Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013 ✝ Hildur Guð-mundsdóttir, húsmóðir á Brekku í Biskupstungum, fæddist í Sund- stræti 23 (Róma- borg) á Ísafirði 11. ágúst 1925. Hún lést á Dvalarheimili aldraðra á Kumb- aravogi 11. janúar 2013. Hildur var dóttir hjónanna Guðmundar Þorláks Guðmunds- sonar skipstjóra, f. 22.5. 1888, d. 15.9. 1944, og Margrétar Jóns- dóttur húsmóður, f. 3.3. 1894, d. 12.5. 1966. Systkini hennar eru Páll, f. 1922, d. 2000, Elísabet, f. 1924, Margrét, f. 1928, d. 2010, og Guðrún, f. 1932. Hildur flutti til Reykjavíkur með foreldrum sínum og systk- inum haustið 1927 en fór sum- arið 1928 vestur á Ísafjörð til afa síns Jóns Bjarnasonar, ömmu sinnar Guðbjargar Jónsdóttur og móðursystur Maríu Jóns- dóttur. Þar var hún til ársins 1939, fluttist hún þá aftur til Reykjavíkur. Hildur giftist eftirlifandi eiginmanni sínum Óskari Jó- Anna Margrét, f. 1990, d. 2002. 2) Páll, f. 21. júlí 1951, fyrri kona hans er Margrét Oddsdóttir, þeirra börn eru: a) Oddur Ósk- ar, f. 1977, býr með Bryndísi Reynisdóttur, hann á þrjú börn, b) Hekla Hrönn, f. 1979, gift Nils Guðjóni Guðjónssyni, þau eiga þrjú börn, c) Kristinn Páll, f. 1985, býr með Jónu Petru Guð- mundsdóttur, þau eiga þrjú börn, seinni kona Páls er Lilja Gísladóttir og 3) María, f. 30. janúar 1957, fyrri maður hennar er Brian Boundy, sonur þeirra er a) Óskar Kristinn, f. 1983, kvæntur Elfu Dís Andersen, þau eiga þrjú börn, núverandi mað- ur Maríu er Halldór Árnason, þeirra synir eru: b) Árni Bær- ing, f. 1994, og Guðmundur Pét- ur, f. 1997. Hildur gekk í barnaskólann á Ísafirði, haustið 1939 hóf hún nám við Kvennaskólann í Reykjavík. Að námi loknu starf- aði hún við verslun Hans Pet- ersen og vann þar fram að gift- ingu eða þar til hún flutti með Óskari að Brekku þar sem þau stunduðu búskap, fyrst með kindur og kýr svo aðeins með kindur þar til þau snéru sér að ferðaþjónustu þar sem þau ráku sumarhúsahverfið í Brekku- skógi. Einnig gerðu þau hjónin út vinnuvélar til vegagerðar o.fl. Útför Hildar fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 22. janúar 2013, og hefst athöfnin kl. 14. hannessyni, f. 2. janúar 1919, þann 8. júní 1946 og þann sama dag fluttust þau að Brekku þar sem þau bjuggu alla tíð. Hildur dvaldi á Dval- arheimilinu Kumb- aravogi síðasta ár ævi sinnar. Þeirra börn eru: 1) Hólm- fríður, f. 20. júní 1947, fyrri maður hennar er Helgi Þórarinsson, þeirra börn eru: a) Jóhannes, f. 1967, kvænt- ur Helgu Maríu Jónsdóttur, þau eiga fjögur börn, b) Ragnhildur Petra, f. 1968, d. 1996, hún átti tvo syni, núverandi maður Hólmfríðar er Sigurður Guð- mundsson, þeirra börn eru: c) Þuríður Ágústa, f. 1974, gift Sig- urjóni Pétri Guðmundssyni, þau eiga tvö börn, d) Hildur Ósk, f. 1978, gift Helga Jakobssyni, þau eiga þrjár dætur, e) Ólafur Jó- hann, f. 1981, f) Áshildur Sigrún, f. 1983, býr með Andrési Má Heiðarssyni, þau eiga einn son, g) Guðríður Olga, f. 1986, býr með Gunnari Hauk Ólafssyni Hauth, þau eiga eina dóttur, h) Til minningar um ömmu okkar og langömmu. Elsku amma okkar og langamma. Okkur langaði að kveðja þig með þessu fallega ljóði: Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim, mig glepur sýn, því nú er nótt, og harla langt er heim. Ó, hjálpin mín, styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú og hennar ljós? Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og nú er burt mitt hrós. Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið, uns fáráð öndin sættist Guð sinn við. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voðasker. nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr. (Matthías Jochumsson) Fyrir hönd systkinanna frá Rauðaskógi, maka og barna með hjartans kveðjum, Hildur Ósk Sigurðardóttir. Elsku amma mín, mig langar að byrja á að þakka forsjóninni fyrir að hafa fengið að alast upp hjá þér og afa á Brekku svo ég tali nú ekki um þau forréttindi að hafa getað veitt börnunum mín- um fjórum það að alast upp í næsta húsi við langömmu og langafa og átt með þeim ógleym- anlegar samverustundir. Hinn 2. október 1967 fæddist ég í stofunni hjá ykkur afa, þann- ig að mínar fyrstu og bestu minn- ingar eru óneitanlega tengdar þér og eru þær mér mjög hjart- fólgnar. Ein af mínum fyrstu og kærustu minningum um þig amma mín er þegar ég lítill drengur kom ofanaf lofti í gamla bænum á Brekku og fékk að kúra í holunni á milli ykkar afa þar sem þú veittir mér alla þá ástúð og hlýju sem ég þurfti á að halda. Ógleymanlegar eru verslunar- ferðirnar sem við Peta systir fór- um með þér og mömmu í Kaup- félagið á Laugarvatni, þá keyrðir þú Moskvítsinn jafnt veg sem vegleysu og aldrei nein vandamál enda hafðir þú þann hæfileika að vera afburðabílstjóri alla tíð, í þessum ferðum að sumarlagi keyptir þú ís í brauðformi handa okkur Petu, það vakti alltaf jafn- mikla gleði. Þú varst mikil mat- móðir og passaðir upp á að alltaf væri nóg til af öllu, þú talaðir oft um að langafi Jóhannes, sem bjó hjá ykkur afa fyrstu árin ykkar á Brekku, hefði viljað að þegar allir væru búnir að borða átti að vera jafnmikið eftir á borðinu eins og búið var að borða, þetta tókst þú þér greinilega til fyrirmyndar. Alltaf passaðir þú upp á að okkur systkinin skorti ekkert, hvort sem við værum að fara í skóla- ferðalög, skólaskemmtanir eða bara hvað sem var. Ég gæti talið upp margt fleira en læt þetta duga, þú varst einfaldlega mín stoð og stytta öll mín uppvaxtar- ár. Þegar ég byrjaði svo með eig- in atvinnurekstur stóðst þú eins og klettur við bakið á mér en kenndir mér jafnframt að ekki væri annað í boði en að standa sig ef reksturinn ætti að ganga. Ég á þér ómetanlega mikið að þakka, þú hefur mótað mig í þann mann sem ég er í dag en nú er komið að kveðjustund hjá okkur. Ég mun minnast þín sem blíðrar og ynd- islegrar ömmu og mikils kven- skörungs sem stóð með sinni sannfæringu. Vona og veit að þú hefur það gott á nýjum stað. Þinn Jóhannes á Brekku. Elsku langamma mín. Það hef- ur alltaf verið frábært að koma til þín og fá að heyra allar skemmti- legu sögurnar um það þegar þú varst ung, fá að lita í litabækurn- ar, hlusta á þig lesa prinsessusög- ur fyrir mig og ég tala nú ekki um að fá að koma til þín og fá harð- fisk með smjöri og bláberjaskyr með rjóma. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman. Vona að þú hafir það sem allra best þarna uppi. Í huga mín- um verðurðu alltaf hjá mér. Þín Rósa Kristín Jóhannesdóttir. Meðal bernskuminninga okkar systra eru heimsóknir að Brekku þar sem Hildur móðursystir okk- ar bjó með fjölskyldu sinni. Bíl- ferðir austur fyrir fjall tóku lengri tíma þá en í dag, á leiðinni byggðist upp mikil eftirvænting meðal okkar og höfðum við fyrir sið að hrópa þrefalt húrra á Nón- hól þar sem fyrst sást heim að bænum. Eitt sinn sem oftar ætl- uðu þrjár þær elstu að verða eftir og gista nokkrar nætur en þegar kom að kveðjustund birtist sú yngsta, þriggja ára hnáta, með sængina sína í fanginu og sagðist líka ætla að verða eftir. Aðspurð hvort Hildur leyfði það svaraði sú stutta: „Hún ræður engu um það, hann Óskar ræður því.“ Það var eftirsóknarvert að koma að Brekku. Þar vorum við innilega velkomnar, umvafðar hlýju og kærleika. Hildur bar um- hyggju fyrir okkur og hafði vel- ferð okkar og öryggi að leiðar- ljósi. Á Brekku fengum við borgarbörnin tækifæri til að kynnast ýmsum sveitastörfum og siðum. Þar lærðum við að drekka kaffi ungar að árum því í sveitinni drukku allir kaffi. Við rákum úr túninu, rökuðum dreifina, gáfum hænsnunum og sóttum saltfisk út í bragga á föstudagskvöldum. Hildur leyfði þó aldrei að við fær- um á vinnuvélarnar, það taldi hún of hættulegt. Máltíðirnar á Brekku voru tilhlökkunarefni. Þegar viskustykki var veifað á bæjarhlaðinu var það merki um að matur væri á borðum. Hildur var listagóður kokkur, sérstak- lega lagin við að matreiða fisk og bakstur fór henni vel úr hendi. Sumt var okkur framandi, hjá Hildi fengum við fjallagrasaseyði og sviðalappir sem okkur þótti lostæti. Hildur reykti pípu, stóð gjarnan við eldhúsgluggann með kíki, rýndi í skýjafar og las fyrir um veðrabrigði. Hún kunni mörg góð húsráð ef kvillar eða meiðsli komu upp, notaði heita bakstra, var lagin við að gera að sárum, úrræðagóð og athugul. Bæði menn og dýr nutu góðs af. Minn- isstætt er þegar haldið var hita á veikburða heimalningum í bak- araofninum og þeim síðan gefin mjólk í pela. Á rigningardögum fengum við að valsa um allt húsið og róta í gömlum blöðum og tíma- ritum. Deginum lauk gjarnan með kvöldhressingu í eldhúsinu hjá Hildi og kveðjunni: „Góða nótt og takk fyrir daginn.“ Það var líka alltaf mikil til- hlökkun hjá okkur systrum þegar Brekkufólkið kom í bæinn að út- rétta og gisti þá heima hjá okkur. Margt var spjallað, rifjaðar upp minningar frá æskuslóðum Hild- ar á Ísafirði og á Ránargötunni og sögur sagðar af vinum og frænd- fólki. Var þá gjarnan flett upp í Arnardalsættinni en Hildur hafði alla tíð mikinn ættfræðiáhuga. Hildur var ung þegar hún kom að Brekku og hóf búskap með Óskari manni sínum við frum- stæðar aðstæður á brúðkaups- degi þeirra sumarið 1946. Ein- hverjir töldu að hún myndi ekki þrauka til haustsins en það var ekki í eðli hennar að gefast upp. Hún var ákveðin og fylgin sér, gat jafnvel verið stjórnsöm og ráðrík en okkur var hún ætíð mild og góð. Að leiðarlokum þökkum við systurnar allt það góða sem Hildur móðursystir okkar gaf okkur og biðjum henni, Óskari og afkomendum þeirra Guðs bless- unar. Sigríður, Kristín, Margrét og Bergþóra Baldursdætur. Elsku Hildur, mikið er ég þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Þú varst sannarlega stór og mikil kona þó líkaminn hafi verið smár. Við kynntumst fyrst þegar ég flutti með Jóa að Efri-Brekku árið 1993, þá sá ég strax að þú varst höfuð stórfjöl- skyldunnar. Ef eitthvað vantaði hvort sem það var skrúfjárn, plástur eða bara hvað sem er þá sagði Jói alltaf: „Amma á þetta örugglega“ og alltaf reyndist það rétt. Þú barst mikla umhyggju fyrir fólki, alltaf var fyrsta spurn- ingin hvort við værum svöng. Okkar kynni hófust svo fyrir al- vöru þegar við fluttum saman upp á ásinn á Brekku, þar áttum við margar góðar stundir saman. Það var gaman og fræðandi að hlusta á þig tala um þegar þið fluttuð að Brekku á brúðkaups- daginn ykkar 8. júní 1946 og sváf- uð brúðkaupsnóttina í hlöðunni. Á þessum árum lá straumurinn af landsbyggðinni til Reykjavíkur en þið fóruð á móti straumnum og fluttuð að Brekku þar sem var moldargólf í íbúðarhúsinu að stórum hluta, enginn sími og ekki kominn vegur að bænum en þið voruð ein á stóru svæði sem höfð- uð rafmagn þar sem það var raf- magnsvirkjun í bæjarlæknum, það kom sér vel. Það hefur örugg- lega stundum reynt á þig aðeins tvítuga að koma frá Reykjavík í þessar aðstæður en þó þær hafi kannski ekki verið eins og best varð á kosið þá var það þér greini- lega mikils virði hversu vel var tekið á móti ykkur í sveitinni og áttir þú margar góðar minningar um góða nágranna. Þetta mótaði þig örugglega mikið þar sem ekki var annað í boði en að standa sig og það gerðirðu svo sannarlega. Þú varst svo stolt af að vera sjó- mannsdóttir frá Ísafirði, fædd í Rómaborg við hliðina á Amster- dam. Þú gast lesið veðrið eftir skýjunum sem þú sagðir vera sjó- mannshæfileika frá pabba þínum en þú varst mjög hrifin af sjónum, kunnir að stíga ölduna og varðst þar af leiðandi aldrei sjóveik. Þú sagðir oft að þú værir „vargur að vestan“, ég get nú ekki tekið und- ir það, þú gast alveg svarað fyrir þig og lést ekki vaða yfir þig sem er góður kostur að mínu mati en vargur varstu ekki. Það var svo gott að vita að börnin voru ekki ein heima þó við værum ekki heima, þau voru alltaf velkomin yfir til ykkar sem þau notuðu sér óspart og eru þær stundir nú ómetanlegar fyrir þau, hjá ykkur Óskari drukku þau í sig frásagnir ykkar af gömlum tímum og lærðu mörg orð sem börn á þeirra aldri hafa aldrei heyrt. Þú kunnir svo mikið af vísum og þó minnið væri farið að svíkja þig þá fylgdu vís- urnar þér fram á síðasta dag. T.d. fórstu með vísuna „Sigga litla systir mín“ daginn áður en þú kvaddir í hinsta sinn. Síðastliðið ár hefur þú dvalið á Kumbara- vogi, það var bæði erfitt fyrir þig og okkur að sætta okkur við það í upphafi en þegar við sáum hvað það er einstakt starfsfólk sem annaðist þig þar þá varð það með tímanum léttara fyrir okkur öll. Ég vil þakka starfsfólkinu á Kumbaravogi fyrir einstaklega góða umönnun, það er okkur mik- ils virði hvað þið hugsuðuð vel um Hildi okkar og ég veit að við hefð- um ekki getað látið henni líða svona vel hér heima. Elsku Hildur mín, takk fyrir samveruna, þitt skarð verður ekki fyllt en minningarnar lifa. Ég er viss um að það hefur verið tekið vel á móti þér og óska þér alls hins besta á nýjum stað. Þín vinkona, Helga María Jónsdóttir. Hildur Guðmundsdóttir Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SÓLRÚN SIGURÐARDÓTTIR, lést mánudaginn 14. janúar á Fossheimum, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtu- daginn 24. janúar kl. 13.30. Ásbjörn Sigurðsson, Jónbjörg Kjartansdóttir, Ólafur Sigurðsson, María M. Guðnadóttir, Sigríður Á. Sigurðardóttir, Þorsteinn G. Þórarinsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR, Sóltúni 10, Reykjavík, lést á Landspítala, Landakoti, sunnudaginn 20. janúar. Gunnlaugur Pálmi Steindórsson Steindór Gunnlaugsson, Halldóra Lydía Þórðardóttir, Haraldur Páll Gunnlaugsson, Bolette Møller Christensen Bryndís Dögg Steindórsdóttir, Haukur Eggertsson, Gunnlaugur Egill Steindórsson, Emilía Björk Hauksdóttir. ✝ Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN GUNNARSSON nuddari, Byggðavegi 151, Akureyri, sem lést á Landspítalanum laugardaginn 19. janúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 25. janúar kl. 13.30. Sigríður Olgeirsdóttir, Birna Kristbjörg Björnsdóttir, Jóhann Þröstur Þórisson, Ragna Árný Björnsdóttir, Birgir Þór Ingólfsson, Áshildur Eygló Björnsdóttir, Ásþór Guðmundsson, Björn Halldór Björnsson, Aðalheiður S. Jóhannesdóttir, Aðalheiður Hanna Björnsdóttir, Hallur Kristmundsson, Gestur Gunnar Björnsson, Helga Guðrún Pálsdóttir, Unnur Lovísa Steinþórsdóttir, Gissur Árdal Hauksson, Olgeir Steinþórsson, Steinþór Andri Steinþórsson, Emma Hawin Sardardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ÞURÍÐUR DANÍELSDÓTTIR, lést að Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 17. janúar. Jarðarförin fer fram í Fossvogskapellu þriðjudaginn 5. febrúar kl. 15.00. Gustav Einarsson, Sigríður Guðlaugsdóttir Sonja Einarsdóttir, Kenneth Sturesson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG JÓNÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR frá Hemru í Skaftártungu, sem lést í Brákarhlíð, hjúkrunar- og dvalarheimili í Borgarnesi, miðvikudaginn 16. janúar, verður jarðsungin frá Grafarkirkju í Skaftártungu laugardaginn 26. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar. Brynrún Bára Guðjónsdóttir, Katrín Sigrún Guðjónsdóttir, Kristín Guðjónsdóttir, Rúnar Viktorsson, Þórir Páll Guðjónsson, Helga Karlsdóttir, ömmu- og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.