Helgafell - 01.12.1954, Side 36

Helgafell - 01.12.1954, Side 36
34 HELGAFELL ir ) fengizt við hina æfintýralegustu þætti nútímalistar. Og þama í norsku deildinni kemur nokkuð, sem styrkir mig í þeirri sannfæringu, að' sérhver þjóð eigi að forðast allan undanslátt frá sínu eigin upplagi, um leið og hún réttilega kynnist af fremsta megni öðrum þjóðum, nálægum sem fjar- lægum, já þarna sér maður Picassó- lærisvein, sem aðeins hefur nasasjón af yfirborði listar hans og hefur út- lagt snilli Vallauris á nokkurskonar Vúlgötu, eins og við sjáum dæmi um hér hjá okkur á Italíu hvert sem litið er, í sveitum ekki síður en í stórbæj- um. Picassó-lærisveinninn heitir Stor- stein. En Fjell er allra geðfelldasti málari og dugmikill, þar er að finna yndis- þokka æfintýranna, norrænu þjóð- sagnanna í dráttum skafheiðrar list- ar. Hann er greinilega mótaður af Ivlimt, en hann kann að tileinka sér þennan lýríka skrautmyndaheim og hefur til allrar hamingju fellt niður hinar altof áberandi bókmenntalegu bakhugsanir, svo að eftir verður hóg- vær þjóðháttalýsing í anda hins gotn- eska blómastíls. All-mikill fyrirferðar er hópur þeirra, sem á árunum 1907 til 1911 gengu í skóla hjá Matisse. En beztu myndirnar þóttu mér vera Dagrenning eftir Lie-Jörgensen og Gamli búgarðurinn eftir Enger, gáfu- lega uppsett mynd. Það, sem náttúrlega yfirskyggir alla þama, er persónuleiki og heims- frægð Edvards Munch, sem við feng- um tækifæri til að dást að á minn- ingarsýningu verka hans á síðustu listsýningunni í Feneyjum. Á yfir- standandi sýningu eru fá verk eftir Munch, en þó nægilega mörg til að undirstrika liið sanna málaraeðli hans, bæði á frumbýlingsárunum, þegar hann var í tengslum við nýróman- tískuna, og eins frá síðari þróunar- ferli hans í byltingarátt. Vetur á jirð- inum er mjög fagurt málverk (minn- umst þess, að það hefur ártalið 1915), og Kragerö-gata, þrem ámm eldra, er kannski ennþá nýtískara í ferskri hitaglóð sinni, sem haldið er í skefj- um með' strengilegri uppbyggingu. Jafnvel í verkum, sem ekki eru eins fullkomlega útfærð, er þó hönd meist- ara að verki; þannig er snjóbreiðan í Hestur á stökki, natura morta á borðinu til liægri handar í Dauði Marats, sambærileg við það bezta eftir De Pisis. En málverkið, sem dýpst áhrif lætur eftir sig þarna, er eitt hinna síðustu eftir málarann: Sjáljsmynd milli klukkunnar og hvíl- unnar (1914), frjálsleg sköpun, djörf uppbygging og litauðgi. Óþarft er að geta þess, að svartmyndir Munchs eru nær allar mjög fallegar, líka þar sem hann minnir á Daumier eða Forain. I svartmyndum má ekki ganga fram hjá Astrup, tréskurð'armeistara meðal hinna fremstu, einkum í draugaleg- um tunglskinssenum, né hinum mjög fínlega eirstungumálara Dahl, sem í Sveit og Snjór í garðinum nær með óviðjafnanlegri leikni alveg sérstök- um blæhrifum. Meðal hinna lítt glæsilegu höggmynda frá Norður- löndunum má þó nefna verk Norð- mannsins Meyer, Móðir og sonur, (tré). Arið 1900 hefur nútímalist göngu sína í Svíþjóð. Það eru Matisse-arn- ir og Césanne-arnir sænsku, sem snúa. þá heim til föðurlandsins, opna sýn- ingu í Stokkhólmi og ganga af þjóð- legu rómantískunni dauðri, enda hún þá löngu komin að fótum fram. Um

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.