Morgunblaðið - 02.08.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2012
Vörubílastöðin Þróttur býður fjölbreytta þjónustu og ræður
yfir stórum flota atvinnutækja til margvíslegra verka
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
· Fellum tré og fjarlægum garðarúrgang
· Grjóthleðsla með sérhæfðum kranabílum
· Seljum hellusand og útvegum mold
VIÐ ERUM ÖFLUGIR Í SAMSTARFI
VIÐ LÓÐAFRAMKVÆMDIR
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
Fjölskylduhátíðin Álfaborgarsjens
fer fram á Borgarfirði eystra um
helgina. Dagskráin hefst á morgun
og lýkur á sunnudag. Þetta er í 19.
skiptið í röð sem hátíðin er haldin.
Hún hefur haldið velli þrátt fyrir að
hafa eignast litla systur í formi
Bræðslunnar sem nú er vaxin henni
nokkuð yfir höfuð, segir í tilkynn-
ingu.
Að þessu sinni ber hæst á hátíð-
inni hið árlega hagyrðingamót á
föstudagskvöld undir stjórn Freys
Eyjólfssonar útvarpsmanns og
skemmtikrafts, stórdansleik með
hljómsveitinni Nefndinni á laug-
ardagskvöld og rúsínan í pylsuend-
anum verða tónleikar á sunnudags-
kvöld með Jónasi Sigurðssyni auk
Valdimars Guðmundssonar söngv-
ara og gesta.
Á sunnudag kl. 15 mun sveit-
arstjórnin baka pönnukökur við
Lindarbakka fyrir gesti og gang-
andi.
Álfaborgarsjens
haldinn í 19. skipti
Fjölskylduhjálp
Íslands mun út-
hluta reiðhjólum
í dag, fimmtu-
dag, til fólks sem
á þarf að halda.
Úthlutunin verð-
ur milli kl. 13 og
16 í Eskihlíð 2-4 í
Reykjavík. Þetta
eru reiðhjól sem eftir voru þegar
Barnaheill luku hjólaverkefni sínu
1. júlí sl. en þá var úthlutað 80 reið-
hjólum. Gera þurfti við hin hjólin
og tók það lengri tíma en talið var í
upphafi.
Fyrstu vikuna í júlí var úthlutað
60 hjólum á Reykjanesi en þar er
þörfin enn mikil.
Fjölskylduhjálpin
úthlutar reiðhjólum
Laugardaginn 4. ágúst verður Inn-
djúpsdagurinn haldinn annað árið í
röð í Vatnsfirði og Heydal. Um er
að ræða fjölskylduhátíð með mið-
aldaívafi.
Inndjúpsdagurinn er samstarfs-
verkefni fræðimanna sem starfað
hafa við fornleifauppgröft í Vatns-
firði, Ferðaþjónustunnar í Heydal
og Súðavíkurhrepps. Boðið verður
upp á skipulagða leiðsögn, leikrit,
hlaðborð með miðaldaívafi, dansa
frá miðöldum og miðaldaleiki fyrir
börn og unglinga.
Inndjúpsdagurinn
með miðaldaívafi
STUTT
VIÐTAL
Gunnlaugur Árnason
garnason@simnet.is
„Ég blotnaði ungur í fæturna í
Breiðafirði þegar ég var í sveit hjá afa
og ömmu í Skáleyjum. Frá þessum
fyrstu kynnum hef ég haft miklar
taugar hingað vestur,“ segir Þorgeir
Kristófersson sem rekur Ocean Saf-
ari, nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem
tók til starfa í Stykkishólmi í sumar.
Fyrirtækið rekur veitingastaðinn
Sjávarpakkhúsið við hliðina á löndun-
arbryggjunni og býður upp á ævin-
týrasiglingar um Breiðafjörð á hrað-
skreiðum 12 metra löngum bátum
sem eru farnir að sjást á vinsælum
ferðamannastöðum.
Þorgeir og Magnús Tómasson eru
aðalhvatamenn að stofnun
fyrirtækisins.
Fleiri fái að njóta og upplifa
„Fjölskylda mín á orlofshús í
Stykkishólmi og er mér hlýtt til stað-
arins. Stykkishólmur er mikill og vax-
andi ferðamannabær og það hefur
lengi blundað innra með mér að
leggja mitt af mörkum til að auka fjöl-
breytni í ferðaþjónustunni á þessu
svæði,“ segir Þorgeir.
Þegar þeir Magnús hittust í vetur
kom í ljós að þeir höfðu báðir áhuga á
að hefja ferðaþjónustu í Hólminum,
,,enda er stutt í ævintýramennskuna
hjá okkur báðum,“ segir Þorgeir. Þeir
fengu fleiri til liðs við sig og fyrirtæk-
ið varð að veruleika.
Ocean Safari lét í vetur smíða tvo
nýja hraðbáta í Hollandi sem hvor um
sig tekur 12 farþega auk áhafnar.
Einnig keypti fyrirtækið Sjávarpakk-
húsið við höfnina. Það hefur verið
gert upp og rekur Ocean Safari þar
samnefndan matsölustað. Þar eru á
boðstólum afurðir úr Breiðafirðinum.
Þorgeir segir að siglingarnar veki
mikla lukku. „Það er ógleymanleg
ferð að sigla á opnum bátum um eyj-
arnar á Breiðafirði því nálægðin við
náttúruna er mikil og virkar vel á
ferðamanninn. „Mér finnast Breiða-
fjarðareyjar gersemi og með útgerð
bátanna viljum við stuðla að því að
fleiri fái að njóta þeirra og upplifa,“
segir hann.
Skemmtilegt starf
Ocean Safari siglir þrjár ferðir á
dag alla daga vikunnar og tekur hver
ferð um tvær klukkustundir. Auk þess
er boðið upp á sérferðir að óskum við-
skiptamanna. Þorgeir er ánægður
með hversu vel til hefur tekist.
Hann segir það koma sér á óvart
hversu skemmtilegt það er að starfa
við að þjónusta ferðamanninn. „Þetta
er mjög gefandi starf og þegar við-
skiptavinirnir kveðja með brosi á vör
og hlýjum kveðjum erum við sann-
færðir um að við erum að gera góða
hluti.“
Ævintýrasiglingar á nýjum
hraðbátum um eyjarnar
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Kría og Kjói Þorgeir Kristófersson ásamt stjórnendum bátanna, Hafþóri Gunnarssyni og Soffaníasi Rúnarssyni.
Ný ferðaþjónusta í Stykkishólmi Blotnaði ungur í fæturna í Skáleyjum
Brynjar Mett-
inisson, sem setið
hefur í fangelsi í
Taílandi í rúmt
ár vegna gruns
um vörslu fíkni-
efna, var í vik-
unni sýknaður af
ákæru í taí-
lenskum dóm-
stólum.
Fjölskyldu
hans barst í gær bréf frá íslenska
utanríkisráðuneytinu þar sem segir
að taílenska ákæruvaldið hafi mán-
uð til þess að áfrýja dómnum til
æðra dómstóls en ákvörðun um það
hefur ekki verið tekin.
Eva Davíðsdóttir, systir Brynj-
ars, sagði við mbl.is að sýknudóm-
urinn hafi ekki komið fjölskyldunni
á óvart. „Við vissum þetta allan tím-
ann. Við vitum ekki alveg hvað tek-
ur núna við, við höldum að dómnum
hafi verið áfrýjað svo að það líti
ekki eins illa út að saklaus maður
hafi verið látinn sitja í fangelsi í
heilt ár,“ segir Eva. „En ég vissi
alltaf að hann yrði sýknaður, við
vissum það alltaf öll. Við trúðum
því svo heitt.“
Haldið fram sakleysi
Eva segir að þrátt fyrir misþyrm-
ingar í fangelsinu hafi Brynjar
aldrei játað neitt. „Bróðir minn er
saklaus. Hann gerði ekkert af sér.
Hann er sterkur og það var ekki
hægt að fá hann til að játa á sig eitt-
hvað sem hann hafði ekki gert,
þrátt fyrir að hann hafi lifað í hel-
víti í eitt ár. Hann hefur sagt sömu
söguna frá fyrsta degi.“
Móðir þeirra Brynjars og Evu,
Borghildur Antonsdóttir, fer út til
Taílands í ágúst og Eva segist von-
ast til þess að Brynjar verði henni
samferða heim. Borghildur hefur
einungis einu sinni talað við hann í
síma á þessu rúma ári sem liðið er
frá því að hann var settur í fangelsi,
samskiptin við hann hafa farið fram
bréfleiðis.
Eva segir ræðismann Íslands í
Taílandi hafa verið þeim innan
handar allan tímann sem Brynjar
hefur verið í fangelsi. Þá hafi Krist-
ín Árnadóttir, sendiherra Íslands í
Kína, reynst Brynjari vel.
annalilja@mbl.is
Brynjar sýkn-
aður í Taílandi
Brynjar
Mettinisson
Það er margt sem ferðamaðurinn
getur gert sér til skemmtunar á
góðum degi í Hólminum. Tjald-
stæðið með fína aðstöðu, er við
hliðina á 9 holu golfvelli og 25
metra sundlaug með heitum pott-
um er í næsta nágrenni.
Eldfjallasafnið, Norska húsið og
Vatnasafnið eru söfn sem vert er
að heimsækja. Vinsælt er að sigla
með Baldri út í Flatey og fara í
eyjasiglingu með Sæferðum.
Veitingahús bjóða upp á fjöl-
breyttan mat
úr Breiðafirði
og gallerí eru
starfandi.
Gisting er
víða í boði. Í
vor var opnað
nýtt hótel, Hót-
el Egilsen, í
gömlu húsi
sem gert hefur
verið upp til að mæta
nútímakröfum.
Söfn, siglingar og veitingar
FERÐAÞJÓNUSTAN ER MIKILVÆG Í STYKKISHÓLMI
Egilshús Hótel
var opnað í sumar.