Morgunblaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 2. J Ú L Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 161. tölublað 100. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
EISTNAFLUGIÐ
ALLS ENGIN
GADDAVÍRSHÁTÍÐ
VIÐSKIPTABLAÐ
TVG-Zimsen færir
út kvíarnar
EINBEITTIR OG
IÐNIR KRAKKAR
Á SMÍÐAVÖLLUM
FLESTIR TAKA KOFANA HEIM 16ROKKHUNDAR SAMEINAST 36
FINNUR.IS
Leikkona á leynifundum
fyrir brúðkaup
„Það kæmi mér ekki á óvart ef
lambakjöt yrði orðið jafn sjaldséð í
frystikistum verslana eftir tíu ár og
rjúpur eru nú,“ sagði Eiður Gunn-
laugsson, framkvæmdastjóri
Kjarnafæðis á Akureyri. Fyrirtækið
flytur nú út lambakjöt o.fl. til Fær-
eyja í neytendaumbúðum og pant-
anir fara stækkandi.
Norðlenska var fyrsta kjötvinnsl-
an sem Matvælastofnun samþykkti
starfsstöð hjá samkvæmt nýrri mat-
vælalöggjöf. Með því opnaðist fyrir
útflutning til EES og ekki þarf leng-
ur sérstök vottorð þegar unnin mat-
væli eru flutt úr landi. Norðlenska
hefur einnig selt vörur sínar til Fær-
eyja og ætlar að þreifa fyrir sér í
Noregi.
Veruleg sóknarfæri
„Sölusvæðið er ekki lengur bara
Ísland heldur allt evrópska efna-
hagssvæðið. Ég tel að það séu veru-
lega mikil sóknarfæri fyrir íslensk
matvælafyrirtæki að markaðssetja
sínar vörur þar,“ segir Gísli S. Hall-
dórsson, sérgreinadýralæknir hjá
MAST. »4
Lambið
á útleið
Stærri pantanir
Lamb Færeyingar kaupa kjötið.
Það var engu líkara en að hópur indíana á kanóum væri mættur á Rauða-
vatni í gær. Svo var þó ekki heldur voru þar á ferð krakkar í útilífs- og
ævintýranámskeiði skáta sem voru að læra að róa kanóum.
Útilífsskólarnir hafa verið starfræktir víða á höfuðborgarsvæðinu í sum-
ar fyrir börn á aldrinum átta til tólf ára og hafa krakkarnir meðal annars
farið í bjargsig, veiði og náttúruskoðun.
Bleiknefjar á siglingu á Rauðavatni
Morgunblaðið/Kristinn
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það sem er dálítið áhugavert er að
nokkur lyfjafyrirtæki hafa á síðustu
15 til 20 árum reynt að búa til lyf
sem hemja þennan efnahvata. Þau
hefur skort sönnun þess að ef það
takist að búa til lyf sem hemji efna-
hvatann komi þau raunverulega til
með að hægja á Alzheimer-
sjúkdómnum. Þetta er því geysilega
mikill hvalreki fyrir þau lyfjafyrir-
tæki sem hafa reynt að búa til lyf til
að hemja þennan
efnahvata,“ segir
Kári Stefánsson,
forstjóri Ís-
lenskrar erfða-
greiningar, ÍE.
Tilefnið er
uppgötvun sem
talin er kunna að
leiða til þróunar
lyfja gegn Alz-
heimer en hún byggir á rannsókn
vísindamanna Íslenskrar erfða-
greiningar, sem unnin var í sam-
vinnu við lækna á Landspítala.
Tengist uppgötvunin erfðabreyti-
leika sem áætlað er að finnist hjá
um 1% Íslendinga.
Lyftistöng fyrir erfðafræðina
Að sögn Kára hefur uppgötvunin
þegar haft áhrif á rannsóknir og
þróun lyfjarisa á þessu sviði. „Þetta
er ein mest spennandi uppgötvun
sem við höfum gert,“ segir Kári.
Ítarlega er fjallað um uppgötv-
unina í bandaríska dagblaðinu New
York Times og er þar haft eftir dr.
Samuel Gandy, heimsþekktum vís-
indamanni á sviði Alzheimer-
sjúkdómsins, að uppgötvun ÍE sé
sú merkasta á þessu sviði í 22 ár.
Kári segir ávinning ÍE ljósan.
„Þetta hefur töluvert mikla hag-
ræna þýðingu fyrir okkur vegna
þess að við erum nú þegar í sam-
vinnu við eitt lyfjafyrirtæki vegna
rannsókna á sjúkdómnum og erum
að semja við annað um frekari
samvinnu í kringum hann.“
MLaðar lyfjarisa til landsins »14
Ein merkasta uppgötvunin
Kári Stefánsson
Rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar kann að ryðja nýju Alzheimer-lyfi braut
Heimsþekktur sérfræðingur í Alzheimer telur rannsóknina þá merkustu í 22 ár
68.000 kr. fyrir herbergi
» Á vef Leigulistans er 10 fm
herbergi á Klapparstíg auglýst
til leigu fyrir 68 þús. á mánuði.
» Á leiguvef mbl.is er 45 fer-
metra íbúð á Freyjugötu aug-
lýst fyrir 160 þús. kr. á mánuði.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vegna lítils framboðs heldur húsa-
leiga áfram að hækka og ýtir eftir-
spurn eftir húsnæði til útleigu fyrir
ferðamenn undir þá þróun.
Ólafur Björn Blöndal, löggildur
fasteignasali hjá Fasteign.is, segir
framboðið á markaðnum alltof lítið.
„Tilfinning mín er sú að undan-
farna sex mánuði hafi eftirspurnin
verið 30% meiri en framboðið. Það er
sama hvar borið er niður í stærðum,
allt frá tveggja herbergja íbúðum og
upp í einbýlishús. Við höfum ekki
undan þegar við fáum eignir til út-
leigu. Þær fara eins og hendi sé veif-
að. Ég veit dæmi um fólk sem hefur
fengið 30-40 fyrirspurnir eftir að
hafa auglýst eignir á vefnum.
Afleiðingin af þessum skorti er sú
að fólk er að yfirbjóða hvert annað.“
Svanur Guðmundsson, leigumiðl-
ari hjá Húsaleiga.is, áætlar að 30%
eigna á markaðnum í dag séu leigðar
til ferðamanna. Þá kaupi erlendir að-
ilar eignir til þess að leigja þær út.
„Leigan hefur hækkað á vissum
eignum. Þá á ég við dýrari eignir og
lúxuseinbýlishús; góðar eignir sem
fjársterkir aðilar vilja leigja frekar
en að kaupa. Eftirspurnin er mest
eftir litlum einingum og það stefnir í
ófremdarástand í næsta mánuði þeg-
ar stúdentar koma inn á markaðinn.“
Mikil spenna á leigumarkaði
Tugir fyrirspurna um einstakar eignir Leigjendur yfirbjóða hver annan
Útleiga til ferðamanna ýtir undir skort Erlendir aðilar kaupa eignir og leigja