Morgunblaðið - 25.06.2012, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.06.2012, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012 Borgarfjörður - Minnisvarði um Gunnar Bjarnason, hrossarækt- arráðunaut og rithöfund, var afhjúp- aður við hátíðlega athöfn á Hvann- eyri á föstudag. „Kóngur um stund“ er letrað á minnisvarðann en orðin eru í senn tilvísun í kvæðið Fáka eftir Einar Benediktsson og heitið á ævi- sögu Gunnars eftir Örnólf Árnason. Gunnar var mikill frumkvöðull í þágu íslenska hestsins. Gunnar kenndi um árabil við Hvanneyri, var einn af stofnendum Landssambands hestamannafélaga og sinnti fjölmörgum störfum í þágu hestsins. Ágúst Sigurðsson, rektor Land- búnaðarháskóla Íslands, stjórnaði athöfninni og ræðumennirnir Bjarni Guðmundsson og Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, héldu ræður og fóru fögrum orðum um Gunnar heitinn sem lést árið 1998, 82 ára gamall. Þá ávarpaði sonur Gunnars, sr. Halldór Gunnarsson sóknarprestur í Holti, gesti en hann afhjúpaði minnismerkið ásamt Gunnari Ás- geiri bróður sínum. Minnisvarði um Gunnar Bjarnason afhjúpaður Morgunblaðið/Davíð Pétursson Fákur Verkið er eftir Bjarna Þór Bjarnason og stöpul hlóð Unnsteinn Elíasson. Ísland endaði í 13. sæti á Evr- ópumótinu í brids í Dublin á Ír- landi eftir að hafa unnið Svía í lokaumferð mótsins á laugardag, 19:11. Lið Mónakó varð Evr- ópumeistari en það skipa tveir Norðmenn, Tveir Ítalir og tveir Frakkar. Íslenska liðinu gekk illa um miðbik mótsins og það rétt komst í 18. liða úrslit og hóf þau í 18. sæti. Liðið vann síðan síðustu sjö leiki sína og endaði í 13. sæti eins og áður sagði, lagði meðal annars bæði Norðmenn og Svía. Björn Eysteinsson, fyrirliði liðsins, sagði að íslensku spilararnir hefðu sýnt sitt rétta andlit á loka- sprettinum og spilað eins og þeir geta best en íslenska liðið fékk næst flest stig liðanna átján í úr- slitakeppninni Lið Mónakó sigraði með nokkr- um yfirburðum, Holland varð í 2. sæti og Ítalía í því þriðja. Lið Englands, Póllands og Þýskalands tryggðu sér einnig keppnisrétt á heimsmeistaramóti á næsta ári. Ísland endaði í 13. sæti á EM í brids Gull Lið Mónakó sem sigraði í Dublin. Metfjöldi kandídata var braut- skráður frá Háskóla Íslands á laug- ardaginn í tveimur athöfnum sem fóru fram í Laugardalshöll og tók hvor um sig um tvær klukkustund- ir. Í fyrri athöfninni voru þeir brautskráðir sem höfðu lokið fram- haldsnámi að loknu grunnnámi og í þeirri seinni þeir sem lokið höfðu grunnnámi. Afhent voru 1899 prófskírteini, 1242 í grunnnámi og 657 í fram- haldsnámi. Til samanburðar voru 1.816 prófskírteini afhent á vor- brautskráningu háskólans í fyrra. Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að fjölgun kandídata haldist í hendur við aukna aðsókn í Háskóla Íslands. Á laugardaginn voru m.a. út- skrifaðir fyrstu meistaranemarnir úr talmeinafræði og einnig fyrstu kandídatarnir úr nýju kennaranámi með B.Ed.-gráðu. Að því loknu geta meistaranemarnir sótt um tveggja ára meistaranám sem veitir þeim réttindi til að sækja um leyfisbréf leik- eða grunnskólakennara. Metfjöldi kandídata útskrifast frá HÍ Máttur Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, við brautskráninguna á laugardag. Eldur kom upp í fyrrinótt í svo- nefndu Norðurtangahúsi á Ísafirði þar sem Fánasmiðjan er meðal annars til húsa. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á fimmta tímanum, að sögn lög- reglunnar á Ísafirði, og var eld- urinn að mestu slokknaður þegar það mætti á staðinn. Gekk greið- lega að slökkva hann endanlega. Verulegt tjón varð á húsinu og innanstokksmunum en talið er að eldurinn hafi kviknað út frá raf- magni. Ekki liggur þó endanleg niðurstaða fyrir í þeim efnum. Mikið tjón í elds- voða í Norðurtanga- húsinu á Ísafirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.