Morgunblaðið - 30.07.2012, Side 12

Morgunblaðið - 30.07.2012, Side 12
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Stokkur Software er að gera spenn- andi hluti í þróun snjallsímaforrita. Fyrirtækið er ungt og hófst starf- semin ekki fyrir alvöru fyrr en síð- asta sumar. Viðtökurnar hafa hins vegar verið mjög góðar, verkefnin streyma inn og starfsmannahóp- urinn vex hratt. Helgi Pjetur Jóhannsson er hönnuður og einn af eigendum fyr- irtækisins. „Þeg- ar allt er talið er- um við núna búnir að þróa á bilinu 10-12 „öpp“. Sum þeirra er- um við að gefa út á eigin vegum en flest eru snjallsímalausnir þróaðar fyrir íslensk fyrirtæki,“ segir Helgi en meðal sköpunarverka Stokks má nefna snjallsímaforrit Póstsins, Neyðarlínunnar og N1 bensín- stöðvanna, bílastæðaforritið Leggja og pöntunarforrit fyrir Domino‘s. Sáu möguleikana og söðluðu um Meðeigendur Helga eru Hreinn Gústavsson og Vernharður Reynir Sigurðsson en leiðir þremenning- anna lágu saman þegar þeir unnu hjá fjarskiptafyrirtæki. „Þar þróuðum við saman Leggja appið sem hliðar- verkefni og sáum þá svart á hvítu hvað lausnin var að reynast vel. Við sáum þarna spennandi möguleika og úr varð að við ákváðum að láta slag standa, sögðum upp og fórum af full- um krafti í app-framleiðslu.“ Helgi segir íslensk fyrirtæki og stofnanir nokkuð á eftir nágranna- þjóðunum þegar kemur að þróun og notkun snjallsímaforrita. Skýringa sé m.a. að leita í því að Ísland var lengi að taka upp 3G-tækni; var næstsíðasta Evrópulandið þar sem neytendum var boðið 3G samband. „Efnahagsástandið og stærð mark- aðarins skýrir þetta líka að nokkru leyti. Þróun snjallsímaforrita getur verið dýr, sérstaklega þegar verðið er sett í samhengi við lágan íbúa- fjölda landsins, og síðustu árin hafa fá fyrirtæki haft aflögu þann pening sem leggja þarf í verkefni af þessum toga.“ Virðisaukandi tækni Ef vel tekst til getur snjallsíma- forrit orðið mjög mikilvæg viðbót við rekstur fyrirtækis. Helgi segir samt enga töfralausn að láta búa til „app“, og verður að gæta þess að þjónustan sem verið er að setja í farsíma við- skiptavina sé virðisaukandi fyrir not- andann. „Það vakti mikla athygli þegar N1-appið kom á markaðinn, forritið var mikið auglýst og hlaut góðar viðtökur. Þar var fyrirtækið líka að bjóða neytendum nýja þjón- ustu s.s. að borga fyrir eldsneytið í gegnum símann. Í kjölfarið varð ákveðin vakning meðal markaðsfólks sem fór að sjá ný tækifæri fyrir fyr- irtæki sín á þessum nýja markaði.“ Mikil verðmæti geta falist í því að komast að á snjallsímaskjáum við- skiptavina. „Símarnir eru mjög per- sónulegt tæki sem fólk er með við höndina öllum stundum. Að vera með vörumerki fyrirtækisins á heimaskjánum er því mjög mikils virði.“ Íslensk fyrirtæki virðast núna far- in að sýna snjallsímaforritum mikinn áhuga og hefur Stokkur þurft að bæta við sig starfsfólki. „Við erum í dag með fimm stöðugildi hjá fyrir- tækinu og auglýstum nýverið eftir þremur starfsmönnum til viðbótar,“ segir Helgi og bætir við að það sé hægara sagt en gert að finna á Ís- landi fólk með réttu menntunina og reynsluna fyrir app-smíði. „Við þurf- um samt að stækka til að mæta aukinni eftirspurn.“ Verðmætir fersenti- metrar á símaskjáum  Íslensk fyrirtæki taka við sér í notkun „app“ tækninnar  Stokkur bætir við starfsmönnum til að anna eftirspurn Helgi Pjetur Jóhannsson Úrval Nokkur af sköpunarverkum Stokks. Ef vel tekst til getur snjallsíma- forrit orðið mikil lyftistöng fyrir fyrirtæki og stofnanir. 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012 Sólskálar -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Spennandi dómsmál er framundan í Kaliforníu en á mánudag mun dómstóll þar taka fyrir deilu tækni- risanna Apple og Samsung. Um er að ræða eitt stærsta einkaleyfamál tæknigeirans til þessa og seg- ir Reuters að niðurstaðan geti breytt ásýnd markaðarins. Báðir aðilar málsins fara fram á skaðabætur frá hinum. Falli úrskurðurinn Apple í hag gæti Sam- sung séð fram á að vera óheimilt að selja Galaxy spjaldtölvur og snjallsíma á Bandaríkjamarkaði. Hvað Apple varðar yrði dómsmálið mikilvægur prófsteinn fyrir þá hertækni alþjóðlegra einkaleyfa sem fyrirtækið hefur beitt til þessa. Bolabrögð og svindl Samsung er í dag stærsti framleiðandi snjallsíma í heiminum en til samans framleiða Apple og Sam- sung helming allra snjallsíma sem seldir eru. Fyrir ári kærði Apple Samsung og sakaði um að hafa ap- að eftir hönnuninni á iPhone og iPad. Samsung kærði Apple á móti og hefur slagurinn breiðst út til dómstóla í tólf löndum. Samsung sakar Apple um að beita bolabrögðum til að brjóta samkeppni á bak aftur, minnka val neytenda og draga úr nýsköpun og þróun. Apple fer fram á 2,53 milljarða dala í skaðabætur en upphæðin gæti orðið þrisvar sinnum hærri ef dómarinn í málinu kemst að þeirri niðurstöðu að Samsung hafi brotið á einkaleyfum Apple af ásetningi. Hafi Samsung sigur gæti það þýtt að iPhone sím- inn ætti undir högg að sækja á Bandaríkjamarkaði en nýjasti Samsung Galaxy S III síminn þykir vera tæknilega fremri nýja iPhone 4S símanum. Aðrir tæknirisar hafa dregist inn í málið og hafa Microsoft, IBM, Nokia og Research in Motion m.a. þurft að fá lögmenn sína til að koma í veg fyrir að einkaleyfasamningar þeirra verði gerðir opinberir í réttarhöldunum. Stjórnendur Apple og Samsung áttu sáttafund 16. júlí en talið er ólíklegt að samkomulag náist áður en dómarinn kveður upp úrskurð sinn. ai@mbl.is Apple og Samsung fara í hart fyrir dómstólum  Útkoman gæti mótað ásýnd tæknigeirans AFP Græjur Stjórnandi farsímasviðs Samsung, J. K. Shin, sýnir nýja síma í byrjun árs. Apple er ekki skemmt. Eitt af þeim snjallsímaforritum sem Stokkur gefur út á eigin vegum er leiðsöguforritið Be Iceland. Helgi segir forritinu ætlað að vera aðalhjálpartæki ferðalanga á ferð sinni um Ís- land en appið inniheldur m.a. upplýsingar um áhugaverða áfangastaði og handhægt gagn- virkt kort yfir hótel og veitinga- staði. Seljendur vöru og þjón- ustu greiða hóflegt árgjald fyrir að koma fram í forritinu. „Þetta forrit er mest sótta appið okkar til þessa. Við erum þarna að auðvelda fyrirtækjum að nálgast ferðamenn í gegnum snjallsím- ann, án þess að leggja út fyrir þróunarkostnaðinum við sjálf- stætt snjallsímaforrit. Um leið erum við að hjálpa ferðalöngum sem í auknum mæli stóla á snjallsímann þegar ferðast er. Ég sjálfur læt það oft vera mitt fyrsta verk þegar lagt er af stað í borgarferð að slá nafn borgar- innar inn í leitarvél app- verslunarinnar og sjá hvaða gagnlegu forrit, leiðsögubækur og kort koma í ljós.“ Snjallsíminn löngu orðinn ómissandi ferðafélagi ÞRÓUÐU VINSÆLT FORRIT HANDA FERÐALÖNGUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.