Morgunblaðið - 25.06.2012, Page 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Í grein í Morg-
unblaðinu 22. júní sl.
rifjar Vilhjálmur
Bjarnason lektor upp
misnotkun Ólafs
Ragnars á neit-
unarvaldinu. Ólafur
Ragnar talar alltaf
ranglega um mál-
skotsrétt sinn, en sam-
kvæmt stjórnarskrá
okkar er neit-
unarvaldið hans. Mál-
skotsrétturinn er réttur og skylda
ríkisstjórnar. Vilhjálmur rifjar upp,
þegar Ólafur Ragnar beitti neit-
unarvaldinu fyrstur forseta. Hann
neitaði þá að staðfesta fjölmiðlalög,
sem Alþingi hafði samþykkt og mjög
hafði verið kallað eftir.
Þetta er tímabær upprifjun. Í um-
fjöllun síðustu vikur um forseta-
kosningar og frambjóðendur hefur
ótrúlega lítið verið fjallað um þetta.
Þá hefur Ólafi Ragnari verið hlíft við
upprifjun á því að hann beitti þessu
umdeilda valdi til að þjóna vinum
sínum í útrásinni, Baugsveldinu, og
ekki síst Samfylkingunni, sem þá
var gengin á mála hjá Baugsveldinu.
Sá flokkur hafði með réttu kallað
eftir lögum til að koma böndum á
samþjöppun fjölmiðlavaldsins í
höndum Baugsveldisins, en sneri nú
við blaðinu til að njóta vináttu og
fjármagns Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar. Allt er þetta rakið mjög vel
í bók Björns Bjarnasonar, Rosa-
baugur yfir Íslandi, og
ætti að vera skyldulesn-
ing allra sem vilja vita,
hvað gekk á þá. Síðan
var auðveldur eft-
irleikur Ólafs Ragnars
við misnotkun á neit-
unarvaldinu í Icesave-
deilunni og þjónaði vel
tækifærissinnuðu hug-
arfari hans.
Nú er illt í efni við val
á forseta. Sagt er að
sjálfstæðismenn styðji
manninn sem misnotaði
neitunarvaldið í fjölmiðlamálinu til
að þjóna Baugsveldinu og ætli þeir
með því að klekkja á ríkisstjórninni.
Ekki get ég það. Sagt er að Samfylk-
ingin og Vinstri grænir styðji Þóru
Arnórsdóttur til að klekkja á Ólafi
Ragnari. Ekki get ég stutt fram-
bjóðanda verstu ríkisstjórnar lýð-
veldisins.
Hvað er nú til ráða?
Neitunarvald forseta
Eftir Axel
Kristjánsson
Axel
Kristjánsson
» Þá hefur Ólafi Ragn-
ari verið hlíft við
upprifjun á því að hann
beitti þessu umdeilda
valdi til að þjóna vinum
sínum í útrásinni,
Baugsveldinu, og ekki
síst Samfylkingunni …
Höfundur er lögmaður.
Landsmenn ganga
til kosninga 30. júní
næstkomandi. 16 ára
seta sitjandi forseta
er orðin nokkuð þung-
bær. Þetta er orðið
gott. Í framboði eru
auk Ólafs Ragnars
Grímssonar fimm aðr-
ir frambjóðendur.
Þóra Arnórsdóttir
býður sig fram. Hún
er velmenntuð kona í
stjórnmálafræðum og heimspeki
frá ýmsum háskólum m.a. frá John
Hopkins-hákólanum í Washington
D.C. Hún á barnmarga fjölskyldu
og deilir þannig kjörum með fjöl-
skyldufólki í landinu, sem verður
að koma kröfuhörðu starfi og upp-
eldi barna undir einn og sama hatt-
inn. Þóra hefur mikla tilfinn-
ingagreind; henni þykir vænt um
fólk. Það þarf mikið hugrekki til
þess að fara gegn sitjandi forseta.
Hún sýndi það, þegar hún tók
þennan forsetaslag,
langt gengin með
barni. Til þessa þarf
hugrekki, sem vakið
hefur heimsathygli.
En íslenskar konur
hafa í gegnum tíðina
oft þurft að taka á
honum stóra sínum –
og Þóra er þar engin
undantekning.
Um aðra frambjóð-
endur er eftirfarandi
að segja: Andrea og
Hannes eru fólk í
blóma síns aldurs,
sem ná að vísu ekki flugi í þetta
sinn, en munu í framtíðinni vafa-
laust láta að sér kveða til end-
urreisnar í íslensku þjóðlífi.
Öðru máli gegnir um þau Her-
dísi og Ara Trausta. Þau eru bæði
um og yfir sextugt; sum sé rétt að
komast á eftirlaunaaldur. Mín
skoðun er sú að frá þeim sé engrar
endurnýjunar að vænta til þess að
móta þá framtíð, sem nú þarf að
móta eftir alvarlegt hrun fjárhags
og siðferðilegra gilda. Það kemur
fyrir að eftirlaunaþegar er kallað
til ábyrgðarstarfa, sbr. Joachim
Gauck, núverandi forseti Þýska-
lands. Gauck býr yfir óvenjulegri
lífsreynslu sem sóknarprestur og
andófsmaður í Austur-Þýskalandi,
og hann hefur fram að færa mikið
siðferðilegt „átoritet“. Svo er ekki
um þau Herdísi og Ara Trausta.
Forsetaembættið væri einungis
silkihúfa á farsælan starfsferil
þeirra ásamt digrum eftirlaunum
fyrir setuna á Bessastöðum.
Ég hef undanfarið verið að sinna
vorverkum við sumarbústað minn
að Laugarvatni, hreinsa, setja nið-
ur sumarblóm og klippa niður lúp-
ínu, sem móðurbróðir minn –
blessuð sé minning hans – gróð-
ursetti þar fyrir margt löngu og
taldi allra landsins meina bót. En
svo einfalt er málið ekki. Í fyrstu
gerði lúpínan gagn, en með tím-
anum mikinn usla. Hún veður yfir
allt, yfir mosa og berjalyng og
þrengir að blessuðum mófuglinum.
Þegar ég horfði ráðalaus yfir lúp-
ínubreiðuna hugsaði ég: Það er
með Ólaf Ragnar Grímsson eins og
lúpínuna; þegar hún er einu sinni
komin, er torsótt að losna við hana.
Þráseta Ólafs á Bessastöðum er
þjóðinni ekki til góðs. Hún kæfir
niður alla umræðu um valmöguleik
og nýstárlegar og frumlegar leiðir
og markmið að góðu og heiðarlegu
mannlífi á Íslandi og í heiminum. Á
þeim bæ snýst umræðan mikið um
vald.
Góðir landsmenn! Kjósum Þóru
Arnórsdóttur þann 30. júní næst-
komandi. Veitum þessari vel gerðu
og rösku konu brautargengi.
Kjósum Þóru
Eftir Vilborgu Auði
Ísleifsd. Bickel »En íslenskar konur
hafa í gegnum tíðina
oft þurft að taka á hon-
um stóra sínum – og
Þóra er þar engin und-
antekning.
Vilborg Auður
Ísleifsd. Bickel
Höfundur er sagnfræðingur, sem rek-
ur skólamiðstöðvar fyrir stríðs-
hrjáðar konur í Bosníu.
Móttaka að
sendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morg-
unblaðslógóinu efst í hægra horni
forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á
lógóið birtist felligluggi þar sem lið-
urinn "Senda inn grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið
er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbein-
ingar fylgja hverju þrepi í skráning-
arferlinu. Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig sem notanda í kerfið nóg
að slá inn kennitölu notanda og lyk-
ilorð til að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka daga
í síma 569-1100 frá kl. 8-18.