Morgunblaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.07.2012, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kúgararnireru marg-víslegir en eiga um leið margt sameiginlegt. Eitt af því er andúð á menningarverð- mætum sem gætu truflað kennisetningar þeirra og ein- dreginn fjandskapur við trúarbrögð önnur en þeirra eigin. Dæmi um þetta sást í Afg- anistan fyrir rúmum áratug þegar talíbanar eyðilögðu tvö risavaxin búddalíkneski sem þeir töldu fara illa saman við það kúgunarsamfélag sem þeir lögðu allt kapp á að við- halda. Þeir hafa þurft að láta undan síga gagnvart öflugum herjum Vesturlanda, en bíða eftir að geta hafist aftur handa við að þvinga hug- myndir sínar um þjóðfélagið upp á íbúa landsins. Fjölmörg dæmi eru líka frá fyrri hluta liðinnar aldar þeg- ar byltingarmenn í Sovétríkj- unum ruddu sér til rúms og kirkjur voru eyðilagðar eða teknar til annarra nota. Þá kröfðust kennisetningar kommúnista þess að trúar- brögð almennings vikju enda mátti ekkert ljós skína í því myrkri sem átti að innleiða. Enn hafa kúgararnir endur- tekið ódæðisverkin, nú meðal annars í því fjarlæga landi Malí í vesturhluta Afríku. Landið er svo að segja stjórn- laust eftir að stríðsmenn Túa- rega komu til baka frá Líbíu eftir fall Gaddafís og hófu bar- áttu fyrir aðskilnaði norður- hluta landsins, heittrúaðir ísl- amistar börðust á sömu slóðum fyrir sjaría lögum og herinn gerði valdarán til að takast á við uppreisnar- mennina. Völd stjórnarinnar í suður- hluta landsins, sem er á veg- um hersins, ná ekki langt norður, en þar hafa íslam- istarnir náð völd- um og hafa meðal annars lagt undir sig borgina Tim- búktú, sem hefur að geyma einhver merkustu menningar- verðmæti álfunnar. Íslamistarnir sem vilja kúga borgarana með sjaría lögum hafa ráðist á aldagaml- ar moskur í borginni sem þeir telja að ógni þeirri útgáfu ísl- am sem þeir aðhyllast. Í borg- inni eru einnig forn handrit og önnur menningarverðmæti sem nú eru í hættu vegna kúg- aranna sem vilja beygja íbúa Malí undir vald sitt. Fyrir almenning í löndum sem lenda í klóm kúgara skiptir litlu hvort þeir segjast kúga í nafni kommúnisma, nasisma eða íslamisma svo dæmi séu nefnd. Vissulega kann að vera nokkur blæ- brigðamunur á kennisetn- ingum kúgaranna en afleið- ingin er ávallt sú að einstaklingurinn er einskis metinn og frelsi hans til at- hafna eða skoðana hverfur hratt og örugglega þegar kúg- ararnir ná völdum. Malí er ekki langt frá þeim löndum þar sem rætt var um að arabíska vorið hefði hafið innreið sína og hræringarnar þar eiga raunar sinn þátt í stjórnleysinu í Malí. Ekki er enn ljóst hvernig arabíska vorinu lýkur þó að víða þykist menn frekar sjá glitta í íslamskan vetur. Von- andi verður almenningi í arabaheiminum forðað frá þeim örlögum sem víðast. Litla dæmið frá Timbúktú sýnir glöggt hve áríðandi er að menn af því tagi sem þar hafa náð tökum fái hvorki notið þeirra þar né annars staðar. Almenningur hefur í gegnum tíðina mátt þola kúgun í nafni ólíkra kennisetninga} Kúgararnir Ekki aðeins al-menningur krefst skýringa á meðferð á máli Huangs Nubos og áforma hans um að ná yfirráðum yfir miklu landsvæði hér á landi. Nú hafa ráðherrar og þingmenn bæst í hópinn. Spjótin beinast einkum að Steingrími J. Sig- fússyni, formanni VG, sem virðist eina ferðina enn ganga erinda samstarfsflokksins. Enn einu sinni gerist það líka að reynt er að afgreiða stórmál með vafasömum krókaleiðum á bak við luktar dyr. Framvinda málsins er jafn ógagnsæ og margra annarra mála sem varða ríka hagsmuni allra Íslendinga. Forystumenn ríkisstjórn- arinnar geta ekki leyft sér að halda áfram að reka málið með þessum hætti. Mál af þessu tagi er ekki hægt að leysa með pukri og undir- málum. Koma þarf hreint fram og gæta hagsmuna ís- lensku þjóðarinnar. Hvort tveggja virðist þess- um forystumönnum um megn. Þola áform kín- verska fjárfestisins ekki dagsljósið?} Pukur forystumannanna STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Guðm. Sv. Hermannsson gummi@mbl.is B aráttan um gullið er hafin á ólympíuleikunum í Lundúnum og verður án efa hörð næsta hálfa mánuðinn. En baráttan um gullið utan leikvangsins verður ekki síður hörð og margir hugsa sér gott til glóðarinnar að selja vörur, þjónustu, minjagripi og annan varn- ing tengdan leikunum. Alls eru um 10 þúsund tegundir af opinberum minjagripum til sölu í tengslum við leikana í Lundúnum og er það að sögn mesta úrval, sem um getur í sögu þessa íþróttaviðburðar. Skipulagsnefnd ólympíuleikanna áætlar að minjagripir seljist fyrir rúmlega 1 milljarð punda, jafnvirði nærri 200 milljarða króna og hreinn hagnaður af þessari minjagripasölu verði um 80 milljónir punda, jafnvirði um 15,5 milljarða króna. En markaðsfræðingar lýsa efa- semdum. Bandaríska blaðið Wall Street Journal vitnar í markaðs- rannsóknafyrirtækið Verdict Re- search, sem telur að velta minja- gripasölu í tengslum við leikana verði aðeins um 100 milljónir punda. Bangsar og geimverur Skipulagsnefndin, sem gengur und- ir heitinu Locog, hefur látið framleiða margskonar minjagripi, þar á meðal bangsa, sem kosta jafnvirði 25 þúsund króna, sængurver og handklæði með breska fánanum, fjórar tegundir af gúmmíöndum, hnífapör, grillhanska og regnhlífar. Að ógleymdu merki ólympíuleikanna í Lundúnum og Wenlock og Mandeville, opinberum lukkudýrum leikanna, sem minna einna helst á eineygðar geimverur. Wall Street Journal hefur eftir verslunareigendum í Oxfordstræti, að sala á ólympíuminjagripum hafi farið afar hægt af stað. „Það er allt svo dýrt, hvers vegna ættu ferðamenn að kaupa þetta?“ spyr kaupmaðurinn Paygar Sediqi. Margir þeirra, sem selja ólympíu- varning á netinu höfðu þegar í síðustu viku lækkað verðið um allt að helming þótt leikarnir væru ekki enn hafnir. Greiða offjár Fjölmörg stór alþjóðleg fyrirtæki greiða offjár fyrir að vera opinberir styrktaraðilar ólympíuleikanna. Áætl- að er að umrædd fyrirtæki greiði sam- tals um milljarð punda fyrir þessi forréttindi. Alþjóðaólympíunefndin hefur grip- ið til umfangsmikilla ráðstafana til að tryggja hagsmuni þessara fyrirtækja og koma í veg fyrir að önnur fyrirtæki geti auglýst vörur sínar í tengslum við ólympíuleikana. En keppinautarnir hafa fundið leið- ir fram hjá þessu. Sumir hafa m.a. ný- lega farið í auglýsingaherferðir með tengingu við íþróttir og þannig óbeint við ólympíuleikana. Breska blaðið In- dependent vísar m.a. til þess, að skyndibitakeðjan Subway hafi notað fjóra breska íþróttamenn í auglýs- ingum undir yfirskriftinni: Æfið mik- ið. Borðið ferskt. Í Bretlandi er Subway einn af helstu keppinautum McDonald’s skyndibitakeðjunnar sem er í hópi opinberra styrktaraðila leikanna. Auglýsingabrellur Þá hafa keppendur stundum tekið þátt í auglýsingabrellum. Á ólympíu- leikunum í Atlanta árið 1996 mátti t.d. bara nota íþróttavörur frá Reebok. Breski spretthlauparinn Linford Christie mætti hins vegar á blaða- mannafund með linsur merktar íþróttavöruframleiðandanum Puma. Nú er boðað, að íþróttamenn, sem reyna að snúa á auglýsingareglurnar á ólympíusvæðinu verði látnir greiða háar sektir. Barátta um gullið ut- an ÓL-leikvangsins Morgunblaðið/Golli Minjagripir Gestir á ólympíuleikunum skoða minjagripi tengda leikunum. Alþjóða knattspyrnusambandið sektaði nýlega danska knatt- spyrnumanninn Nicklas Bendt- ner um jafnvirði 15 milljóna króna fyrir „umsátursauglýs- ingu“ á Evrópumótinu í knatt- spyrnu í sumar. Bendtner lét þá skína í nærbuxur, merktar írska veðbankanum Paddy’s Power. Alþjóðaólympíunefndin ætlar að sögn AFP fréttastofunnar ekki að láta skoða nærföt kepp- enda á ólympíuleikunum í Lund- únum til að ganga úr skugga um að þar séu ekki að finna auglýs- ingar frá fyrirtækjum ótengdum leikunum. Nærfötin ekki skoðuð AUGLÝSINGASTRÍÐ Lukkudýr Lukkudýrið Wenlock fær óáreitt að auglýsa Lundúnaborg. Í fyrradag voru 110 ár liðin frá fæðingu austurríska heimspekingsins Karls R. Popper. Á morgun verða svo 100 ár lið- in frá fæðingu bandaríska Nóbels- verðlaunahafans í hagfræði, Miltons Friedmans. Friedman var einhver skarpasti og áhrifa- mesti fræðimaður á sviði peningamálastefnu, en Popper var áhrifamesti vísindaheimspekingur síðustu aldar og höfundur rita um stjórn- málaheimspeki sem m.a. veittu söguhyggju marxismans náðarhöggið. Þessir hugsuðir voru báðir frjálshyggjumenn og tveir af stofnendum Mont Pèlerin Society. Þegar vinsældir frjálshyggjunnar stóðu hvað hæst, komust til valda stjórnmálaleiðtogar á borð við Margaret Thatcher og Ronald Reagan. Í kjölfarið hrundi kommúnisminn í Sovétríkj- unum og Austur-Evrópu með þeim eftirmælum að sú al- ræðisstefna hefði á 20. öld kostað a.m.k. 100 milljónir sak- lausra borgara lífið. Kommúnisminn er því dauður sem stjórnspekikenning. En skyldi frjálshyggjan líka vera dauð? Popper, Friedman og frjálshyggjunni hefur að sjálfsögðu verið andmælt á ýmsa vegu. En í allri þeirri gagnrýni er ís- lenski vinstri hælkrókurinn svolítið sér á parti svo ekki sé meira sagt: Á haustdögum 2008 fékk sú frumlega kenning byr undir báða vængi hér á landi, að gjaldþrot þriggja ís- lenskra banka hefði afsannað frjálshyggju í eitt skipti fyrir öll. Að vísu hafa bankar um víða veröld verið að fara á haus- inn frá örófi alda án þess að frjálshyggju sé þar sérstaklega getið. Ég hef þess vegna aldrei skil- ið vinsældir þeirrar kenningar að fíflagangur í þremur íslenskum bönkum hafi náð að gera út af við frjálshyggjuna. Sennilegasta skýringin á því að fólk kaupir svona þvætting er líklega sú að þeir sem verða fyrir eldingunni hugsa ekki skýrt um þrumuveður fyrsta kastið á eftir. Þetta vissu vinstri púkarnir sem reyna enn að halda við heilahristingnum með innantómri slagorðasíbylju um „arkitekta hrunsins“ og „frjálshyggjupostula“. En þegar ringlandinn fer að rjátlast af mönn- um ætti þeim þó að verða smám saman ljóst að það var ekki frjálshyggja – heldur þvert á móti, skortur á frjálshyggju og ábyrgð – sem settu ís- lensku bankana á hausinn. Sama er að segja um hrunadansinn í Evrópu sem nú stendur hvað hæst. Það segir sig sjálft að ef bankastjórnendur komast upp með það að fara með sparifé fólks í spilavítin til að græða sjálfir – og tapa á kostnað almennings – þá gera þeir það. Ríkisábyrgð á bankainnistæðum er því ávísun á gegnd- arlausa áhættu og óábyrga bankastjórnun. Í Evrópu sitja sömu, óhæfu bankastjórarnir og fitna á sömu fjósbitunum, á meðan heilu þjóðirnar eru hnepptar í skuldaþræladóm bankaábyrgðar ESB. Þetta er ekki frjálshyggja, né rétt- læti, né ábyrg stjórnmálastefna. Þetta er Evrópusósíalismi Jóhönnu og Steingríms. Hann kemur auðvitað skýrast fram í afstöðu þeirra til Icesave og þráhyggjunni um að koma okkur inn í brunarústir ESB. kjartangunnar@mbl.is Kjartan G. Kjartansson Pistill Popper, Friedman og frjálshyggja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.