Morgunblaðið - 30.07.2012, Side 26
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Halldór Guðmundsson tekur 1.
ágúst formlega við starfi forstjóra
tónlistar- og ráðstefnuhússins
Hörpu. Halldór starfaði lengi sem
útgáfustjóri Máls og menningar og
var framkvæmdastjóri verkefnisins
Sögueyjan Ísland þegar Ísland var
heiðursgestur bókasýningarinnar í
Frankfurt í fyrra. Halldór hefur
jafnframt öðrum verkefnum sinnt
ritstörfum og fékk Íslensku bók-
menntaverðlaunin árið 2004 fyrir
ævisögu Halldórs Laxness.
Hann segir að nýja starfið sem
forstjóri Hörpu leggist vel í sig:
„Það var lokið við þetta hús eftir
hrun, þvert kannski á það sem nokk-
ur maður bjóst við. Það fannst mér
afar framsýn ákvörðun því annars
hefði það staðið sem eilíft minnis-
merki um hrunið og aðdraganda
þess. Ég man að þýska sjónvarpið
var hér í heimsókn vorið 2009 og
hugðist mynda Hörpu með svipuðu
hugarfari og dómkirkjuna í Köln,
sem tók 800 ár að klára. Sömu menn
voru standandi hissa þegar þeir
komu hér í fyrra. Þrátt fyrir ýmsar
efasemdir meðan á byggingunni
stóð, og þær ofur skiljanlegar, hafa
Íslendingar tekið þessu húsi fagn-
andi. Það er rúmt ár síðan rekstur
þess hófst og á fyrsta starfsári kom
milljón manns í húsið og næstum því
öll þjóðin, eða 250.000 manns, hefur
komið hingað á tónleika.“
Er rekstur þessa húss ekki
óhemju erfiður?
„Jú auðvitað, eins og allt sem snýr
að menningu er reksturinn enginn
gullgröftur. En byrjunarárið er að
baki, og þar unnu starfsfólk og
stjórnendur afrek eins og aðsóknin
sýnir. Nú þarf að festa þennan
árangur í sessi og jafnframt að
skerpa reksturinn og einfalda
stjórnkerfið. Varðandi reksturinn er
ég sannfærður um að það sé hægt að
sækja fram og auka tekjur á sviði
ráðstefnuhalds og viðburða en tel
ekki rétt að leggja meiri álögur á
tónlistarmenn og þeirra gesti. Verk-
efni mitt og starfsfólks hússins á
næstu vikum og mánuðum verður að
móta stefnu til lengri tíma og reyna,
ásamt eigendum, sem eru ríki og
borg fyrir hönd þjóðarinnar, að
tryggja rekstrargrundvöll þess til
frambúðar. Rekstur tónlistar- og
ráðstefnuhúss getur vel staðið undir
sér, held ég, en hann getur ekki
staðið undir öllum kostnaðinum við
fasteignina sjálfa. Hér þarf að finna
góða lausn þegar langtímaáætlun
liggur fyrir. En það má heldur aldrei
gleyma því að svona hús skilar mikl-
um óbeinum tekjum til samfélags-
ins. Mér er sagt að óperuhúsið í
Sydney sé enn rekið með tapi, en
það er löngu orðið tákn borgarinnar
og dregur að ótölulegan fjölda ferða-
manna.
En mestu skiptir að almenningi
finnist hann alltaf velkominn í þetta
hús, enda var það hann sem byggði
það. Það stendur til að auka starf-
semina hér í húsinu. Hér eru ekki
bara fjórir tónleikasalir heldur einn-
ig stórkostlega falleg opin rými sem
hægt er að nýta enn meir en gert
hefur verið og þar er tilvalið að hafa
alls kyns uppákomur. Þetta á að
vera gott hús og klassi yfir því en
Hús margs
konar
tónlistar
Halldór Guðmundsson er forstjóri Hörpu
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 2012
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Ég hafði lengi vitað að ég gæti
þetta. Í rúm 20 ár hef ég starfað í
leikskóla og þar hef ég oft og tíðum
verið að spinna upp sögur, bæði
sjálf og með börnunum. Faðir minn
heitinn spurði mig oft út í það hve-
nær ég ætlaði að byrja að skrifa, og
fullvissaði mig um það að ég gæti
vel skrifað. Stuttu eftir að hann var
jarðaður í fyrrahaust skaut þessu
niður í kollinn á mér að nú væri tím-
inn kominn. Þá settist ég niður og
skrifaði fimm sögur,“ segir Dag-
björt Ásgeirsdóttir. Hún gaf nýver-
ið út barnabók sem nefnist Gummi
fer á veiðar með afa, en það mun
vera fyrsta bók Dagbjartar. Bókin
er ætluð börnum á aldrinum 4 til 8
ára en Dagbjört segir hana henta
bæði eldri og yngri börnum. Karl
Jóhann Jónsson myndskreytti bók-
ina.
Yrðlingar sem gæludýr
„Sögusviðið er Vestfirðir en ég er
fæddur og uppalinn Bolvíkingur, og
alin upp með miklar klettaborgir í
kringum mig og þessa vestfirsku
náttúru sem býður upp á tröll og
huldufólk og alls konar verur,“ segir
Dagbjört en því má segja að sögu-
svið bókarinnar sé afar íslenskt að
miklu leyti.
„Afi minn var ein frægasta refa-
skytta á sínum tíma. Við krakkarnir
áttum alltaf yrðlinga á sumrin, og
móðir mín ólst upp við það líka sem
og amma mín en faðir hennar var
Nýr penni í flokki íslens
Ný rödd Gummi fer á veiðar með afa, er fyrsta bók af fimm í barnabókaröð
Dagbjartar um Gumma og yrðlinginn Rebba. Einnig er það fyrsta bók hennar.
Álfar, tröll-
skessur, huldufólk
og aðrar undraver-
ur í barnabókaröð
Dagbjartar
EXPRESS SYSTEM
Sterkar neglur á aðeins 4 vikum