Morgunblaðið - 12.07.2012, Side 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2012
Þar sem gæðagleraugu kosta minna
ReykjavíkuRveguR 22 • S. 565 5970 • SjonaRholl.iS
SJÓNARHÓLL
4 VERÐ Á
UMGJÖRÐUM
19.900
14.900
9.900
4.900
Nú geta ALLIR keypt sér gleraugu
Sjónmælingar
á staðnum
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér er alveg óhætt að taka minnihátt-
ar áhættu svona til tilbreytingar. Dagurinn
hentar einnig vel til viðræðna innan fjölskyld-
unnar.
20. apríl - 20. maí
Naut Gefstu ekki upp þótt illa gangi því öll él
birtir upp um síðir. Hvort heldur er skaltu
halda ró þinni hvað sem það kostar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þegar þú varst lítil/l dreymdi þig
um þennan tíma í lífi þínu. Reyndu að nýta
umræddan búnað á glænýjan hátt. Fólk tekur
eftir heillyndi þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft að leita til fortíðarinnar til að
bæta árangur þinn í vinnunni. Reyndu því að
lesa í kringumstæðurnar áður en þú grípur til
gamanseminnar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst eins og önnur hver mann-
eskja vilji leita ráða hjá þér og þú sjáir ekki út
úr verkefnum þess vegna. Láttu ljós þitt
skína.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það virðist vera sama hvað fólk gerir
þér, þú bregst við á þroskaðan hátt. Ef ein-
hver lætur þér líða illa, er viðkomandi senni-
lega ekki réttur félagsskapur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að sýna sérstaka þolinmæði í
samskiptum þínum við yfirboðara þína í dag.
Vertu samt á verði því framkoma þín getur
valdið ýmiss konar andstöðu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert í harðri samkeppni og
verður því að leggja mikið á þig til þess að
standast hana og koma þínum málum í höfn.
Með því að vera þú sjálfur færðu íhaldssam-
ara fólk til að fara hjá sér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skilin á milli góðs sjálfstrausts og
hroka eru ekki svo skörp, þú uppgötvar það
núna. Sýndu því skilning.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Kappsemi þín í vinnunni kemur í
veg fyrir að þú sjáir heildarmyndina. Líttu til
meginstoðanna en láttu smáatriðin lönd og
leið. Bjóddu skyldfólki í heimsókn og hafðu
ofan af fyrir félögunum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er nauðsynlegt að þú getir
greint á milli staðreyndar og staðleysu og
sért snöggur að því. Farðu þér hægt og
mundu hver ábyrgð fylgir ráðleggingum um
breytta hagi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hlutirnir kunna oft að virðast flóknari
en þeir eru. Notaðu tækifærið og segðu vin-
um þínum hvað þig dreymir um.
Stjörnuspá
Pétur Stefánsson segir farir sín-ar ekki sléttar: „Heimilislækn-
irinn minn til fjölda ára er sestur í
helgan stein. Og enginn læknir
fæst í staðinn.“
Engan lækni er að fá,
að mér kvíða setur.
Ef heilsan bilar hver á þá
að hjúkra og laga Pétur?
Jón Gissurarson yrkir á góðum
degi:
Gott er að feta forna slóð
fram til landsins dala
örnefnanna sagnasjóð
sjá á hverjum bala.
Ingólfur Ómar Ármannsson
tekur undir:
Glaður arka grund og mó
gamlar slóðir kunnar
til að finna frið og ró
í faðmi náttúrunnar.
Kristján Runólfsson bregður á
leik með orð, sem umsjónarmaður
hefur aldrei heyrt áður:
Það er versta þraut og pín,
og það er plága Helvítis,
að þegar ég hef í höndum vín,
helst það sjaldan innstýtis.
Örlygur Ben prjónar við það:
Gild & tæk er greining mín
sem gæti skýrt þann hnút sýtis:
Ef þú kaupir kláravín,
það klárlega fer útstýtis.
Þá Vigfús M. Vigfússon:
Ei til þykja eðal vín
ónýtis
ef þau nýta áhrif sín
útstýtis.
Skúli Pálsson hefur þann for-
mála að sínu innleggi, að frændi
sinn Einar Baldvin Pálsson noti ný-
yrðið að „býrast“ um það er hann
neytir annars eftilætisdrykkjar
síns:
Innstýtis vill ýmis sjá
eðalvínið dýrast,
aðrir kjósa fljótt að fá
flöskuna og býrast.
Ekki hefur dregið úr áhyggjum
Kristjáns við þennan kveðskap:
Oft er misjafnt innvæti,
ofan sett í maga;
af því daprast innræti,
ölþyrstra um daga.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af skorti á heimilislækn-
um og orðinu „innstýtis“
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lf
ur
hr
æ
ði
le
gi
F
er
di
n
an
d
KARTÖFLUMÚSIN GÆTI
BRAGÐAST SVOLÍTIÐ
SKRINGILEGA
HRÓLFUR,
HVERT ERTU AÐ
FARA?
ÚT EF MAÐURSPYR EKKI...
...ÞÁ
FÆR MAÐUR
ENGIN SVÖR
ÉG
VARA ÞIG
VIÐ!
EF ÞÚ LEYFIR ÞESSU
TEPPI AÐ KOMA NÁLÆGT
MÉR ÞÁ BRENNI ÉG ÞAÐ!
HEYRIRÐU ÞAÐ?
HVAÐ ER
ÞAÐ AÐ GERA
NÚNA?
RÉTTA
FRAM
SÁTTAR-
HÖND
ÉG TEK EKKI Í
HÖNDINA Á
EINHVERJU
KJÁNALEGU TEPPI!
BARA SAMA
VANDAMÁL OG Í
FYRRA, ÉG
VAKNAÐI Í
NÓVEMBER OG
TÓKST EKKI AÐ
SOFNA AFTUR
FYRR EN Í
JANÚAR
Víkverji hefur gaman af að veltamannlegri hegðun fyrir sér.
Hann hefur tekið eftir því að menn
telja iðulega að sér vegið þegar hug-
myndir þeirra eru gagnrýndar og
gildir þá einu hversu gott skotmark
hugmyndin er. Upphafsmaður hug-
myndarinnar fer í vörn.
x x x
Nú hefur verið gerð rannsókn átengslum fólks við hugmyndir.
Markus Baer við Washington-
háskóla í St. Louis fékk 102 há-
skólanema til að búa til auglýsinga-
herferð fyrir veitingastað. Þeim var
skipt í tvo hópa. Annar hópurinn fékk
drög að herferð, sem nánast voru
tilbúin. Gat hann því ekki skilið eftir
mikil andans spor. Hinn hópurinn
þurfti hins vegar að bæta þónokkuð
við, finna nafn á veitingastaðinn,
ákveða hvers eðlis hann ætti að vera
og leggja nafn sitt við hugmyndina.
x x x
Baer safnaði síðan verkefnunumsaman og skilaði með at-
hugasemdum. Annar hópurinn átti
síðan að fjarlægja tvo þætti úr hug-
myndinni, hinn að bæta tveimur við.
Hugðist fræðimaðurinn þannig kom-
ast að því hversu opnir þátttakend-
urnir væru fyrir breytingum. Sá hóp-
ur, sem var tengdari verkefninu,
hafði ekkert á móti því að bæta við,
en vildi síður taka í burtu.
x x x
Í annarri tilraun komst Baer að þvíhvers vegna það væri. Þátttak-
endur, sem höfðu sjálfir lagt eitthvað
af mörkum, litu á það sem persónu-
legt tap þegar ekki átti að nota vinnu
þeirra. Jafnframt urðu þeir ergilegri
og uppstökkari en hinir.
x x x
Baer er þeirrar hyggju að vinnu-staðir, sem byggja á skapandi
hugsun, ættu að hafa þessar nið-
urstöður í huga. Þar velti gæði hug-
mynda á því hvort starfsfólkið sé
tilbúið að hlusta á rök og fallast á aðr-
ar skoðanir. Rannsóknin sýni að
starfsfólk, sem leggur sig fram, hafi
tilhneigingu til að draga sig til baka,
sérstaklega þegar því finnst hug-
myndum sínum ógnað.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú,
langlyndi, kærleika, þolgæði.
(Tím. 3, 10.)