Morgunblaðið - 06.12.2012, Side 10

Morgunblaðið - 06.12.2012, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2012 10 Gæludýrahagkerfið í desember SJALDAN SEM HUNDARNIR REYNA AÐ BÍTA Sumir láta hafa mikið fyrir sér Starfsmenn hárgreiðslustofa, tískubúða og matvöruverslana þurfa alla jafna ekki að hafa áhyggjur af að vera bitnir og klóraðir af viðskiptavin- unum. Á dýrasnyrtistofunni er á ýmsu von en þrátt fyrir stöku erfiða viðskiptavini segir Ásta starf dýrasnyrtisins ákaflega skemmtilegt og gefandi. „Það gerist sárasjaldan að hundar reyni að glefsa í snyrtinn og dugar þá yfirleitt að setja á þá múl til að þeir róist. Örfáir skjólstæð- ingar stofunnar eru svo órólegir að það verður að svæfa þá fyrir snyrt- inguna og fáum við þá dýralækni til okkar sem annast svæfinguna,“ út- skýrir hún. „Það er helst að þurfi stundum að hafa mikið fyrir sumum hundunum því þeir eru á hreyfingu og leyfa manni aldeilis að vinna fyrir kaupinu.“ Ásta segir það góða reglu að temja hunda og síðhærða ketti snemma á að heimsækja snyrtistofuna enda stafi óróleiki og árásargirnd yf- irleitt af því að dýrin hafa ekki fengið að venjast þessu umhverfi strax á unga aldri. „Um leið og búið er að klára bólusetningarnar er um að gera að líta inn og koma í einfalda snyrtingu sem hluta af þjálfun og uppeldi dýrsins.“ ALLTAF AÐ LÆRA EITTHVAÐ NÝTT Í STARFINU Þarf langa og mikla þjálfun Ásta María hóf reksturinn í bílskúrnum við heimili sitt. Viðtökurnar voru góðar og jókst starfsemin nokkuð hratt fyrstu árin svo flytja þurfti í stærra húsnæði þar sem snyrtistofan er nú. Dýrasnyrting er ekki lög- gild starfsgrein en engu að síður liggur mikil þjálfun og menntun að baki góðum dýrasnyrti. „Að ná góðum tökum á grunnatriðunum tekur varla nema 12 vikur en það þarf að byggja mikið ofan á þann grunn áður en hægt er að byrja að reka dýrasnyrtistofu. Að ná upp verulegri færni tekur ekki skemmri tíma en ár og síðan er stöðugt hægt að taka framförum í vinnubrögðum og aðferðum. Að miklu leyti byggist hæfni dýrasnyrtisins á langri þjálf- un þar sem smám saman er verið að fínpússa handtökin og fullkomna aðferðirnar.“ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í desember fyllast hárgreiðslustof- urnar af prúðum körlum og konum enda gengur ekki annað en að fagna jólunum fallega klipptur og snyrtur. Eins og Ásta María Guðbergs- dóttir bendir á á það sama við um hundana. „Desember er annasam- asti tími ársins og álagið svipað og í kringum sýningar. Munurinn er bara sá að þegar sýningar eru haldnar er allt á fullu í tvo eða þrjá daga fyrir sýninguna en í desember er allt uppbókað út allan mánuðinn.“ Bæta við fólki í mánuðinum Ásta er annar eigenda dýrasnyrti- stofunnar Dekurdýr á Dalvegi. „Nú þegar eru nærri öll pláss bókuð fram að jólum, fastir starfsmenn þurfa að vinna langa vinnudaga og þegar nær dregur jólum verðum við hreinlega að fá inn aukastarfsfólk á stofuna til að anna eftirspurn,“ segir Ásta og bætir við að reynt sé eftir fremsta megni að koma öllum að sem vantar snyrtingu. Það eru ekki bara reffilegir sýningarhundar með krefjandi feldi sem koma í jólaklippingu. „Þetta eru líka ósköp venjulegir hundar af öllum mögulegum tegundum, eins og t.d. snögghærðir labradorar og pug-hjartaknúsarar sem eru nær sjálfhreinsandi og þurfa varla bað nema á hálfs árs fresti. En eigend- urnir taka eftir því ef hundurinn er búinn að fá bað og snyrtingu og vilja hafa besta vininn ilmandi, glansandi og upp á sitt besta þegar jólin ganga í garð.“ Merkilegt nokk þá stafar álagið í desember nær eingönu af auknum heimsóknum hunda. Kettirnir virð- ast síður þurfa að láta punta sig sérstalega fyrir hátíðina. „Hundar eru í meirihluta yfir árið og í desem- ber hugsa ég að um og yfir 90% gesta snyrtistofunnar séu hundar. Kettirnir koma frekar til okkar jafnt og þétt árið um kring.“ Þó hunda- og kattasnyrting teljist varla til brýnustu útgjalda heimilisins er ekki að greina að við- skiptavinir Dekurdýra hafi haldið mjög að sér höndum í kreppunni. Ásta byrjaði að starfa sem dýra- snyrtir árið 2006 og segir viðskiptin hafa vaxið hægt en örugglega alla tíð síðan. „Niðursveiflan varði ekki nema í 2-3 mánuði strax eftir banka- hrun þegar óróleikinn var hvað mestur, en það gekk fljótt yfir. Nóg er að gera hjá okkur og höfum við meira að segja þurft að fjölga starfsfólki.“ Ásta segist leita ýmissa leiða til að létta gæludýraeigendum út- gjöldin sem fylgja því að hugsa vel um og snyrta dýrið. Óhjákvæmilegt hafi verið að hækka verð smám saman enda eru t.d. flest aðföng fengin frá útlöndum og innkaup dýrari þegar krónan er veik. „Við höfum m.a. boðið upp á klippikort fyrir snyrtingu á klóm. Virkar til- boðið þannig að ef hundurinn eða kötturinn kemur í naglasnyrtingu mánaðarlega þá er annað hvert skipti frítt,“ útskýrir Ásta og bendir á að þetta tilboð sé ekki aðeins gert til að örva viðskiptin. „Klippikortið stuðlar að því að fólk mæti örugg- lega reglulega með hundinn sinn í naglasnyrtingu en ef umhirða nagl- anna dregst á langinn getur það valdið vandræðum, óþægindum fyr- ir hundinn og jafnvel sárum sem svo geta leitt til sýkinga. Neglur vaxa mishratt á hundum en margir þurfa á naglasnyrtingu að halda ekki sjaldnar en mánaðarlega og sumir þurfa jafnvel að koma til okkar vikulega.“ Hundarnir þurfa sína jólaklippingu  Desember er annasamasti tími ársins hjá Dekurdýrum og nærri fullbókað fram að jólum  Verður ekki vör við neina kreppu í dýrasnyrtingum og reksturinn vex hægt en örugglega  Koma til móts við neytendur m.a. með klippikortum fyrir naglasnyrtingar Morgunblaðið/Árni Sæberg Rófur Ásta ásamt Húgó og Klúní. Hún segir alls kyns hunda koma í jólasnyrtingu og ekki bara sýningarhundar sem fá bað og klippingu í desember. HEITT & KALT Sími: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is | www.heittogkalt.is Hátíðarstemning að þínu vali: Þægileg jólaveisla Heimilisleg jólaveisla Klassísk jólaveisla Jólasmáréttir Jólaveisla sælkerans Verð á mann frá: 4.890 kr. Allar upplýsingar og matseðlar á www.heittogkalt.is Jólaveisla Fyrirtækja- og veisluþjónusta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.