Morgunblaðið - 25.06.2012, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2012
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
MIKIÐ ER ÞETTA FALLEGT,
AF HVERJU FER ÉG EKKI
OFTAR ÚT
ÉG ER HIÐ EINA SANNA
NÁTTÚRUBARN
JÁ,
AUÐ-
VITAÐ
EN
ÞAÐ JAFN-
VÆGI
ÉG HEFÐI GETAÐ ORÐIÐ
LÍNUDANSARI
Í MARGRA METRA HÆÐ,
ÁN ÖRYGGISNETS
ÚPS
HRÓLFUR,
HVAÐ GERUM VIÐ
NÚNA?
KANNSKI
GETUM VIÐ MÚTAÐ
ÞEIM MEÐ NESTINU
OKKAR!?
KAFFI OG BÆKUR
TIL SÖLU
MIG LANGAR
AÐ LESA
SYKURLAUSA
ANNE RICE MEÐ
BARA SMÁ
STEPHEN KING
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu stoltur af sjálfstæði þínu og
hikaðu ekki við að fara þína leið, ef þér sýnist
hún sú skásta. Komdu þér bara í burtu ef það
reynist nauðsynlegt.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert í miklu vinnustuði núna. Hugur
þinn er skarpur og skýr og þú kemur auga á
hugmyndir og aðferðir sem hvörfluðu aldrei
að þér áður.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að sitja á strák þínum, því
annars áttu á hættu að eyðileggja gamalt
vinasamband. Andrúmsloftið fyrir ný við-
skiptasambönd er ekki gott núna og á næstu
vikum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Deilur við maka þinn krefjast mála-
miðlunar af þinni hálfu. Vertu uppörvandi í
samskiptum við aðra. Reyndu að komast til
botns í því hvað er að angra þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu
ekki ætlast til að aðrir séu eins. Sættu þig við
það sem er og njóttu þess sem lífið hefur að
bjóða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fullkomnunarárátta er streituvaldur.
Hvaðeina sem þú tekur þér fyrir hendur verð-
ur ánægjulegt og gefandi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú þarftu að líta til baka, það skiptir
miklu máli. Ef þú ert óviss um ákvarðanirnar
sem þú ert að taka, spurðu þá stílistann þinn
ráða. Reyndu ekki að berja höfðinu við stein-
inn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ástandið í vinnunni er ein-
staklega ruglingslegt núna. Hlustaðu á
ábendingar um það hvernig þú getur hagrætt
í vinnunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ferðaáætlanir eða vonir tengdar
útgáfu verða hugsanlega fyrir einhverjum töf-
um núna. Farðu þér hægar og þá gengur
dæmið upp. Mundu að slá hvergi slöku við.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta er góður dagur til þess að
taka höndum saman með góðgerð-
arsamtökum. Taktu því með ró sem skoðunin
leiðir í ljós.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vatnsberinn er eirðarlaus og upp-
reisnargjarn í dag. Líttu á broslegu hliðarnar
og brettu upp ermarnar til athafna og ekki
væri heldur vitlaust að bjóða heim gestum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að hrista af þér ýmsar venjur
sem falla ekki að því lífi sem þig langar til
þess að lifa.
Karlinn á Laugaveginum stóðfyrir ofan Vatnsstíginn og
horfði niður á gangstéttarhelluna,
þar sem stendur að Halldór Lax-
ness hafi fæðst þar endur fyrir
löngu: „Fróðir menn segja mér að
ég muni ekki hafa fæðst í timb-
urhúsinu uppí lóðinni á Laugavegi
32 þar sem stelpan misti mig útum
gluggann, heldur muni það hafa
gerst í steinbænum fast við götuna
þar sem kötturinn stökk uppí vögg-
una til þess að læsa klónum í andlit-
ið á barninu meðan það svaf; og var
heingdur fyrir vikið.“
Hann var ágætis karl þessi Kiljan,
kommi og erfitt að skilja’ann
en samt fundust þeir
– ég segi ekki meir
sem sögðust til forseta vilja’ann.
„Ónefnt skáld hér í borginni
kann að koma orðum að hlutunum
eins og þú sást í Sunnudagsmogg-
anum fyrir viku svo að það er ekki
við mig að sakast þó þetta hljómi
kunnuglega:“
Hvað á Bessastöðum sé brýnast?
Til að byrja með: vertu ekki að grínast.
Það er auðvitað tákn
eða upphafið bákn
embætti til þess að sýnast.
Karlinn fylgist vel með skoð-
anakönnunum og tekur mark á
þeim:
Samfylkingin sínu fylgi tapar.
samkvæmt Gallup-könnun hrapar,
hrapar
sem ósegjanlega gleður garminn mig.
Dagur orð sín varfærnislega velur
víkur sér undan, – samt hann þetta
telur
persónulegan sigur fyrir sig.
Að þessu mæltu sagði karlinn við
mig eins og í trúnaði að Káinn hefði
ort hringhenda hlunkhendu sem
væri eins og töluð út úr Ráðhúsinu
þó að hárgreiðslan væri ekki sú
sama:
Það sem ég meina, sérðu, sko! –
vera ekki að neinu rugli;
bara reyna að drepa tvo
steina með einum fugli.
Þetta er tómt bull en Káinn átti
til að vera skemmtilegur með því að
villa mönnum sýn.
Ég fann hérna inni í horni gamla
vísu eftir Bjarna úrsmið:
Endalaust ég alltaf finn
annarra sálir grunnar.
Ég er sjálfur, manni minn,
miðja tilverunnar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Embætti til
þess að sýnast
Ferðalög innanlands eru mjög aðskapi Víkverja. Til hvers að fara
til Spánar og liggja í sandkassa ef
maður getur farið í Landmannalaug-
ar eða Ásbyrgi?
x x x
Það veit Víkverji, eins og aðrir semhafa ferðast um hálendi Íslands,
að þar leynast ótal náttúruperlur og
skemmtilegar leiðir að ferðast um.
Fyrir óvana getur hálendið þó reynst
varasamt. Í versta falli hættulegt.
x x x
Nú um helgina héldu sjálfboðaliðarbjörgunarsveitanna til fjalla að
sinna hálendisvakt, sjöunda árið í röð.
Væntanlega bíða þeirra fjöldamörg
verkefni, en ekki er sjaldgæft að um
eitt þúsund aðstoðarbeiðnir berist
þær vikur sem hálendisvaktin er í
gangi.
x x x
Það er að sjálfsögðu mikið gleðiefniað björgunarsveitarfólk fórni
hluta af sumarfríi sínu til að vera mis-
reyndum ferðamönnum innan hand-
ar. Það er líka mikið gleðiefni hversu
margar björgunarsveitir eru fjár-
hagslega í stakk búnar til að halda úti
slíkri vakt. Hálendisvaktin er að
hluta til rekin fyrir fé frá styrktarað-
ilum, en afgangurinn kemur úr flug-
eldasölu, neyðarkallasölu og annarri
fjáröflun björgunarsveitanna. Og það
er vel.
x x x
Verkefni hálendisvaktarinnar eruallt frá því að segja fólki til vegar,
ráðleggja fólki með val á leiðum í
samræmi við fararskjóta, draga fasta
bíla upp úr ám og yfir í það að bregð-
ast við alvarlegum slysum.
Reynslan af þessu verkefni er
óhemju góð og vonandi verður mögu-
legt að halda því gangandi um ókom-
in ár.
x x x
Þegar Víkverji fer á fjöll finnst hon-um gott að vita af björg-
unarsveitum í viðbragðsstöðu. Í sum-
ar gera þær gott betur og eru á
fjöllum. Víkverja ætti því að vera
óhætt að halda þangað, og hann hvet-
ur aðra til að gera það sama.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú,
langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3,
10.)
FYRIR
ALVÖRU
KARLMENN
Fæst á hársnyrtistofum