þrír af hverjum fjórum
stjórnendum aðstæður slæmar, en
þrír af hverjum fimm á höfuðborgar-
svæðinu.
Verst í sjávarútvegi
Svör voru m.a. flokkuð eftir at-
vinnugreinum en í öllum geirum at-
vinnulífsins er meirihluti stjórnenda á
þeirri skoðun að aðstæður séu slæm-
ar. Viðhorfin eru hvað jákvæðust í
fjármálaþjónustu, ýmissi sérhæfðri
þjónustu og iðnaði þar sem 55%
stjórnenda telja aðstæður slæmar. Í
verslun, samgöngum og ferðaþjón-
ustu svöruðu 57-65% stjórnanda á
neikvæðan hátt.
Horfurnar virðast dekkstar í
sjávarútvegi, þar sem 90% stjórnenda
segja aðstæður slæmar, og í bygging-
ariðnaði þar sem hlutfallið er 80%.
Könnun SÍ og Seðlabankans mælir
einnig svokallaða vísitölu efnahags-
lífsins, sem á að leggja mat á hvort
stjórnendur telji að aðstæður muni
batna á næstu sex mánuðum. Mat
þeirra á hvernig ástandið verður eftir
sex mánuði er nú lakara en í síðustu
tveimur könnunum en þó virðast
væntingar heldur jákvæðari en fyrir
ári.
Vísitala efnahagslífsins mældist
hæst í lok árs árið 2003 en hefur
mælst lægst í október 2005, desember
2007 og maí 2009.
Í könnuninni kemur einnig fram að
86% stjórnenda búa við nægt fram-
boð af starfsfólki. Á sama tíma skortir
14% fyrirtækja starfsfólk, en var 10-
12% í síðustu tveimur könnunum.
Virðist enginn munur á landsbyggð
og höfuðborgarsvæði hvað varðar
framboð og eftirspurn eftir starfs-
fólki.
Þrír af hverjum fimm stjórnendum
búast við óbreyttum starfsmanna-
fjölda næsta hálfa árið. Fimmtungur
býst við að fækka starfsmönnum og
fimmtungur reiknar með að bæta við
starfsfólki.
Búast má við fjölgun í sérhæfðri
þjónustu, iðnaði, byggingarstarfsemi,
samgöngugeira, ferðaþjónustu og
flutningum en fækkun í fjármála-
starfsemi, sjávarútvegi og verslun, að
því er segir í tilkynningu.
ai@mbl.is
Íslenskir stjórnendur
alls ekki bjartsýnir
Skammtímahorfur versna milli ársfjórðunga Búast við
fækkun starfsmanna í fjármálageira, sjávarútvegi og verslun
Morgunblaðið/Golli
Krónur Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækja landsins eru allt annað en bjart-
sýnir á horfurnar framundan samkvæmt könnun SA og Seðlabankans.
Fyrrverandi stjórnandi farsíma-
fyrirtækisins Everything Everyw-
here, Tom Alexander, hefur fengið
til liðs við sig fjárfestingafyrirtæk-
in Kohlberg Kravis Roberts
(KKR) og Apax með það að mark-
miði að kaupa Everything Every-
where.
KKR á m.a. fyrir lyfjaverslana-
keðjuna Boots og gæludýraversl-
anakeðjuna Pets at Home. Eigna-
safn Apax hefur m.a. innihaldið
tískufyrirtækið Tommy Hilfiger
Corporation og ríflega 80% hlut í
raftækjafyrirtækinu Royal Philips
Electronics.
Everything Everywhere varð til
árið 2010 með samruna fjarskipta-
risanna Orange og T-Mobile og er
stærsti seljandi farsímaþjónustu í
Bretlandi. Er áætlað að virði fyr-
irtækisins sé hátt í 10 milljarðar
punda, um 1.900 milljarðar króna.
Óformlegar þreifingar
Bloomberg segir að fyrir nokkr-
um vikum hafi Tom Alexander átt
óformlega fundi með forsvars-
mönnum France Telecom, móður-
fyrirtækis Orange.
Sunday Times segir Alexander,
KKR og Apax hafa náð að tryggja
nokkuð djarflegt 8 milljarða punda
tilboð í reksturinn, sem jafngildir
tæpum 1.300 milljörðum króna.
Bloomberg hefur eftir heimild-
armönnum að Deutsche Telekom,
eigandi T-Mobile, sé í söluhugleið-
ingum. Fyrirtækið vanti lausafé
eftir að hafa mistekist að selja
starfsemi T-Mobile í Bandaríkjun-
um. Ku Deutsche Telekom vera á
frumstigum þess að athuga hvort
skynsamlegt sé að selja helmings-
hlutinn í Everything Everywhere.
Samruni Orange og T-Mobile á
sínum tíma var m.a. hugsaður til
að spara um 4 milljarða evra í sím-
kerfis-, markaðs- og stjórnunar-
kostnaði til ársins 2014. Tom Alex-
ander kvaddi fyrirtækið á síðasta
ári, að eigin sögn vegna persónu-
legra ástæðna og til að sinna öðr-
um hugðarefnum.
Bloomberg segir þetta útspil
koma á spennandi tíma en farsíma-
þjónustuveitendur í Bretlandi eru
að setja sig í stellingar fyrir mik-
inn slag þegar fjórða kynslóð þráð-
lausra gagnaflutninga verður tekin
í gagnið.
ai@mbl.is
AFP
Eftirspurn Það kann að gerast að eigendaskipti verði á stærsta seljanda far-
símaþjónustu í Bretlandi. Frá hátíðahöldum í Lundúnum fyrr í mánuðinum.
Risaleikflétta á
breska farsíma-
markaðinum
Alþjóðleg samtök fjármálafyrir-
tækja, Institute of International
Finance (IIF), segja varasjóði
evrusvæðisins ekki ráða við frekari
björgunaraðgerðir, komi til þess að
stórt aðildarríki þurfi á aðstoð að
halda.
Wall Street Journal greinir frá
því að IIF hafi sent frá sér skýrslu
á sunnudag þar sem fram kemur
að í kjölfar allt að 100 milljarða
evra björgunarpakka handa Spáni
hafi björgunarsjóður evrusvæðis-
ins ekki úr nema 250 milljörðum
evra að spila. Þessir sjóðir nægi til
að hjálpa hagkerfi eins af smærri
aðildarríkjunum en dugi ekki til ef
létta þarf undir með einhverju af
stærri aðildarríkjunum.
Hlaðið undir eldvegg AGS?
Á sama tíma berast fréttir frá
Mexíkó þar sem leiðtogar G20-
ríkjanna munu funda í dag og á
morgun.
Á fundi með blaðamönnum á
laugardag sagði Fepile Calderon,
forseti Mexíkó og gestgjafi leið-
togafundarins, að von væri á að þar
myndi nást niðurstaða um að efla
enn frekar svokallaðan „eldvegg“
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að því
er Bloomberg greinir frá.
Eldveggurinn er björgunarsjóð-
ur sem stofnað var til í apríl og
inniheldur yfir 430 milljarða dala,
til að grípa inn í atburðarásina
þegar efnahagskreppa er í uppsigl-
ingu.
ai@mbl.is
Evrusvæðið ræð-
ur ekki við meira
Von á að G20-ríkin efli stuðning við
neyðarsjóð AGS á fundi í Mexíkó
AFP
Kátur Mario Draghi, forseti Seðla-
banka Evrópu, var glaðbeittur á
blaðamannafundi fyrr í mán-
uðinum. Evran má varla við meiru.