Morgunblaðið - 13.07.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.07.2012, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2012 ✝ Jón SteinnHalldórsson fæddist í Stöðinni í Ólafsvík 27. jan- úar 1926. Hann lést á Dvalarheim- ilinu Jaðri, Ólafs- vík, 27. júní 2012. Foreldar hans voru Halldór Frið- geir Jónsson frá Arnarstapa, f. 1904, d. 1973, og Matthildur Ragnheiður Ás- björg Kristjánsdóttir frá Ólafsvík, f. 1903, d. 1962. Systkini Jóns Steins voru Laufey, f. 1923, d. 1925, Krist- mundur, f. 1928, d. 1997, Pál- ína, f. 1930, d. 2009, Leifur Steinar, f. 1934, d. 2011, Kristín, f. 1938, d. 2011, Edda Sigurveig, f. 1942, d. 2008, Bára, f. 1943, d. 2008, Bylgja, Hennar maki er Vilhelm Þór Árnason og eiga þau þrjá syni, Árna Þór, Jón Stein og Hjört. 4) Dröfn, f. 3. júlí 1955. Hennar maki er Elías Há- konarson og eiga þau tvö börn, Rannveigu og Jón Stein. 5) Halldór Friðgeir, f. 9. júní 1957. Hans maki var Mál- fríður Gylfadóttir og eiga þau vær dætur, Guðrúnu Ylfu og Maríu Rún. Langafabörnin eru 15. Jón Steinn tók vélstjórn- arréttindi 1945 í Stykkishólmi og skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann hóf sína sjó- mennsku 17 ára gamall. Hann byrjaði sem vélstóri með föð- ur sínum á Víkingi SH en lengst af var hann skipstjóri á Jóni Jónssyni SH-187 sem var mikið aflaskip. Eftir 30 ára skipstjórnarferil tók hann við landvinnslu Stakkholts hf. Hann var farsæll í störfum sínum til lands og sjávar. Útför Jóns Steins fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 13. júlí 2012, kl. 14. f. 1943, og Vík- ingur, f. 1947. Eiginkona Jóns Steins var Hjört- fríður Hjart- ardóttir, f. 8. ágúst 1926, d. 16. mars 2008. Þau gengu í hjónaband árið 1945. Börn þeirra eru: 1) Hjördís Emilía, f. 23. september 1947. Hennar maki er Guð- laugur Wium Hansson og eiga þau þrjár dætur, Katrínu, Hjörtfríði Steinunni og Hjör- dísi Hörpu. 2) Matthildur Björg, f. 31. ágúst 1950. Henn- ar maki er Þorvaldur Héðinn Einarsson og eiga þau þrjár dætur, Ólínu Rakel, Svönu Sig- ríði og Steinunni Dröfn. 3) Kristrún f. 13. júní 1953. Elsku pabbi, okkur langar að minnast þín með þessum orðum. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Ó, pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar. Aldrei var neinn svo ástúðlegur eins og þú. Ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt. Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn. Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði. Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund. Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Æskunnar ómar ylja mér í dag. (Þorsteinn Sveinsson.) Við munum ávallt sakna þín, hvíl í friði, Hjördís, Matthildur, Kristrún, Dröfn og Halldór. Elsku afi. Síðasta ferð til Ólafsvíkur lifir lengi í minningunni og myndin af þér elsku afi mun ávallt koma upp í huga okkar þegar við segj- um börnunum okkar sögurnar af langafa þeirra. Daginn sem við kvöddumst var sjórinn spegil- sléttur og hin mikla sjóferð þín hófst. Ólafsvíkin skartaði sínu fegursta þennan dag og erum við alveg vissar að amma Fríða var þar á ferð að sækja þig. Þú varst þessi maður sem allir þekktu, enda fór ekki á milli mála hver var á ferðinni þegar þú varst annars vegar. Þú barst af vegna þinna sterku skoðana á lífinu og var dugnaðurinn í fyr- irrúmi. Þú kenndir okkur margt í lífinu og allar þínar bestu gjafir sitja eftir í okkur. Dugnaður, harka og einfaldleiki var það sem einkenndi þig. Við gleymum seint þeim hlýju móttökum sem við fengum í Efstabæ. Alltaf fengum við að sitja hjá þér þegar þú horfðir út á hafið með kíkinn góða og ýmist bölvaðir brælunni eða lofsamaðir tóma bryggju. Klukkustundunum saman sátum við og spiluðum í eldhúsinu Ol- sen Olsen á meðan amma sá til þess að okkur vanhagaði ekki um neitt, kræsingarnar voru af bestu gerð. Á seinni árum snérust hlut- skipti ykkar ömmu við, amma varð að víkja úr eldhúsinu vegna veikinda og þá tókst þú við og gerðir þitt besta til þess að halda heimilinu gangandi. Þetta kom okkur ekkert á óvart og sýnir hversu sterka sjálfsbjargarvið- leitni þú hafðir, þú vildir gera allt sjálfur og þurftir enga að- stoð. Þetta einkennir flestalla í fjölskyldunni og dugnaðurinn sem þú kenndir okkur mun er- fast til okkar allra. Við ýmist tárumst eða hlæjum við þessi skrif og minnisstætt er þegar þú varst að lesa fyrir okk- ur Moggann og segja okkur frá fræga fólkinu í Hollywood, við vissum ekkert um hvern þú varst að tala enda lastu bara upp nöfn- in eins og þau komu fyrir með þínum yndislega íslenska fram- burði. Við að sjálfsögðu skelli- hlógum að öllu saman því þú sparaðir nú ekki stóru orðin. Seinna laumuðumst við í blaðið til þess að kíkja á hvaða fræga fólk var um að ræða. Einnig hvíslaði lítill fugl að okkur að Stakkholtssvipurinn fríði hefði nú getað gefið þér marga kvenkosti en hana ömmu Fríðu valdirðu umfram aðrar og söknuðurinn var mikill þegar amma kvaddi okkur fyrir fjórum árum. Þú barst með þér sökn- uðinn alla daga en sagðir ekki neitt heldur reyndir eftir bestu getu að vera hress. Mikið erum við stoltar af að hafa átt þig sem afa. Við munum miðla öllu því sem þú kenndir okkur áfram til barna okkar og segja þeim hetjusögur af afa Jón Steini og mun Stakkholtssvipur- inn fríði lengi lifa. Elsu afi, nú ertu kominn til ömmu Fríðu og er hún er án efa búin að baka pönnsurnar sína frægu og taka vel á móti þér. Minninguna um þig geymum við í hjarta okkar svo lengi sem við lifum. Katrín, Hjörtfríður og Hjördís Harpa. Afi Jón Steinn var einkar glæsilegur maður með ótrúlegan viljastyrk. Hann þoldi ekkert hálfkák og lét verkin tala. Hann var frekar óheflaður og það voru mikil læti þegar hann fór um, veiku fæturnir áttu sinn þátt í því en einnig lá honum hátt róm- urinn, ekki laust við að einhver blótsyrði fengju að fjúka af og til. Afi var örlátur við okkur barnabörnin og vildi allt fyrir okkur gera en hann var einnig hreinskilinn og óhræddur við að gera athugasemdir við það sem betur mátti fara hjá okkur, sem reyndist vel. Það skein af afa ákveðinn þokki og þjóðkunnur maður hafði á orði að hann liti út eins og kvikmyndastjarna um- kringdur kvenfólki, þá 85 ára. Við erum afar þakklát afa fyrir samleiðina í þessu lífi og höfum margar ánægjulegar minningar til að geyma úr Efstabænum þar sem amma og afi tóku alltaf vel á móti okkur. Hvíl í friði elsku afi, Ólína Rakel, Svana Sigríður, Steinunn Dröfn, Árni Þór, Jón Steinn og Hjörtur. Jón Steinn Halldórsson Ásgrímur Hart- mannsson ✝ ÁsgrímurHartmanns- son fæddist á Kolkuósi í Við- víkurhreppi hinn 13. júlí 1911. Hann lést á Hornbrekku á Ólafsfirði 13. ágúst 2001og fór útför hans fram frá Ólafsfjarð- arkirkju 18. ágúst 2001. Í dag hefði Ásgrímur orðið 101 árs og af því tilefni eru birtar á vef Morgunblaðsins vísur sem voru ortar um hann og konu hans, Helgu Jónínu Sigurð- ardóttur, á ættarmóti sem hald- ið var í tilefni aldarafmælis hans. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is ✝ Magnús Guð-mundsson fæddist í Hafnar- nesi 10. júlí 1924. Hann andaðist á dvalarheimilinu Uppsölum á Fá- skrúðsfirði 27. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Magnússon, f. 30. júlí 1885, d. 14. sept- ember 1931, og Ingibjörg Guð- mundsdóttir, f. 1. ágúst 1894, d. 24. mars 1967. Systkini Magnúsar voru Níels Andrés Guðmundsson, f. 31. janúar 1916, d. 15. júní 1977. Kristín Guðmundsdóttir, f. 2. maí 1918, d. 9. maí 1918. Gísli Guð- mundsson, f. 30. júní 1919, d. 28. apríl 1994. Krist- björg María Guð- mundsdóttir, f. 1. febrúar 1921, d. 9. september 1922. María Björg Guð- mundsdóttir, f. 8. nóvember, 1928, d. 7. október 1930. Eiginkona Magn- úsar var Björg Þór- ormsdóttir, f. 26. febrúar 1919 d. 14. ágúst 2000. Magnús giftist Björgu 10. júlí 1954 þau eign- uðust þrjá syni. Guðmund Inga Magnússon, f. 16. mars 1954, gift- an Dagbjörtu Sigrúnu Sigurð- ardóttur Hammer og eiga þau þrjár dætur Björgu, Sigríði og Kristínu. Eininmaður Bjargar er Kjartan Viðarsson og eiga þau tvo syni, Guðmund Inga og Viðar. Sam- býlismaður Sigríðar er Gunnar Már Gunnarsson og eiga þau tvö börn, Dag Inga og Tinnu Björgu, auk þess sem Gunnar Már á dótt- urina Súsönnu Margréti. Sam- býlismaður Kristínar er Sigurður Þór Birgisson og eiga þau einn ný- fæddan son. Hákon Magnússon, f. 14. ágúst 1957, og Stefán Þórorm Magnússon, f. 22. maí 1960. Magnús starfaði við ýmis störf bæði til sjós og lands. Útför Magnúsar fer fram frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag, föstudaginn 13. júlí 2012, kl. 14. Elsku afi, nú er kallið komið og þú hefur fengið hvíldina. Okk- ur systurnar langar að kveðja þig með örfáum orðum nú þegar við setjumst niður og skrifum þessi minningarorð á afmælisdeginum þínum. Okkur langar að þakka kærlega fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér og ömmu. Alltaf var jafn gaman að koma til ykkar ömmu inn í Bæ. And- rúmsloftið þar var alltaf rólegt og þið amma alltaf að bardúsa eitthvað. Hún með einhverja handavinnu og þú að hlusta á kórtónlist og söngla með. Síðar lærðir þú á orgel og varst að dunda þér við að spila á það því að tónlist var alltaf mikið áhuga- mál hjá þér. Það er skrítið að hugsa til þess að við munum ekki hitta þig oftar þegar við komum austur. En við vitum að nú hefur þú hitt ömmu aftur eftir að hafa saknað hennar síðan hún fór fyrir tæpum 12 ár- um. Minningin um ykkur mun lifa með okkur alla tíð. Þín barnabörn, Björg, Sigríður og Kristín. Magnús Guðmundsson Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Dýrahald France Bulldog til sölu Erum með yndislega France Bulldog til sölu. Uppl. í síma 566 8417. www.dalsmynni.is - Bjóðum raðgeiðslur, Visa og Mastercard. Hundaræktun með leyfi Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bókhald N.P. þjónusta. Sé um bókhalds-, eftirlits- og gæslustörf. Uppl. í s. 861 6164. Þjónusta Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar Látið fagmenn okkar nostra við garðinn þinn. Öll almenn garðþjónusta á einum stað. 577 4444 www.gardalfar.is BílaþjónustaPallhýsi Pallhýsi fyrir Nissan, Toyota, F-150 og stærri. Ný sending var að koma, 2 hús eftir á eldra verði. Með gistihúsið á pallinum er einnig hægt að hafa hestakerru eða bátinn með. Ferðapallhýsi ehf Travellitecampers.com Akureyri og Reykjavík s. 663 4646. Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar, verðlaunagripir, Smiðjuvegi 6, rauðri götu, Kópavogi. fannar@fannar.is - sími 551 6488. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti, hreinsa garða og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704, manninn@hotmail.com Fyrir rúmum 4 áratugum hitt- umst við 30 ungar stúlkur sem komnar voru víða að til að stunda nám í Hjúkrunarskóla Íslands. Sumar þekktust en aðrar ekki. Við vorum merktar E holli. Ekki leið á löngu þar til við vorum orðnar holl systur, stóðum saman sem ein og studdum hver aðra, hlustuðum og deildum sameiginlegri reynslu. Oft þurfti ekki nema lítið til að vekja hlátur og háværar umræður. Þarna myndaðist vinátta og væntumþykja sem heldur, það skiptir engu máli hvort við hitt- umst oft eða sjaldan það hrökkva Margrét Sigríður Árnadóttir ✝ Margrét Sigríð-ur Árnadóttir fæddist í Garði í Kelduhverfi í N- Þingeyjarsýslu 9. janúar 1950. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsa- vík 29. júní 2012. Útför Margrétar var gerð frá Húsa- víkurkirkju 9. júlí 2012. allar í sama gírinn, þar sem vinátta gleði og virðing er númer eitt. Ein í hópnum var Margrét S. Árna- dóttir ættuð frá Húsavík. Það tóku allir eftir þar sem hún fór bein í baki gjarnan með aðra hendi í vasa ljós- hærð og með kinna- lit. Og þegar hún hóf upp raustina með sínum djúpu, hæga, eilítið hása talanda hlustuðum við allar. Það var stutt í kímnina hjá Möggu hún var hnyttin í svörum og gat kastað fram stöku ef sá gáll- inn var á henni enda átti hún ættir að rekja til skálda og listamanna sem fylgja íslenskri þjóð um aldur og ævi. Okkur sem bjuggum við hliðina á henni á heimavistinni er minn- isstætt þegar við hinar vorum að lesa undir próf, átti Magga til að henda öllu út úr herberginu sínu og gerði hreint. Prófin stóðst hún með prýði. Magga var ekkert á því að feta troðnar slóðir heldur fór þær leiðir sem andinn blés henni, þá var ekki endilega spurt hvort gatan væri greiðfær eða ekki. Við minnumst Möggu með hlýju og virðingu um leið og við vottum Hönnu dóttur hennar okk- ar dýpstu samúð. Fyrir hönd skólasystra í E- holli, Anna S. Óskarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.