Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013 MÁLÞING Hlutverk og ábyrgð fjölmiðla í aðdraganda kosninga Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og meistaranám í blaða- og fréttamennsku við HÍ efna til málþings í tilefni ábendingar eftirlitsnefndar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) um að ekki giltu hér á landi opinberar reglur um störf eða skyldur fjölmiðla í aðdraganda kosninga. Framsögumenn og þátttakendur í pallborði: Finnur Beck, lögfræðingur, opnar málþingið Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar Guðbjörg Hildur Kolbeins, fjölmiðlafræðingur Margrét Sverrisdóttir, verkefnisstjóri Ólafur Stephensen, ritstjóri Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður Ólafur Þ. Harðarson, prófessor Freyr Einarsson, ritstjóri Fundarstjóri: Þór Jónsson, blaðamaður. Miðvikudaginn 23. janúar kl. 14-17 í Öskju, stofu 132. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Það hefur verið planið. Við sjáum hvort við náum því,“ segir Álfheiður Ingadóttir, þingflokksformaður VG, aðspurð hvort stefnt sé að því að af- greiða stjórnlagafrumvarpið úr stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd í dag þann- ig að það geti farið inn í 2. umræðu í þinginu á fimmtudag. Spurð hvort ætlunin sé að afgreiða frumvarp sem er í stórum dráttum í samræmi við tillögur stjórnlagaráðs staðfestir Álfheiður það en hún er varaformaður nefndarinnar. Ætlunin sé að samþykkja frum- varpið með breytingum fyrir loka- afgreiðslu þingsins. „Eins og við höfum kynnt eru ýms- ar hugmyndir um breytingar frá öðr- um nefndum, gestum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og fulltrúum í stjórnlagaráði sem verið er að skoða. Það sést á nefndarálitunum sem eru komin að það eru heilmiklar hug- myndir um breytingar. En hvað snert- ir efnislegar breytingar verður andi frumvarpsins ósnertur.“ Bíða eftir fleiri umsögnum – Munu breytingarnar koma fram sem breytingartillögur? „Við í stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd ætlum að fara yfir álit nefnd- anna á morgun [þ.e. í dag] og þær til- lögur sem komnar eru fram. Það er ekki víst að allar umsagnir um frum- varpið séu komnar inn til nefnd- arinnar eins og við vonuðumst eftir. Við verðum að sjá til með það á morg- un, þriðjudag.“ Aðspurð um framgang málsins seg- ir Álfheiður að við 2. umræðu séu flutt- ar breytingatillögur, bæði frá nefnd- um og einstaklingum. Síðan sé 3. umræðan eftir. „Það er á öllum stig- um, þar til búið er að afgreiða málið, hægt að koma við breytingatillögum. Það er ekki verið að læsa eða loka neinu.“ – Þannig að ef frumvarpið verður samþykkt fyrir 15. mars og ný ríkis- stjórn staðfestir það gætum við þá séð nýja stjórnarskrá í maí? „Já. Ég ætla að vona að næsta þing staðfesti nýja stjórnarskrá, ef okkur tekst það sem við ætlum okkur, að ljúka gerð hennar fyrir kosningar. Ég vænti þess að nýtt þing staðfesti það sem fyrra þing hefur gert.“ – Þannig að nýja stjórnarskráin sem þú sérð fyrir þér er að mestu leyti í takt við tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá? „Um 67% þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. október sl. töldu að svo ætti að vera.“ – Telurðu raunhæft að þingið af- greiði frumvarpið fyrir 15. mars eða mun það kalla á fleiri þingdaga? „Það er allt hægt ef menn vilja.“ Hviki ekki frá meginþræðinum Aðspurð hvort stjórnarflokkarnir stefni að því að samþykkja frumvarp stjórnlagaráðs fyrir þingfrestun 15. mars segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar, að draumur hennar sé að ný stjórnarskrá verði samþykkt eft- ir kosningar. Ekki sé ætlunin að hvika í meginatriðum frá þeim tillögum sem stjórnlagaráð setti fram, heldur að fylgja þeim meginþræði sem þar sé spunninn, að teknu tilliti til breytinga í takt við athugasemdir ýmissa um- sagnaraðila. Því komi ekki til greina að velja úr einstakar greinar frum- varpsins en leggja aðrar til hliðar, líkt og ýmsir hafa lagt til. Valgerður tekur hins vegar fram að framhaldið eigi eftir að skýrast og því sé of snemmt að fullyrða hvert framhaldið verði á næstu vikum. Setja þingið í uppnám Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, á sæti í stjórnskip- unar- og eftirlitsefnd. „Eftir því sem ég kemst næst ætlar meirihlutinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að halda sig við sín áform og með því verður allt í upp- námi hér í þinginu. Ætlunin er að taka málið út úr nefndinni og ljúka umfjöllun með nefndaráliti í fyrramálið, með það að markmiði að 2. umræða um málið hefjist í þinginu á fimmtudag, og þá er öll stjórnarskráin undir, allt frum- varpið. Okkur er ekki sagt annað en að áform meirihlutans séu að klára frumvarpið í heild fyrir vorið, með þá einhverjum breytingum sem í heild- arsamhengi virðast vera minniháttar. Þetta á að gera þrátt fyrir að það séu ekki komin álit frá nokkrum nefndum þingsins sem stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd óskaði þó eftir, né heldur minnihlutaálit. Þá ber að horfa til þess að vika eða tíu dagar eru þar til svo- nefnd Feneyjanefnd Evrópuráðsins skilar áliti um stjórnlagafrumvarpið. En það er álit sem nefndin bað um.“ Mikil átök framundan Birgir gagnrýnir málsmeðferðina. „Við sjálfstæðismenn mótmælum þessum vinnubrögðum á þeirri for- sendu að með þessu móti gefa menn sér ekki einu sinni tíma til að bíða eft- ir þeim álitum sem stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sjálf hefur beðið um. Það er ljóst að með þessum vinnu- brögðum er ekkert gert nema ýfa upp þann ágreining sem verið hefur um þetta, bæði málsmeðferð og efni, þannig að við erum augljóslega að fara inn í mikla átakatíma varðandi stjórnarskrána.“ Samþykki tillögu stjórnlagaráðs  Stefnt að því að stjórnlagafrumvarpið fari til 2. umræðu í þinginu á fimmtudag  Ekki verður hvikað frá meginþræði frumvarpsins  Þingmaður Sjálfstæðisflokks spáir miklum átökum um málið Morgunblaðið/Eggert Á Alþingi Sagan frá 2009 gæti endurtekið sig þegar þingið starfaði nánast fram til kosninga. Harðar deilur um stjórnlagamálið áttu sinn þátt í þeirri töf. Þingmaður Sjálfstæðisflokks spáir miklum átökum um málið. Þingfrestun er fyrirhuguð 15. mars eða eftir 52 daga. Við taka þingkosningar 27. apríl eða eftir 95 daga. Með deginum í dag eru því að óbreyttu eftir 25 þing- fundir á starfsáætlun þingsins. Á þeim sjö vikum sem fram- undan eru þangað til þingi verður frestað eru þrír fundadagar í þessari viku og fjórir í næstu viku. Í vikunni frá 4. til 8. febrúar er hins vegar hlé á þing- fundum. Í vik- unni frá 11. til 15. febrúar verða fjórir þingfundir, þrír í vikunni frá 18. til 22. febrúar og tveir í vik- unni frá 25. febrúar til 1. mars. Dagana 6. mars til 9. mars eru svo fjórir fundir en þá er fundað á laugardegi í fyrsta sinn á þessu ári. Þrír þingfundir eru svo áformaðir í vikunni frá 11. mars til 15. mars en miðvikudaginn 13. mars fara fram eldhúsdags- umræður og þingi er frestað 15. mars. Séu 13. og 15. mars taldir með eru því 25 þingfundadagar eftir á dagskrá þingsins. 25 þingfundadagar eftir TÍMINN TIL AFGREIÐSLU STÓRMÁLA ER KNAPPUR Álfheiður Ingadóttir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vorið 2009 var þingfundum á Al- þingi frestað 17. apríl eða átta dög- um fyrir þingkosningarnar 25. apríl. Fram kemur í Handbók Alþingis að 136. löggjafarþingi, sem var sett 1. október 2008, hafi verið frestað 17. apríl. Til stóð að efna til kosn- inga 25. apríl. Mánudaginn 12. mars 2009 sagði Morgunblaðið frá því að frá og með þeim degi hefði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra geta rofið Alþingi í samræmi við ákvæði í stjórnarskránni, enda væru þá innan við 45 dagar til boðaðra kosninga. Helgi Bernódusson, skrifstofu- stjóri Alþingis, segir að árið 2009 hafi nýju fyrirkomulagi verið fylgt. Voru tvær sjálfstæðar athafnir „Eftir breytingarnar sem urðu á stjórnarskránni 1991 er ekkert því til fyrirstöðu að þingið starfi þótt búið sé að boða þingrof og kosn- ingar. Áður fyrr voru þetta tvær sjálfstæðar athafnir, annars vegar þingrofið og hins vegar var að ákveða kjördag. Fyrri athöfnin, þingrofið, gat ýmist tekið gildi strax og þá fór þingið heim og það var þinglaust fram að kosning- um, eða, sem al- gengara var, að þingið var rofið frá og með tiltekn- um degi og svo þingi slitið í fram- haldinu. Nú er þetta orðin ein ákvörðun að rjúfa þing og efna til kosninga vegna þess að umboð þingmanna sam- kvæmt stjórnarskránni nær fram að kjördegi. Það er því ekki lengur hægt að rjúfa þing og láta það taka gildi þá þegar, eins og til dæmis var gert 1974 og 1931.“ Sem fyrr segir var hægt að rjúfa þing frá og með 12. mars 2009. Þing- lok frestuðust síðan ítrekað en fram kom í máli Jóhönnu í lok mars 2009 að koma þyrfti 38 málum í gegnum þingið fyrir þinglok og þar af 22 sem þyrfti nauðsynlega að samþykkja. Voru frumvarp um persónukjör og frumvarp til stjórnskipunarlaga efst á blaði en af öðrum frumvörpum má nefna frumvarp um heimild til samninga um álver í Helguvík. Hlé vegna kosningasjónvarps Mánudaginn 6. apríl 2009 var gert hlé á þingfundi að kröfu sjálfstæðis- manna, sem vildu fá að horfa á kosn- ingaumfjöllun Ríkissjónvarpsins um Norðvesturkjördæmi. Haft var eftir Guðbjarti Hannes- syni, þá forseta Alþingis, að aldrei hefði Alþingi setið að störfum jafn- nærri alþingiskosningum og þá. Þingfrestun er nú áformuð 15. mars nk. og fara þingkosningar fram laugardaginn 27. apríl nk. Eins og rakið er í greininni hér fyrir ofan gæti sagan endurtekið sig og umræður um tillögur stjórnlaga- ráðs verði fyrirferðarmiklar á síð- ustu dögum þingsins, líkt og um- ræður um forvera þess, stjórnlagaþing, voru á þingi vorið 2009. Gæti nú aftur teygst úr þinginu fram í apríl. Stjórnlagamálið tafði  Vorið 2009 voru þingfundir á Alþingi til 17. apríl  Kosið var 25. apríl  Mikill tími fór í umræður í stjórnlagamálinu Helgi Bernódusson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.