Morgunblaðið - 12.07.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2012
Jákvæð umskipti urðu í rekstri Ár-
vakurs, útgáfufélags Morgunblaðs-
ins, í fyrra eftir mikið tap
undanfarinna ára.
Óskar Magnússon útgefandi segir
að rekstrarhagnaður ársins 2011
fyrir afskriftir og vexti (ebitda) hjá
samstæðu Árvakurs hf. hafi verið í
samræmi við áætlanir, 40,4 milljónir
króna. „Félagið hefur náð miklum
árangri undanfarin ár í að bæta
rekstrarafkomuna en hún var á
þennan mælikvarða neikvæð um
575 milljónir króna árið 2008, nei-
kvæð um 486 milljónir króna árið
2009, neikvæð um 97 milljónir króna
árið 2010 og svo loks jákvæð um 40
milljónir króna á árinu 2011. Áætl-
anir ársins 2012 gera ráð fyrir 70
milljóna króna rekstrarhagnaði og
er reksturinn á áætlun það sem af
er árinu,“ segir Óskar.
Rúmur hálfur milljarður
í hlutafjáraukningu
Fjárhagsleg endurskipulagning
hefur farið fram að undanförnu.
Hlutafé í Þórsmörk ehf., móður-
félagi Árvakurs hf., hefur verið auk-
ið verulega, nú síðast um 540 millj-
ónir króna og er nú 1.221 milljón
króna. Hefur þeim fjármunum verið
varið til að mæta rekstrartapi Ár-
vakurs og til þess að minnka
skuldabyrði félagsins. Áhrif þessa
koma ekki öll fram í ársreikn-
ingnum, sem nú er birtur, en í efna-
hagsreikningnum kemur fram að
skuldir hafa minnkað um 944 millj-
ónir króna og eignir um 920 millj-
ónir króna.
Sú endurskipulagning sem fram
hefur farið byggist á breyttum for-
sendum frá því að félaginu var forð-
að frá gjaldþroti árið 2009, svo og á
almennum ráðstöfunum sem Ís-
landsbanki stendur nú fyrir við end-
urskipulagningu fyrirtækja. Í sam-
komulaginu við bankann segir
nánar:
„Nýir eigendur tóku við Árvakri
og Landsprenti og rekstri þeirra á
árinu 2009 eftir að bankinn hafði
staðið fyrir söluferli á félögunum. Í
því ferli var stuðst við áætlanir fyrri
stjórnenda og eigenda ásamt álykt-
unum bankans. Ljóst er að þær for-
sendur hafa ekki gengið eftir eins
og ráð var fyrir gert og hafa aðilar
því orðið sammála um að ganga til
samkomulags svo sem nánar greinir
hér að neðan í samræmi við almenn-
ar ráðstafanir sem bankinn stendur
nú fyrir við endurskipulagningu
fjölmargra atvinnufyrirtækja.‘‘
Nýir hluthafar hafa nú bæst í
hluthafahóp Þórsmerkur og þar
með Árvakurs. Er þar um að ræða
útgerðarfélagið Þingey ehf. á Höfn í
Hornafirði sem er eigandi að 50
milljóna króna hlutafé eins og sjá
má í hjálögðum lista yfir alla hlut-
hafa í félögunum.
Áfram mikið aðhald
„Við gerum okkur grein fyrir því
að áfram þarf að gæta strangasta
aðhalds í rekstri Árvakurs þótt
verulega hafi snúist til betri vegar á
þeim tíma sem nýir hluthafar hafa
rekið félagið. Í þeim efnum eru ým-
is jákvæð teikn á lofti. Námsmenn
tóku fagnandi tilboði um áskrift og
Mogga-iPad en auk þess hafa fjöl-
margir áskrifendur bæst við frá því
átak hófst um síðustu áramót. Sam-
tals hefur þeim fjölgað um hátt á
þriðja þúsund. Þá er forysta mbl.is
ótvíræð í hópi vefmiðla og miklir
framtíðarmöguleikar á þeim vett-
vangi,“ segir Óskar Magnússon
útgefandi.
Upplýsingum um stjórn, hluthafa
og forsvarsmenn þeirra fyrirtækja
sem hluthafahópinn skipa hefur
verið skilað til Fjölmiðlanefndar. Þá
hefur ársreikningi Árvakurs hf.
verið skilað til Ríkisskattstjóra en
hér á síðunni má sjá útdrátt úr hon-
um.
Morgunblaðið/Golli
Umskipti í rekstri
Árvakurs
Heildartekjur ársins 2011 voru 3.011 m.kr. og jukust um 360 m.kr., eða 13,6%, frá fyrra ári Rekstr-
arhagnaður var 40,4 m.kr. en var neikvæður um 97,4 m.kr. árið 2010 Heildartap ársins er 205 m.kr.
en tap ársins 2010 nam 330 m.kr. Eigið fé í árslok var 481 m.kr. Eiginfjárhlutfall í árslok var 24%
Listi yfir hluthafa*
Nafn Forsvarsmaður Hlutafé í kr. Hlutur í
% .
Óskar Magnússon Óskar Magnússon 1.000.000 0,08%
Rammi hf Ólafur Marteinsson 75.000.000 6,14%
Laugarholt ehf Þorgeir Baldursson 1.000.000 0,08%
Krossanes ehf Þorsteinn Már Baldvinsson 225.000.000 18,43%
Páll Hreinn Pálsson Páll Hreinn Pálsson 25.000.000 2,05%
HlynurA ehf Guðbjörg Matthíasdóttir 200.000.000 16,38%
Áramót ehf Óskar Magnússon 150.000.000 12,29%
Brekkuhvarf ehf Ásgeir Bolli Kristinsson 25.000.000 2,05%
Legalis sf. Sigurbjörn Magnússon 24.000.000 1,97%
Kaupfélag Skagfirðinga Sigurjón Rafnsson 110.000.000 9,01%
Fjárfestingaf. GIGAS ehf. Halldór Kristjánsson 50.000.000 4,10%
Skollaborg ehf. Einar Valur Kristjánsson 21.000.000 1,72%
Fari ehf. Jón Pálmason 25.000.000 2,05%
Síldarvinnslan hf. Gunnþór Ingvason 75.000.000 6,14%
Þingey ehf. Aðalsteinn Ingólfsson 50.000.000 4,10%
ÍsfélagVestmannaeyja hf. Stefán Friðriksson 164.000.000 13,43%
1.221.000.000 100,00%
* Hluthafalisti Þórsmerkur ehf., sem er eigandi 99% hlutfjár í Árvakri.
Rekstrarreikningur
2011 2010
Tekjur alls 3.010.719.664 2.650.276.540
Gjöld
Kostnaðarverð seldra vara ............................ –905.405.387 –757.882.978
Laun og annar starfsmannakostnaður ......... –1.666.891.859 –1.520.060.007
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður ............. –342.934.599 –418.512.909
Annar rekstrarkostnaður .............................. –55.125.551 –51.173.107
EBITDA - Hagnaður fyrir afskriftir 40.362.268 –97.352.461
Afskriftir ......................................................... –175.686.090 –179.369.611
Rekstrartap –135.323.822 –276.722.072
Fjárhagsleg endurskipulagning .................... –2.875.107 0
Hrein fjármagnsgjöld .................................... –118.345.799 –152.069.576
(Tap) fyrir skatta –256.544.728 –428.791.648
Tekjuskattur ................................................... 51.298.368 99.265.074
(Tap) ársins –205.246.360 –329.526.574
Efnahagsreikningur
31. 12. 2011 31. 12. 2010
Fastafjármunir 1.527.583.423 2.562.263.879
Veltufjármunir 480.008.908 365.472.391
Eignir samtals 2.007.592.331 2.927.736.270
Eigið fé 481.230.546 686.476.906
Langtímaskuldir og skuldbindingar 634.133.333 1.633.770.294
Skammtímaskuldir 892.228.452 607.489.070
Skuldir samtals 1.526.361.785 2.241.259.364
Eigið fé og skuldir 2.007.592.331 2.927.736.270
Stjórn Árvakurs hf. og
Þórsmerkur ehf. skipa:
Sigurbjörn Magnússon formaður
Sigrún Björk Jakobsdóttir
Ásdís Halla Bragadóttir
Bjarni Þórður Bjarnason
Ólafur Marteinsson
Í varastjórn sitja:
Ásgeir Bolli Kristinsson
Halldór Kristjánsson
„Íslandsbanki hafði umsjón með opnu söluferli
Árvakurs eftir að fyrri eigendur ákváðu að selja
hlut sinn í félaginu. Söluferlið var fyrsta opna
söluferlið sem bankinn stóð fyrir eftir haustið
2008 og með því var lögð ákveðin lína í þeim
efnum hér á landi.
Aðilar gerðu sér grein fyrir því á þeim tíma að
mikilvægar forsendur sem lagðar voru til grund-
vallar þyrftu að ganga eftir og að gera mætti ráð
fyrir að til endurskoðunar samningsins kæmi.
Þeirri endurskoðun er nú lokið með því
að hluthafar hafa lagt fram umtalsvert
nýtt hlutafé eða samtals 1,2 milljarða
króna. Íslandsbanki hefur á þeim grund-
velli farið með félagið í gegnum fjár-
hagslega endurskipulagningu í sam-
ræmi við þær almennu reglur sem
bankinn hefur sett sér,‘‘ segir Birna
Einarsdóttir, bankastjóri Íslands-
banka.
Umtalsvert nýtt hlutafé
Birna Einarsdóttir