Morgunblaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2012 Sigyn Jónsdóttir sigyn@mbl.is Í dag hefst rokktónlistarhátíðin Eistnaflug í Neskaupstað. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2005 og hefur skipað sér stóran sess í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum. Hér er á ferðinni sannkölluð stórhátíð fyrir aðdáendur þunga- rokks en Stefán Magnússon, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar, segir al- gengan misskilning að hátíðin haldi einungis harða rokktónleika. „Þetta er alls engin gaddavírshá- tíð. Allar hljómsveitirnar spila rokk en þetta er alveg tónlist frá mjög léttu rokki yfir í það langþyngsta,“ segir Stefán sem er að vonum spenntur fyrir hátíðarhöldum helg- arinnar. „Stemningin er rosalega fín og bongóblíða í kortunum þannig að við erum æðislega spennt,“ segir hann en veðurspáin lítur vel út fyrir gesti Eistnaflugs. „Það kom hvorki sumar í fyrra né árið þar áður svo þetta verður kærkomin tilbreyting,“ segir Stefán hlæjandi. Eins og að sjá Bítlana Alls spila 42 hljómsveitir á Eistna- flugi í ár og segir Stefán stærsta nafnið án efa vera bandarísku harð- kjarnasveitina Cephalic Carnage. „Þeir eru ein af stærstu hljómsveit- unum í þessum geira í dag, þetta er alveg svakalega mikill heiður að fá þá til að spila,“ segir hann og bætir við að fyrir almenna rokkaðdáandann sé þetta næstum því eins og fyrir aðra að sjá Bítlana spila. „Það er kannski fullmikið að segja Bítlana en samt, þeir eru rosalega stórir í þessum heimi tónlistar,“ segir Stefán og bæt- ir við að aðstandendur Eistnaflugs hafi alltaf lagt mikla áherslu á að fá flottar hljómsveitir til að spila á há- tíðinni. „Við höfum alltaf viljað fá sem flottasta dagskrá fyrir þennan hóp sem gleymist oftar en ekki, okk- ur sem fílum þungarokk,“ segir Stef- án sem telur að umræddur aðdá- endahópur samanstandi af um það bil 1.500 Íslendingum. „Ásamt því að fá stórar erlendar hljómsveitir höf- um við alltaf endurvakið gamlar hljómsveitir sem koma og spila fyrir okkur,“ segir Stefán spenntur fyrir þeim sveitum sem koma saman á há- tíðinni. „Svakaleg nostalgía“ Í ár verða til dæmis sveitirnar I Adapt og Strigaskór nr. 42 með tón- leika. „Strákarnir í I Adapt eru löngu komnir í guðatölu og tónleikagestir í eldri kantinum muna allir eftir Strigaskóm nr. 42. Þetta verður svakalega nostalgía,“ segir Stefán og bendir á að tugir erlendra hljóm- sveita hafi sótt um að spila á hátíð- inni en ekki komist að. „Íslensku hljómsveitirnar eru svo svakalega góðar að ég vil miklu frekar hafa þær,“ útskýrir hann. Gestir hátíðarinnar hafa um tvö tjaldstæði að velja til að gista á og eru þau vandlega flokkuð eftir áhugasviði. „Annað tjaldstæði er fyr- ir fjölskyldufólk, þetta týpíska róleg- heitatjaldstæði. Hitt er partítjald- stæði svo allir ættu að geta fundið tjaldstæði við sitt hæfi,“ bendir Stef- án á. „Þetta er alls engin gaddavírshátíð“  Rokkhundar sameinast á Eistnaflugi um helgina  Bandaríska sveitin Cephalic Carnage spilar Morgunblaðið/Eyþór Rokkgoð Mikil spenna ríkir fyrir endurkomu I Adapt sem gerði garðinn frægan fyrir nokkrum árum. Tónlistarhátíðin Eistnaflug hefst í dag í Neskaupstað og stendur yfir alla helgina. Nánari upplýsingar og dagskrá há- tíðarinnar má nálgast á vefsíðunni www.eistnaflug.is. TED Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 ÍSÖLD 4 3D Sýnd kl. 4 - 6 THE AMAZING SPIDERMAN 3D Sýnd kl. 10:20 INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 8 - 10:20 MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4 Vinsælasta mynd veraldar! LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar MANNI, DÝRI OG LÚLLI ERU MÆTTIR AFTUR Í STÆRSTU FJÖLSKYLDUMYND SUMARSINS! -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is MYNDIN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM!ÍSL TEXTI HHHH -FBL HHHH -MBL HHHH -TV, KVIKMYNDIR.IS HHHH -VJV, SVARTHÖFÐI MYNDIN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM! SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS ÍSÖLD 3D KL. 6 L TED KL. 8 - 10 12 SPIDERMAN 3D KL. 8 - 10.30 10 INTOUCHABLES KL. 6 12 ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.5.50 L TED KL. 8 – 10.20 12 SPIDER-MAN 3D KL 6 - 9 10 STARBUCK KL. 8 L INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 WHAT TO EXPECT KL 10.25 L MIB 2D KL. 5.3010 ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.3.40 - 5.50 L ÍSÖLD 4 3D ENSK. ÓTEXT KL. 8 L ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L TED KL.3.30 -5.45 -8 -10.2012 SPIDER-MAN 3D KL. 5 - 8 - 10.50 10 SPIDER-MAN 3D LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.50 10 SPIDER-MAN 2D KL. 10.10 10 WHAT TO EXPECT KL. 8 L PROMETHEUS 3D KL. 10.25 16 HLUTI AF HVERJUM SELDUM BÍÓMIÐA ALLAN JÚLÍ - rennur til Barnaheilla MANNI, DÝRI OG LÚLLI ERU MÆTTIR AFTUR :) - TV, KVIKMYNDIR.IS - VJV, SVARTHÖFÐI VINSÆLASTA MYND VERALDAR! BESTI SPIDER-MAN ALLRA TÍMA! - NEWSWEEK TRANS GAT LOKSINS KEYPT SÉR KARLMANNSFÖT „Það var skemmtilegt að geta loksins farið og keypt sér karlmannsföt, föt sem pössuðu ekki bara á skrokkinn heldur pössuðu þeim manni sem ég var”, segir Hans Miniar Jónsson, transmaður. Í nýjasta þætti TRANS fáum við að fylgja Hans eftir í fataleit sem hann segir geta verið nokkuð snúið ferli fyrir transfólk. Nýr þáttur alla fimmtudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.