Morgunblaðið - 18.06.2012, Síða 17

Morgunblaðið - 18.06.2012, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2012 Borgarlistamaður Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri (t.h.) skartaði þjóðbúningi í Höfða í gær þegar tilkynnt var að hún væri borgarlistamaður Reykjavíkur í ár. Hamrahlíðarkórinn söng. Ómar Í umræðum um frum- vörp ráðherra til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld hafa margir orðið til þess að gera lít- ið úr varnaðarorðum þeirra sem til sjáv- arútvegsins þekkja með því að yppta öxlum og segja sem svo að fisk- urinn verði áfram veiddur. Þannig er gef- ið í skyn að allt verði áfram í lagi fyrst fiskurinn verði áfram veiddur og að engu skipti hver veiði fiskinn, hvernig og við hvaða aðstæður. Því miður er veruleikinn allur annar. Rétt er að hafa í huga að ekki vant- aði upp á að fiskurinn væri veiddur árið 1981, en það ár komu 460 þúsund tonn af þorski á land af íslenskum skipum. Engu að síður voru efnahags- aðstæður og afkoma veiðanna með þeim hætti að útvegsmenn treystu sér ekki til að halda veiðum áfram við óbreytt skilyrði og kölluðu flotann í land. Ekki vantaði heldur upp á að fisk- urinn væri veiddur í lok níunda ára- tugar síðustu aldar, en þá var þorsk- aflinn hátt í 400 þúsund tonn ár eftir ár. Engu að síður var afkoma sjáv- arútvegsins svo slæm á þessum tíma að stofna þurfti opinbera sjóði á kostnað skattgreiðenda til að styrkja áframhald fiskveiðanna. Það var ein- mitt til þess að komast út úr þessum vanda sem núverandi stjórnkerfi fisk- veiða með aflahlutdeild og frjálsu framsali var komið á. Hvernig verða verðmætin til? Verðmæti í sjávarútvegi verða til með skynsamlegri og hagkvæmri nýt- ingu auðlindarinnar. Í þessu felst að gætt er hófs í sókn í fiskistofna þann- ig að þeir haldist í sem hagkvæmastri stærð og hafi burði til að endurnýja sig. Með þessu móti má fá meiri og jafnari afla en ella ár eftir ár og með minni tilkostn- aði á hvert tonn af afla, enda er fljótlegra og því kostnaðarminna að sækja tiltekið aflamagn úr stórum stofni en litlum. Jafnframt þarf að gæta þess að aflinn sé ekki sótt- ur með of stórum fiski- skipaflota svo að aflaverð- mætinu sé ekki sóað í að kaupa og reka fiskiskip sem engin þörf er fyrir. En ekki er nóg að veiða fiskinn með skynsamlegum og hag- kvæmum hætti—fleira þarf að koma til. Stór hluti þeirra verðmæta sem ís- lenskur sjávarútvegur skapar verður til vegna þess að fyrirkomulag fisk- veiðistjórnunar gerir fyrirtækjunum kleift að sinna þörfum erlendra kaup- enda afurðanna á þann hátt sem best verður á kosið. Þannig geta stjórn- endur sjávarútvegsfyrirtækja sam- ræmt skipulag veiðanna og vinnslu aflans þörfum kaupendanna. Gerðir eru fyrirfram samningar um afhend- ingu tiltekins magns afurða af hverri fisktegund í hverri viku ársins í þeirri mynd og í þeim gæðum sem uppfyllir þær kröfur sem hver og einn kaup- andi gerir. Allir þessir þættir, og margir fleiri, gera það að verkum að íslenskur sjáv- arútvegur hefur náð sterkri stöðu til að skapa þjóðarbúinu mikil verðmæti og miklar gjaldeyristekjur í krafti þess skipulags sem sjávarútvegurinn býr við vegna gildandi fyrirkomulags við stjórn fiskveiða. Hverju myndu frumvörpin breyta? Frumvörpin sem nú eru til með- ferðar Alþingis myndu grafa alvar- lega undan öllum þeim þáttum sem verðmætasköpun sjávarútvegsins byggist á. Of hátt og illa ígrundað veiðigjald myndi gera greininni ókleift að fjárfesta í skipum og búnaði í þeim mæli sem þarf til að hún haldi stöðu sinni á erlendum mörkuðum. Leiga ríkisins á aflaheimildum, í stað þess að byggja áfram á aflahlutdeild, myndi draga úr hvata til góðrar um- gengni um auðlindina og auka brott- kast og aðra sóun. Flutningur veiði- heimilda til annarra en þeirra sem keypt hafa aflahlutdeild myndi eyði- leggja þá hagræðingu sem náðst hef- ur við veiðarnar, auka heildar til- kostnað við fiskveiðar og valda þannig sóun verðmæta auk þess að auka þrýsting á að heimila of mikinn afla. Óvissa um aflaheimildastöðu myndi gera fyrirtækjunum erfitt fyrir um að skipuleggja veiðarnar og gera samn- inga um afhendingu afurða og þannig grafa undan því verðmæta trausti sem byggt hefur verið upp um áratugi við mikilvægustu kaupendurna. Svona mætti lengi telja. Stóra spurningin Ef frumvörpin verða að lögum verður fiskurinn eflaust áfram veidd- ur. Við þurfum þó öll að spyrja okkur hvort við viljum að fiskurinn verði áfram veiddur með þeim ábatasama hætti fyrir þjóðarbúið sem gert er í dag eða með þeim óhagkvæma hætti sem gert var fyrir meira en 20 árum og frumvörpin myndu leiða af sér. Valið ætti ekki að vera erfitt. Nú þurfa stjórnvöld að taka hönd- um saman við þá sem starfa í atvinnu- greininni og nýta sér þekkingu þeirra við að leiða deilur um stjórn fiskveiða til lykta. Nauðsynlegt er að tryggja að fiskurinn verði áfram veiddur á ábatasaman hátt fyrir þjóðarbúið. Fiskurinn verður áfram veiddur, en … Eftir Ásgeir Gunnarsson » Þannig er gefið í skyn að allt verði áfram í lagi fyrst fiskurinn verður áfram veiddur og að engu skipti hver veiðir fiskinn … Ásgeir Gunnarsson Höfundur er útgerðarstjóri Skinneyjar-Þinganess hf. Myndum við loka Orðabók Háskólans (sem nú heitir Orð- fræðisvið Stofn- unar Árna Magnússonar) eða Landmæl- ingum Íslands? Ekki út af neinu sérstöku, bara svona af því að við skiljum ekki hvað er gert á þessum stofnunum og finnst þessvegna að það sé alveg eins hægt að sleppa því? Ég held ekki, eða ég vona að minnsta kosti ekki en nú liggur hinsvegar fyrir alþingi frumvarp mennta- og menningar- málaráðherra til laga um menn- ingarminjar sem skrúfar fyrir alla möguleika á að hægt sé að halda áfram skipulegri kortlagn- ingu fornleifa á Íslandi. Öfugt við orðasöfnun og landmælingar hef- ur íslenska ríkið aldrei lagt forn- leifaskráningu annað lið en að skylda sveitarfélög (og eftir at- vikum aðra skipulagsaðila) til að láta framkvæma hana í sambandi við skipulagsgerð. Lög um það hafa verið í gildi síðan 1989 og þó að þau séu veik og alls ekki ótví- ræð, og þó að margir hafi komist upp með að fara ekki eftir þeim, þá hefur samt mikið áunnist. Af um 120 þúsund fornleifum sem áætlað er að séu í landinu eru í gagngrunni Fornleifastofnunar nú upplýsingar um 95.000 staði og þar af hafa rúmlega 30.000 verið skráðir á vettvangi. Það er vettvangsskráningin sem er dýr- asti en jafnframt mikilvægasti hluti þessa verks en ef frum- varpið verður óbreytt að lögum mun það starf daga uppi. Það má deila um réttmæti þess að hafa velt þessari byrði yfir á sveitarfélögin og hún leggst mjög misþungt á þau. Þau hafa hins- vegar mörg hver tekið á þessu verkefni af miklum metnaði enda er víða skilningur á gildi fornleifa, ekki að- eins fyrir íslenska menningu, heldur líka fyrir skólastarf og at- vinnulífið, einkum uppbyggingu ferðaþjónustu. Slíkan skilning er ekki að finna hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Það hefur aldrei sýnt að það hafi neinn vilja til að greiða götu fornleifaskráningar, efla hana (t.d. með því að jafna aðstöðu sveitarfélaga til að skrá) eða tryggja að þær upplýsingar sem þó er safnað séu gerðar aðgengi- legar almenningi. Nú tekur hins- vegar steininn úr ef fjarlægja á einu lagastoðina sem fyrir þessu verkefni er. Metnaðarleysi ríkisvaldsins í þessum málaflokki er gríðarlegt og yfirþyrmandi. Mér sýnist að það sé borin von að koma vitinu fyrir framkvæmdavaldið en sár- bæni alþingi um að koma í veg fyrir þetta slys. Menningarslys í boði menning- arráðuneytis Eftir Orra Vésteinsson Orri Vésteinsson » Alþingi getur af- stýrt því að forn- leifaskráning leggist af á Íslandi. Höfundur er prófessor í fornleifafræði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.