Morgunblaðið - 25.06.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.06.2012, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012 » Gömlu brýnin standasig gjarnan vel og Ian Anderson, for- sprakki hljómsveit- arinnar Jethro Tull, er engin undantekning. Hann fór á kostum í Hörpunni fyrir helgi, þegar hann flutti verkið Thick as a Brick. Ian Anderson tryllti áhorfendur með flutningi á Thick as a Brick í Hörpu Morgunblaðið/Eggert Snillingur Ian Anderson fór á kostum og sýndi að lengi lifir í gömlum glæðum. Kát Natalía Wium, Ástþór Magnússon og Sverrir Stormsker. Ánægð Gilbert Ó. Guðjónsson, Tinna Gilbertsdóttir og Birgir Gilbertsson. Glöð Ragnar Þórhallsson og Birna Ásmundsdóttir nutu tónleikanna. Íslenskir hönnuðir unnu til gull- verðlauna og silfurviðurkenningar í evrópskri samkeppni Art Directors Club of Europe sem er ein helsta samkeppni á sínu sviði. Siggi Eggertsson hlaut gull- verðlaun fyrir myndskreytingar sem hann vann í samstarfi við Jónsson & Le’Macks fyrir Landsbankann, í samkeppni Art Directors Club of Eu- rope (ADC*E), en íslenskur hönn- uður hefur ekki áður hlotið gull í þeirri keppni, sem er sú stærsta og virtasta á sviði grafískrar hönnunar og auglýsingagerðar í Evrópu. Myndskreytingar Sigga hlutu gull- verðlaun í flokknum myndskreyt- ingar og ljósmyndun, en einnig hlutu viðurkenningar Reykjavík Letter- press í flokknum grafísk hönnun og Þorleifur Gunnar Gíslason, Geir Ólafsson, Jón Ingi Einarsson, Magn- ús Hreggviðsson, Hörður Ellert Ólafsson og Tryggvi Gunnarsson fengu viðurkenningu fyrir verk sitt Filmünd sem þeir unnu fyrir RIFF 2011 í opnum flokki. Verðlaunaverk Sigga hlaut á sín- um tíma heiðursverðlaun í sam- keppni Félags íslenskra teiknara sem veitt voru á HönnunarMars og sýnd í Hafnarborg. Hann hlaut að auki verðlaun í vor í samkeppni um veggspjald Listahátíðar í Reykjavík sem er einkennismynd Listahátíðar 2012. Aðstandendur Reykjavík Letter- press eru Ólöf Birna og Hildur Sig- urðardóttir sem reka vinnustofu við Lindargötuna. Verkið sem þær hlutu silfurviðurkenningu fyrir heitir „Bland í búnti“. Filmünd, verk þeirra Þorleifs Gunnars Gíslasonar, Geirs Ólafs- sonar, Jóns Inga Einarssonar, Magn- úsar Hreggviðssonar, Harðar Ellerts Ólafssonar og Tryggva Gunn- arssonar, var unnið fyrir RIFF 2011 og prýddi veggspjöld meðan á hátíð- inni stóð. Hönnuðirnir eru allir nem- ar en verðlaunin eru veitt í flokki fag- fólks. Verðlaunin Art Directors Club of Europe (ADC*E) voru nú veitt í 21. sinn, en dómnefnd keppninnar skipa fimmtíu fagaðilar víða úr Evrópu. Félag íslenskra teiknara er aðili að ADC*E. arnim@mbl.is Viðurkenning Þorleifur Gunnar Gíslason, Geir Ólafsson, Jón Ingi Ein- arsson, Magnús Hreggviðsson, Hörð- ur Ellert Ólafsson og Tryggvi Gunn- arsson fengu verðlaun fyrir Filmünd, sem unnið var fyrir RIFF 2011. Gull Ein mynda Sigga, en hann hlaut gullverðlaun fyrir myndskreytingar sem hann vann í samstarfi við Jónsson & Le’Macks fyrir Landsbankann. Gull og silfur fyrir myndskreytingar  Íslenskir hönnuðir unnu til verðlauna í evrópskri samkeppni LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar WHAT TO EXPECT... Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4 - 6 MADAGASCAR 3 2D Sýnd kl. 4 INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 8 - 10:20 SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýnd kl. 7 -10 -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Einstök perla sem er orðin langaðsóknarhæsta mynd allra tíma, af þeim sem eru ekki á ensku. ÍSL TEXTI MYNDIN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM! SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS WHAT TO EXPECT WHEN... KL. 5.45 - 8 - 10 L PIRANHA 3D KL. 10.20 16 PROMETHEUS KL. 5.45 - 8 16 -V.J.V., SVARTHOFDI.IS “HEILLANDI LEIKUR OG FALLEG SAGA.” - H.S.S, MBL - ROGER EBERT WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 5.35 - 8 - 10.25 L INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 PROMETHEUS 3D KL. 6 - 9 16 MOONRISE KINGDOM KL. 8 - 10.10 L MIB 3 2D KL. 5.30 10 “BÆTIR, HRESSIR OG KÆTIR.” - H.V.A., FBL WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING KL. 5.35 - 8 - 10.25 L WHAT TO EXPECT WHEN EXPECTING LÚXUS KL. 5.35 - 8 L MADAGASCAR 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L MADAGASCAR 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L PRIANHA 3D ÓTEXTUÐ KL. 8 16 PROMETHEUS 3D KL. 5.20 - 8 - 10.30 16 PROMETHEUS 3D LÚXUS KL. 10.30 16 PROMETHEUS 2D KL. 10 16 MIB 3 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.