Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
18
16
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
LÁTTU FAGMENN
META GULLIÐ
Sérstaða okkar hjá Jóni og Óskari er sú að við höfum keypt og selt
gull í 41 ár og búum því yfir mikilli þekkingu, reynslu og fagmennsku
á þessu sviði.
Við kaupum til endurvinnslu allar tegundir af gullskartgripum, gamla
og nýja, gullúr, tanngull, gullpeninga, hvers kyns silfur og demanta í betri
skartgripagæðum.
Við bjóðum gott og alþjóðlega samkeppnishæft verð fyrir gripina og
framleiðum úr öllu gulli sem við kaupum. Þannig spörum við gjaldeyri.
Komdu til okkar á Laugaveg 61 og leyfðu okkur að veita þér faglega
ráðgjöf sem tryggir að þú færð rétta greiningu á þínum verðmætum.
Það skiptir mestu máli.
Við staðgreiðum allt gull en áskiljum okkur rétt til að biðja um persónuskilríki.
Aðeins í verslun okkar að Laugavegi 61, virka daga milli kl. 10–18.
Góð séraðstaða þar sem gull er metið í ró og næði.
Bíólistinn 18.-20. janúar 2013
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Django Unchained
The Hobbit: An Unexpected Journey 3D
The Impossible
Life of Pi
Jack Reacher
XL
Hvíti Kóalabjörninn (Outback)
Rise Of The Guardians
Ryð og Bein (De Rouille et D’os)
Sammy 2
Ný
1
3
4
2
Ný
7
6
10
9
1
4
5
6
2
1
3
7
2
4
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Kvikmynd Quentins Tarantinos,
Django Unchained, er sú tekjuhæsta
að liðinni helgi í kvikmyndahúsum
landsins en hún var frumsýnd
föstudaginn sl. Hobbiti Peters Jack-
sons heldur áfram að gera það gott
og nema miðasölutekjur af henni
nú 87,6 milljónum króna. The Imp-
ossible er í þriðja sæti líkt og í síð-
ustu viku og Life of Pi er einnig í
sama sæti, því fjórða. Íslenska kvik-
myndin XL var frumsýnd fyrir
helgi og er sú sjötta tekjuhæsta.
Bíóaðsókn helgarinnar
Django sú
vinsælasta
Vestri Úr Django Unchained, nýj-
ustu kvikmynd Tarantinos.
Stjórnendur
Bolshoi-
ballettsins í
Moskvu segjast
sannfærðir um
að sýruárásin
sem gerð var fyr-
ir helgi á listræn-
an stjórnanda
dansflokksins,
Sergei Filin, hafi
tengst störfum hans fyrir dans-
flokkinn. Lögreglan segir brenni-
steinssýru hafa verið skvett í andlit
Filins en hún brennir hold og augu
samstundis. Filin hefur þegar geng-
ist undir uppskurði í þeirri von að
sjón hans megi bjarga.
Telja árásina tengj-
ast ballettinum
Sergei Filin
Einn þekktasti
kvikmyndagerð-
armaður Breta á
seinni hluta 20.
aldar, leikstjór-
inn Michael Win-
ner, er látinn 77
ára að aldri.
Winner leik-
stýrði yfir 30
myndum, meðal
annars Death Wish-kvikmynd-
unum, The Nightcomers, Scorpio
og The Mechanic. Síðustu ár var
hann vinsæll veitingahúsarýnir.
Leikstjórinn Mich-
ael Winner látinn
Michael Winner
Listasafn Árnes-
inga í Hvera-
gerði hefur verið
opnað aftur eftir
hlé. Þar stendur
yfir athyglisverð
sýning, Tómið –
Horfin verk
Kristins Péturs-
sonar. Á sýning-
unni má einnig
sjá „athugasemd-
ir“ Hildigunnar Birgisdóttur, Hug-
ins Þórs Arasonar, Sólveigar Að-
alsteinsdóttur og Unnars Arnar.
Sýningarstjóri er Markús Þór
Andrésson.
Tómið sýnt í Lista-
safni Árnesinga
Markús við málverk
eftir Kristin.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Wilderness Dance er stærsta verk-
efni sinnar tegundar sem hleypt hef-
ur verið af stokkunum á Norður-
löndum og Eystrasaltsríkjum,“ segir
Ása Richardsdóttir verkefnisstjóri
og hugmyndasmiður að Wilderness
Dance eða Dans í óbyggðum. „Verk-
efnið fer fram í fimm löndum á ár-
unum 2013-2015, þ.e. Íslandi, Dan-
mörku, Noregi, Finnlandi og
Lettlandi,“ segir Ása og tekur fram
að að baki verkefninu standi sam-
starfsnet sem nefnist Keðja og stofn-
að var árið 2007, en auk ofan-
greindra landa standa Svíþjóð,
Litháen og Eistland að Keðju.
Að sögn Ásu taka tíu danshópar
þátt í Wilderness Dance, en þeir
voru valdir úr hópi 110 umsækjenda
sl. haust. „Þessar góðu viðtökur
komu okkur þægilega á óvart. Þarna
voru margir flottir hópar og því mjög
erfitt að velja á milli þeirra,“ segir
Ása. Spurð um fjármögnun bendir
Ása á að Keðja hafi fengið stóran
styrk frá Evrópusambandinu í fyrra.
„En Wilderness er stærsta verkefnið
innan þess samstarfs. Í framhaldinu
fengum við styrki frá Kulturkontakt
Nord og Norræna menning-
arsjóðnum. Heildarfjármögnun
nemur um 80 milljónum króna.“
Áhrif á samfélagið
Að sögn Ásu hófst verkefnið form-
lega í síðustu viku þegar lettneski
sviðslistahópurinn The Swufu’s kom
til Íslands, en hann mun dvelja á
Höfn í Hornafirði næstu þrjár vikur
og nota tímann til að þróa nýtt dans-
verk. „Útgangspunkturinn verkefnis
þeirra er að skoða hvaða áhrif lettn-
esk sérkenni þeirra hafa á þau sam-
félög þar sem þau munu dvelja og
hvernig íbúarnir líta á Letta,“ segir
Ása og bendir á að hópurinn muni í
ágúst nk. dvelja í vinnustofu í Ham-
merfest nyrst í Norður-Noregi og
þar sýna afrakstur vinnu sinnar.
Fulltrúar Íslands í Wilderness
Dance eru annars vegar Margrét
Sara Guðjónsdóttir, annar stofnandi
Panic Productions, en hún er höf-
undur dansverksins „With whom?“
eða „Með hverjum?“ og hins vegar
Ásrún Magnúsdóttir sem er ein fjög-
urra meðlima í fjölþjóðlegum sviðs-
listahóp sem kallar sig Foreign
Mountains, en hópurinn mun í næsta
mánuði dvelja í vinnustofu á Egils-
stöðum.
Spurð hvað hafi stýrt valinu á hóp-
unum tíu segir Ása að horft hafi ver-
ið á styrk hinnar listrænu hug-
myndar, löngun og hæfni hópsins til
að vinna með íbúum og samfélaginu
á hverjum stað, fyrri reynslu sem og
árangurs. Tekur hún fram að mark-
miðið með Wilderness Dance sé m.a.
að stuðla að því að tíu nýir dval-
arstaðir verði til
fyrir dansinn á
Norðurlöndunum
og Eystrasalts-
ríkjunum.
„Fyrsta hálfa
annað árið muni
allir hóparnir tíu
dvelja í tveimur
gestavinnustofum
eða svonefndum
residensíum á tíu mismunandi stöð-
um í löndunum fimm og fer hver
hópur á tvo staði þar sem þeir munu
þróa og æfa dansverk. Vorið 2014
verður valið úr dansverkum hópana
og fara þau áfram til frekari sýninga
á vegum samstarfsaðila Wilderness
og víðar, í samstarfi við hátíðir og
leikhús víða í Evrópu. Þar sem enn
er ekki búið að semja verkin vitum
við á núverandi tímapunkti ekki
hversu mörg verk verða valin til sýn-
ingarhalds, en við vitum að öll verkin
verða sýnd á samstarfsfundi Keðju í
Mariehamn á Álandseyjum í ágúst
2014,“ segir Ása og bendir á að hér-
lendis sé Wilderness Dance í sam-
starfi við annars vegar Menningar-
miðstöðina á Höfn í Hornafirði og
hins vegar Sviðslistamiðstöðina á
Fljótdalshéraði. Sem fyrr segir
munu sviðslistahóparnir The Swu-
fu’s og Foreign Mountains dvelja
hérlendis við störf sín á þessu ári, en
á næsta ári mun hópurinn The
Translation in process frá Noregi
dvelja á Höfn og danski hópurinn
Hello! Earth dvelja á Egilsstöðum.
Allar nánari upplýsingar um verk-
efnið og sviðslistahópana tíu má
nálgast á vefnum: kedja.net.
Verkefnið Dans í óbyggð-
um samstarf fimm þjóða
10 sviðslistahópar valdir úr hópi 110 umsókna 80 milljón króna verkefni
Morgunblaðið/Kristinn
Dans Lettneski sviðslistahópurinn The Swufu’s mun dvelja á Hörn í Hornafirði næstu þrjár vikur og á þeim tíma
leggja grunn að nýju dansverki. Vinna hópsins er hluti af fjölþjóðlegu verkefni sem nefnist Wilderness Dance.
Ása Richardsdóttir