Morgunblaðið - 30.07.2012, Page 32

Morgunblaðið - 30.07.2012, Page 32
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 212. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Hólmfríður Garðabæ til sóma 2. Var hvölunum smalað að landi? 3. Jakob Jóhann biðst afsökunar 4. Sex marka sigur Íslands »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Opnunarmynd Alþjóðlegrar kvik- myndahátíðar í Reykjavík – RIFF verður Queen of Montreuil, nýjasta kvikmynd Sólveigar Anspach. Didda Jónsdóttir og Úlfur sonur hennar leika mæðgin og stela víst senunni. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Drottningin af Mont- reuil setur RIFF  Á morgun verða næstu tónleikar í jazztónleikaröð- inni á KEX Hostel og mun kvartett Andrésar Þórs Gunnlaugssonar spila. Auk hans skipa hljómsveit- ina þeir Agnar Már Magnússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og trommu- leikarinn Scott McLemore. Tónleik- arnir hefjast kl. 21. Kvartett Andrésar Þórs á KEX Hostel  Sigríður Thorlacius syngur dag- skrá með lögum þýska tónskálds- ins Kurt Weill á Café Rosenberg miðvikudaginn 1. ágúst kl. 21. Með henni leikur kvartett skip- aður Kristjáni Karli Bragasyni á píanó, Grími Helgasyni á klarinett, Hafdísi Vigfúsdóttur á flautu og Ástu Maríu Kjartans- dóttur á selló. Sigga syngur Kurt Weill á Rosenberg Á þriðjudag Austan og norðaustan 3-10 m/s. Bjartviðri NV-til á landinu en annars skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Á miðvikudag og fimmtudag Norðaustan og norðan 3-8 m/s, en hæg breytileg átt SV-til. Bjartviðri til landsins. Hiti 6 til 20 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað með suður- og suðausturströndinni og stöku skúrir, víða bjartviðri norðan til. Hiti 10 til 20 stig. VEÐUR Fylkismenn komu í veg fyrir að Stjarnan næði að komast upp að hlið KR í efsta sæti úrvalsdeildar karla í knatt- spyrnu, Pepsi-deildinni, í gærkvöldi þegar þeir jöfn- uðu í þrígang í hörkuleik á Árbæjarvelli, lokatölur 3:3. Breiðablik stöðvaði síðan sigurgöngu ÍBV með eins marks sigri heima og Vals- menn sóttu þrjú stig í greip- ar Selfyssinga sem lengi hafa beðið eftir sigri. »7-8 Fylkismenn jöfn- uðu í þrígang Haraldur Franklín Magnús, GR, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni, urðu í gær Íslandsmeistarar í höggleik í golfi á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór á Strandarvelli við Hellu. Haraldur Franklín er fyrsti kylfingurinn úr GR í 27 ár til þess að verða meistari í högg- leik. Hann varð fyrr í sumar Íslands- meistari í holu- keppni. Valdís varð síðast Íslands- meistari í högg- leik fyrir þremur árum. »4-5 Haraldur og Valdís Þóra Íslandsmeistarar „Fyrsti leikur í stórmóti er alltaf ströggl. Við þuklum á þeim og þeir á okkur. Einnig gerir smá stress vart við sig. Fyrst og fremst er gott að komast í burtu með tvö stig,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, landsliðs- maður í handknattleik, eftir sigur Ís- lands, 31:25, á Argentínu í fyrsta leiknum í handknattleikskeppni Ól- ympíuleikanna í London í gær. »1 „Við þuklum á þeim og þeir á okkur“ ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þó það sé svolítið „útlenskt“ að vakna við bjöllu ísbíls eru ísbílar ekki bara útlenskt fyrirbæri því átta ísbílar eru á ferðinni frá morgni til kvölds um allt land nær allan ársins hring og hefur starfsemin aldrei verið viðameiri en nú. Reksturinn hófst vorið 1994 að danskri fyrirmynd. Einum bíl var ekið um sveitir og sumarhúsasvæði Árnessýslu um sumarið. Ásgeir Baldursson, framkvæmdastjóri Ís- bílaútgerðarinnar ehf., sem rekur Ísbílinn, byrjaði sem sumarstarfs- maður og var síðan sölustjóri í nokkur ár áður en hann keypti fyr- irtækið 2006. Vöxturinn hefur auk- ist frá ári til árs og í vor hófst sala á höfuðborgarsvæðinu. „Við höfum verið að þétta leiðir og erum núna hálfsmánaðarlega um allt land, í hverju plássi og við hvern bæ, nema hvað við erum alla laugardaga á sumrin í stóru orlofsbyggðunum, Miðhúsaskógi, Brekkuskógi og víð- ar á suðvesturhorninu,“ segir hann og bætir við að á veturna sé farið á hvern stað á fjögurra vikna fresti. 100 leiðir um landið Nú starfa 25 manns hjá fyr- irtækinu og er það met. „Við keyrum 100 leiðir,“ segir Ásgeir og bendir á að boðið sé upp á ýmsar gerðir af ís frá Emmessís, Kjörís og Hjem-is í Dan- mörku, sem rekur ísbíla á Norðurlöndunum. Ásgeir segir innflutninginn nauð- synlegan til þess að geta boðið upp á úrval af sykur- lausum ís, mjólkurlausum ís, lífrænum ís og hnetulausum ís fyrir fólk sem má ekki borða ís vegna til dæmis bráðaofnæmis. „Við erum meðal annars með nokkra ísa sem eru framleiddir í hnetulausu umhverfi,“ heldur hann áfram. „Auk þess erum við með ís frá þremur íslenskum ísbændum sem framleiða fyrir okkur undir okkar vörumerki.“ Ásgeir segir að þar sem ísinn sé í mjög miklu frosti þoli hann vel flutning úr ísbílnum í frystikistu kaupanda. Reksturinn gangi al- mennt ágætlega, en þó komi fyrir að ísbíll komi í hverfi þar sem eng- inn virðist vera heima. Töluverð kúnst sé að hlaða bílana þannig að þeir komist hringinn í kringum landið en aukabirgðir séu þá sendar á Egilsstaði og Akureyri. „Það er mikil fjölbreytni hjá okkur og við leggjum mikið á okkur til þess að koma ís inn á hvert heimili lands- ins,“ segir hann. Ísinn keyrður heim að dyrum  Ísbíllinn er reglulega á ferð- inni um allt land Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísbíllinn Átta ísbílar fara 100 leiðir um allt land og stoppa reglulega í sumarbústaðalöndum og í hverjum bæ. Ísbíllinn er á ferðinni frá mán- aðamótunum febrúar-mars og nær til jóla (áætlun á isbill- inn.is). Ásgeir Baldursson segir að það hafi tekið nokk- urn tíma að finna út hvað gengi í þessum atvinnu- rekstri og hvað ekki og ým- islegt hafi komið fyrir. Einn maður sé á hverjum bíl og þeir hafi lent í ófærð og ógöngum. Hann nefnir sem dæmi að eitt sinn hafi nýr starfsmaður verið staddur á Egilsstöðum og treyst alfarið á GPS-leiðsögutæki. Hann hafi stimplað inn fyrsta bæinn og tækið sent hann langleiðina upp á Kárahnjúka. „Það vísaði honum á fjallveg yfir óbrúaðar ár niður Hrafnkelsdal að Aðalbóli í Jökul- dal en hann festist auðvitað í fyrsta skafli og senda þurfti björgunarsveit eftir honum.“ Í ófærð yfir óbrúaðar ár ÍSBÍLLINN Á FERÐINNI NÆR ALLT ÁRIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.