Morgunblaðið - 30.07.2012, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.07.2012, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Oft er gott sem aldnir kveða. Haldið ró og reynið að vinna skipulega því þannig nýtist tíminn ykkur best. 20. apríl - 20. maí  Naut Vinur mun veita þér holl ráð í dag og eins gætir þú gefið góð ráð. Kannski með því að hafa eina eða tvær hugmyndir um hvað þig langar til að gera. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vertu vakandi fyrir tækifærum til að koma þér á framfæri við yfirmenn þína og aðra sem geta haft áhrif á starfsframa þinn. Svartsýni er skammsýnt viðhorf til lífs- ins. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér hefur tekist að verða hluti af að- stæðum sem þig dreymdi mikið um að kom- ast í. Láttu aðra ekki hafa áhrif á ákvarðanir þínar í þessum efnum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ekki flokka eitthvað flókið í bara svart og hvítt. Reyndu að líta þannig á að þú hafir fæðst fimmtíu árum fyrir tímann og því sé ekki von þótt fólk skilji þig ekki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur nóg að gera í félagslífinu og nýtur þess að eiga góða vini. Að lesa og hlusta á hvetjandi verk verður bráðnauðsyn- legt þroska þínum í næstu viku. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú kannt að halda að það sé jákvætt að hrífast af tiltekinni hugmynd í dag. Dagurinn í dag er tilvalinn til þess að horfast í augu við eitthvað sem þú telur að verði óskemmtilegt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Næstu vikur bera með sér glaum og gleði, áhyggjuleysi, ævintýri og rómantík. Brjóttu upp gráma hversdagsins og settu lit á dag þinna nánustu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Viðleitni þín til þess að fram- kvæma eitthvað í hópi eða samstarfi við aðra verður stöðvuð tímabundið. Bíddu með innkaup til morguns og notaðu daginn þess í stað til samvista við fólk. 22. des. - 19. janúar Steingeit Öll umræða þín við vini reynist erfið í dag. Ekki fallast á nokkurn hlut í dag og ekki skrifa undir samninga. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sumum finnst þeir þurfa að fegra hlutina en það á ekki við um þig. Núna er þér óhætt að ráðgera stutt ferðalög og frí. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ættir að gefa þér tíma til þess að beita fortölum frekar en beinum skipunum. Taktu þér hlé og skipuleggðu málin upp á nýtt frá a til ö. V. St. skrifar um ráðstjórnar-afmælið í Lesbók Morgunblaðsins 20. nóv. 1927, þar sem er að finna þessa klausu, sem ég vitnaði til í síðasta Vísnahorni: „Þegar brydda tók á bolsahreyfing- unni nyrðra, hraut hagyrðingi einum þessi staka af munni: Upp er skorið engu sáð, allt er í vargaginum. Þeir, sem aldrei þekktu ráð, þeir eiga að bjarga hinum.“ Brynjólfur Steingrímsson sendi mér netpóst af þessu tilefni með svohljóð- andi athugasemd: „Þessi vísa er eftir afa minn Egil á Húsavík og Friðrik á Halldórsstöðum og er ein af kerskn- isvísum þeirra félaga og frænda, sem þeir gerðu um sveitunga sína á ung- lingsárum. Ég hef aldrei heyrt það að þessi vísa sé gerð af póltískum ástæðum.“ Nauðsynlegt er, að þessi athuga- semd komi fram, en breytir ekki hinu, að vísan hafði sterka pólitíska skír- skotun á sínum tíma. Vísan hefur verið öðrum eignuð en þeim félögum, svo að mér þykir rétt að vitna í grein Bjartmars Guðmunds- sonar á Sandi í Morgunblaðinu 27. júní 1973: „Staka þessi er eftir Egil Jónasson, sem heima átti í Hraunkoti í Aðaldal, þegar hún varð til, og Friðrik Jónsson póst og bónda á Helgastöðum. Þetta er einhver allra fyrsta fer- henda, sem á flot fór eftir Egil. En Friðrik var þá alkunnur hagyrðingur í Þingeyjarsýslu. Mun seinni helming- urinn hafa orðið til á undan hinum. Vísan þótti vel gerð og fór strax víða og lærði ég hana einhvern tíma á ár- unum kringum 1920. Enginn getur víst sagt um, hvernig eignarrétti þeirra fé- laga að þessari sameign var háttað. Samt tel ég líklegt, að Friðrik hafi átt öllu meira af efniviðnum. En hand- bragðið gaf vísunni vængi meira en efnið, og þó hvort tveggja. Hún varð mér sérstaklega minnisstæð vegna þess, að hún var ein sú allra fyrsta, sem frá Agli fór út fyrir heimabyggðir.“ Enn skrifar Bjartmar: „Ekki verður sagt að miklu muni á orðunum „illa sáð“, „aldrei sáð“ og „engu sáð“. Samt ber rétta orðið af hinum. Og oftast er það svo, að hárs- breiddin ein skilur á milli feigs og ófeigs á sviði orðlistarinnar. Vel er að þetta tækifæri hefur gefist til að koma því rétta um þetta á fram- færi. Stundum hafa Agli Jónassyni ver- ið eignaðar vísur, sem hann ekki á. Í annan stað er þetta ekki í fyrsta skipti, sem öðrum hefur verið eignað það sem hans er. Jafnvel hefur komið fyrir að einhver og einhver hefur í ógáti eignað sjálfum sér vísu eftir hann, þótt undar- legt megi teljast. Einu sinni sagði hann líka: Léttu blaðri lokið er, ljóðaþvaðrið dvínar, hinir og aðrir eigna sér ígangs fjaðrir mínar." Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Upp er skorið, engu sáð G æ sa m a m m a o g G rí m u r G re tt ir S m á fó lk H ró lf u r h ræ ð ile g i F er d in a n d TILGANGUR LÍFSINS ER FEGURÐ! ÉG ÞARF AÐ FINNA LÍFI MÍNU NÝJAN TILGANG LYFTU HÖKUNNI KALLI ÉG ÆTLA AÐ KÍTLA ÞIG MEÐ FÍFLI OG EF ÞÚ VERÐUR GULUR Á HÖKUNNI ÞÁ FINNST ÞÉR SMJÖR GOTT KRAKKAR, KALLA FINNST SMJÖR GOTT! ÆTLI DÁLÆTI MITT Á SMJÖRI HJÁLPI OKKUR AÐ VINNA LEIKI? HVAÐ ER ÞETTA? ÞETTA ER STEIKT EGGALDIN UH... VONANDI SPYR HANN MIG EKKI HVAR EGGIN SÉU ÉG VEIT HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ ÞÚ ERT MEÐ GRÍMS-LEAKS SKRÁ UM KÖTU. HÚN SEM ER SVO YNDÆL OG GÓÐ. SVO HÆTTI HÚN LÍKA MEÐ MYNDA- SÖGUSERÍUNA SÍNA Í FYRRA EN HANA LANGAÐI AÐ BREYTA ÍMYNDINNI SINNI Í EITTHVAÐ FULLORÐINSLEGRA. SKIPTI MEIRA AÐ SEGJA UM NAFN OG ALLT ...SMILEY VIRUS Í HVAÐ BREYTTI HÚN NAFNINU SÍNU EIGINLEGA? Víkverji er miðbæjarrotta. Þó ekki(lengur) í þeim skilningi að hann búi og eyði öllum vökustundum í mið- bænum að eltast við lattebolla og listasýningar heldur að hjarta hans slær í takt við miðborgarsvæðið og klukkuna í Hallgrímskirkju. Ófáum stundum hefur Víkverji varið í að mæla götur miðborgarinnar og telur hann sig þekkja nokkurn veginn hvern krók og kima í borginni og margt hefur vakið áhuga hans í borg- arskipulaginu síðustu misserin. x x x Víkverji fagnaði því þegar húsin áhorni Lækjargötu og Austur- strætis voru reist í sem næst upp- haflegri mynd. Hann gladdist líka þegar Harpa reis og Melabandið breyttist í Bryggjubandið þegar það fékk loksins sómasamlega aðstöðu. Það gladdi líka þegar Laugaveginum var lokað fyrir bílaumferð að litlu leyti. Þessi atriði voru vel til þess fall- in að auka breidd og bæta menningar- og mannlíf í miðborginni. Er það vel. Annað er það sem gert hefur verið og Víkverji á erfiðara með að skilja. Það er hækkun bílastæðagjalda. Vissulega hafa gjöldin staðið í stað í langan tíma og mikið um að fólk leggi langtímunum saman en fleira hlýtur að liggja að baki. x x x Svo virðist vera sem borgaryfirvöldséu blinduð af rómantískri draumsýn um miðborg sem iðar af lífi og allir ganga brosandi og hlæjandi um áður en þeir hoppa upp í næsta al- menningssamgöngutæki sem birtist svo fyrir utan heima hjá þeim í næstu andrá. En þannig er þetta ekki. Til- fellið er að bílastæðum er að fækka og það er að verða erfiðara að fara í miðbæinn á einkabíl. Af því leiðir að fólk mun síður nenna að fara í miðbæ- inn því íslenskt samfélag snýst um einkabílinn. Þetta er því að byrja á vitlausum enda. Réttara væri, að mati Víkverja, að byrja á að efla almenn- ingssamgöngur með það að markmiði að búa til raunhæfan valkost við einkabílinn. Svo mætti fara í aðgerðir til að úthýsa honum úr miðbænum og þá geta öll dýrin í Stórborgarskóg- inum verið vinir og gengið um götur með alls konar fyrir alla. víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: En hann frelsar hinn bágstadda með bágindum hans og opnar eyru þeirra með þrengingunni. (Jb. 36, 15.) samskipti@tonaflod.is | www.tonaflod.is Fyrirtæki með yfir 20 ára reynslu Vantar þig heimasíðu? ...eða er kominn tími til að hressa upp á þá gömlu? Sími 553 0401 Engin útborgun, 0% vextir Bjóðum vaxtalaus lán í allt að 12 mánuði fyrir VISA og Mastercard korthafa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.