Morgunblaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2012 Árlegir sumartónleikar í Skálholts- kirkju hófust í lok júní og standa til 5. ágúst. Á tónleikunum kemur fram fjöldi tónlistarmanna og hljómsveita. „Þessa vikuna dvelur Bachsveitin í Skálholti við æfingar undir stjórn slóvakíska fiðluleikarans Peters Spisskys. En Peter hefur komið og leitt sveitina árlega síðan sumarið 2008. Hann er jafnframt kons- ertmeistari barokksveitarinnar Con- certo Copenhagen og þar að auki eft- irsóttur einleikari um allan heim. Hann hefur náð góðum árangri með sveitinni og yfirleitt verið hápunktur sumarsins að fá hann,“ segir Sig- urður Halldórsson, listrænn stjórn- andi sumartónleikanna. Fiðluleikarinn Elfa Rún Kristins- dóttir leikur einnig einleik úr verki Johann Georg Pisendel að sögn Sig- urðar sem segir að hún og Spisskys hafi valið verkin sem spiluð eru í kvöld. „Dagskráin mótaðist nokkuð af lagavali þeirra og þeir sem missa af tónleikunum í kvöld geta mætt á laugardaginn klukkan fimm en þá endurtökum við fimmtudags- tónleikana. Laugardagstónleikarnir klukkan þrjú sem nefnast Ys og þys í London verða svo endurfluttir á sunnudaginn. Á þeim tónleikum syngja sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og tenórsöngvarinn Eyjólfur Eyjólfsson. Þar verða Händel og Purcell í aðalhlut- verkum.“ Bachsveitin í Skálholti var stofnuð árið 1986 fyrir tilstilli Helgu Ingólfs- dóttur semballeikara. Sveitin helgar sig flutningi á tónlist 17. og 18. aldar og er brautryðjandi hér á landi í að flytja barokktónlist á hljóðfæri þess tíma. Aðspurður hvort það freisti ekki að spila í hinu fullkomna tónlist- arhúsi Hörpu segir Sigurður það vissulega spennandi en að Skálholts- kirkja bjóði upp á svo miklu meira. „Hér höfum við aðstöðu sem við hefðum ekki í Hörpu, þ.e. við gistum hér, æfum og borðum saman í heila viku. Við getum æft okkur þegar við viljum og slíkt væri of kostn- aðarsamt í Hörpu.“ Þá segir Sig- urður að hljómburðurinn í Skálholti sé feikilega góður og henti mjög vel fyrir tónleika af þessum toga. „Sam- starf við kirkjuna hefur líka alltaf verið gott og tengslin milli kirkju og tónlistar sterk.“ vilhjalmur@mbl.is Sumartónleikar Bachsveitin í Skálholti verður með tónleika í kvöld og um helgina á sumartónleikunum í Skálholtskirkju. Händel og Purcell í aðalhlutverkum Fimmtudagur 12. júlí kl. 20:00 Leikhús og leikandi fiðlur Henry Purcell (1659-1695): Svíta úr Dídó and Aeneas Johann Georg Pisendel (1687- 1755): Konsert í Es-dúr fyrir fiðlu, strengi og fylgibassa Einleikari Elfa Rún Kristinsdóttir Georg Friederich Händel (1685- 1759): Concerto Grosso op.6 nr.2 í F dúr Henry Purcell (1659-1695): Amp- hitryon – eða The Two Sosias Þessi efnisskrá verður end- urtekin laugardaginn 14. júlí kl. 17:00 Laugardagur 14. júlí kl. 15:00 Ys og þys í London Georg Friederich Händel (1685- 1759): Úr Jephtha: Overture Waft her, angels, through the skies. Úr Alcina: Tornami a vag- heggiar Un momento di contendo. Úr Ri- naldo: Lascia ch́io piangaFurie terribili Henry Purcell (1659-1695): Cha- cony. Úr Dioclesian: Oh The sweet delights of love. Úr King Arthur: Fairest Isle. Úr Dido and Aeneas: Overture Prelude – Come away, fellow sailors – The Sailorś Dance Thy hand Belinda – When Ím laid in earth. Úr Pausanias the Betrayer of His Country: My dearest, my fairest Einsöngvarar: Hallveig Rúnars- dóttir sópran og Eyjólfur Eyjólfs- son tenór. Þessi efnisskrá verður end- urtekin sunnudaginn 15. júlí kl. 15:00 SUMARTÓNLEIKAR Í SKÁLHOLTI Tónleikaröðin gogoyoko wireless heldur áfram í kvöld en á þessari tí- undu útgáfu af gogoyoko wireless verða það nýstirnin í Tilbury sem koma fram og leika efni af nýútkom- inni frumraun sinni, Exorcise. Þó að sveitin hafi verið nánast óþekkt fyrir stuttu er hún á allra vörum í dag. Tilbury situr á toppnum á gogoyoko- plötulistanum auk þess sem lagið Tenderloin situr í 3. sæti á topp 30 lista Rásar 2. Tónlistarunnendur hafa tekið Tilbury fagnandi og nýtur hljómsveitin töluverðra vinsælda í dag. Exorcise heyrðist fyrst á gogo- yoko þar sem hún hlaut sérstaka for- útgáfu áður en hún kom út annars staðar og hefur notið mikilla vin- sælda þar síðan. Upphaf Tilbury má rekja til þess að Þormóður Dagsson hóf að semja sína eigin tónlist en Þormóður hefur áður gert garðinn frægan sem trommari hljómsveitanna Skakka- manage, Hudson Wayne og Jeff Who?. Fljótlega eftir að Þormóður hóf að semja sín eigin lög skipaði hann hljómsveitina sem í er einvala lið tónlistarmanna en í henni eru þeir Magnús Tryggvason Eliassen trommari, Guðmundur Óskar bassa- leikari, Örn Eldjárn gítarleikari og Kristinn Evertsson hljómborðsleik- ari auk Þormóðs sem syngur og spil- ar á gítar. Platan þeirra Exorcise, sem kom út hjá Record Records hinn 7. maí sl., hefur fengið góða dóma. Sérstakur gestur kvöldsins verður Dad Rocks en húsið verður opnað klukkan átta í kvöld og hefjast tónleikarnir klukkan níu. Tónleika- röð gogoyoko hefur fengið góðar við- tökur og því má búast við góðu and- rúmslofti í kvöld hjá strákunum í Tilbury og Dad Rocks. Tónleikaröð á Kex Morgunblaðið/Eggert Tónleikaröð Þormóður Dagsson, söngvari hljómsveitarinnar Tilbury. „Við munum spila alla plötuna en svo eru að sjálfsögðu nokkur lög sem við fáum aldrei að sleppa eins og t.d. Fiskisúpa Sigríðar í Fjöruhúsinu og Alan,“ segir Hróðmar Ingi Sig- urbjörnsson, gítarleikari og söngari í Melchior. Hljómsveitin heldur út- gáfutónleika í kvöld í Iðnó kl. 20.30 í tilefni útgáfu hljómplötunnar Matur fyrir tvo sem kom út í vor. „Það sem er sérstakt við þessa plötu er að við tengjum hvert lag við ákveðinn stað og stund. Þannig má segja að lögin séu myndir úr okkar lífi, í vissum tilfellum byggjast þessir staðir og stundir á áreiðanlegum heimildum en í öðrum tilfellum er um tilbúning að ræða,“ segir Hróðmar. Hjólreiðaferð barnaskólanema 1968, dagur í mynni Hjaltadals og ást- ardúett í Vesturbæjarlaug 2006 eru dæmi um slíka staði og stundir. Auk ákveðins staðar og stundar á hvert lag sér einnig mynd sem sonur Hilm- ars Oddssonar, hann Oddur Sigþór Hilmarsson, 10 ára, málaði en ein þeirra skreytir umslag plötunnar. Þá bætir Hróðmar við að myndirnar verði sýndar á tónleikunum. „Við erum með nokkra hjálp- arkokka með okkur,“ segir Hróðmar og vísar í fjölskyldumeðlimi og fyrr- verandi nemendur tónlistarmannana í Melchior sem koma við sögu á plöt- unni. „Þannig myndast oft skemmti- leg fjölskyldustemming hjá okkur,“ bætir Hróðmar við. Hljómsveitin hefur sent frá sér fjórar plötur, en sú fyrsta, Silf- urgrænt ilmvatn, kom út 1978, þar á eftir Balapopp sem kom út 1980, Melchior frá 2009 og sú nýjasta í safnið Matur fyrir tvo frá því í ár. Næstu tónleikar hljómsveitarinnar verða á Rosenberg 23. ágúst og svo í Gljúfrasteini 26. ágúst. larah@mbl.is Fjölskyldustemning á útgáfutónleikum Melchior Matur fyrir tvo Hljómsveitin Melchior hefur spilað saman kammerpopp síðan árið 1973 og kemur saman á útgáfutónleikum í Iðnó í kvöld. Sumarblús Oddur Sigþór Hilmarsson skreytir bæði umslag og lög á nýrri plötu Melchior með tilheyrandi málverkum. Inga Guðrún Birgisdóttir mannauðsstjóri - Laugardagstíminn og gufan á eftir er hrein snilld! E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.