Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þegar tilboð voru opnuð á sunnudag
í veiðiréttinn í Norðurá í Borgarfirði
frá og með sumrinu 2014 til fimm
ára komu tvö tilboð upp úr umslög-
unum, bæði frá Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur, SVFR, leigutaka ár-
innar í 66 ár. Að auki barst frávik-
stilboð, undirritað af Gesti Jónssyni
lögmanni, frá ónafngreindum aðila
sem gat ekki um upphæð en óskaði
eftir viðræðum um veiðiréttinn. Frá-
vikstilboðinu var vísað frá.
SVFR sendi annað tilboðið inn
undir eigin nafni, upp á 76,5 millj-
ónir króna fyrir sumarið 2014, en
hitt tilboðið var í nafni SVFR ehf. og
hljóðaði upp á 83,5 milljónir. Sam-
kvæmt heimildum greiðir félagið 85
milljónir króna fyrir ána komandi
sumar.
Veiðifélag Norðurár fór af stað
með útboðsferlið þegar SVFR fór
fram á það í fyrra að leiguupphæð
gildandi samnings væri lækkuð, en
hann var þess í stað styttur og áin
boðin út að nýju.
Blæbrigðamunur tilboðanna
„Við ætlum að sofa á þessu og höf-
um þann kost að hafna öllum til-
boðum,“ segir Birna G. Konráðs-
dóttir, formaður Veiðifélags
Norðurár. En væri það álitlegur
kostur?
„Ég veit það ekki,“ svarar hún og
viðurkennir að stjórnin hafi búist við
fleiri tilboðum fyrst þau lögðu upp í
þessa vinnu. „Þetta skýrist fljót-
lega,“ segir hún.
„Við sjáum að þar sem aðeins
tveir aðilar buðu eru menn mjög var-
kárir og þora ekki að taka mikla
áhættu í þessum geira í dag,“ segir
Bjarni Júlíusson, formaður SVFR.
Hann segir „blæbrigðamuninn“ á til-
boðum félagsins vera þann að „ann-
ars vegar erum við að hugsa um
gamla góða félagið og sölu til fé-
lagsmanna, á meðan í tilboði SVFR
ehf. felst að selja meira blandað,
bæði til innan- og utanfélagsmanna.
Munurinn á upphæðum felst í því
með hvaða hætti veiðifélagið mun
efla húsakostinn við ána, því í út-
boðsgögnum er sagt að nýtt veiðihús
komi fyrir sumarið 2014“.
Bjarni segir að SVFR muni ekki
falla frá hærra tilboðinu, enda sé
boðið bindandi. „Það er síðan þeirra
að meta hvað þau telji vænlegra fyr-
ir sig. Við stöndum við báðar töl-
urnar.“
Bjarni bætir við að hann sé búinn
að hugsa mjög mikið um þessi mál
og allt sem stjórn félagsins hafi
reynt að gera í þessu máli hafi verið
vel ígrundað. „Nú er þetta komið í
ferli sem ég veit að verður vandað og
gott,“ segir hann.
Tilboðin sýni að menn séu varkárir
Stangaveiðifélag Reykjavíkur átti bæði gildu tilboðin sem bárust í veiðina í Norðurá „Við ætlum
að sofa á þessu og höfum þann kost að hafna öllum tilboðum,“ segir formaður veiðifélags Norðurár
Morgunblaðið/Einar Falur
Formaðurinn Bjarni Júlíusson með fyrsta lax sumarsins 2007 sem hann veiddi í opnun Norðurár, á Brotinu. „Við
vildum bjóða eins vel og við gátum og við erum að teygja okkur í þessum tilboðum,“ segir hann um útboð árinnar.
Norðurá í Borgarfirði hefur
löngum verið ein gjöfulasta lax-
veiðiá landsins, auk þess að
þykja einstaklega falleg og um-
hverfið heillandi. Laxinn gengur
snemma og er opnun árinnar í
kastljósi fjölmiðla ár hvert, þar
sem hún markar í raun upphaf
laxveiðisumarsins.
Í fyrra var veiðin slök í ánni,
953 laxar, en fjögur sumur þar á
undan fór hún ekki undir 2.000
laxa.
„Við höfum starfað saman í
bráðum 67 ár og ég vil endilega
að þetta verði 100 ára sam-
starf,“ segir Bjarni Júlíusson
um samstarf SVFR og Veiði-
félags Norðurár. Hann segir ána
mjög mikilvægan þátt í rekstri
félagsins. „Þetta eru margir
stangardagar og félagsmenn
sem veiða í ánni á ári hverju
skipta hundruðum. Þeir kaupa
dagana í júní, ágúst og byrjun
september. Þetta langa sam-
band gerir líka að verkum að við
vildum bjóða eins vel og við gát-
um og við erum að teygja okkur
í þessum tilboðum, það er ekk-
ert launungarmál.“
Er félaginu
mikilvæg
LANGT SAMSTARF UM ÁNA
Katrín Jakobsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra hefur skip-
að nefnd með fulltrúum allra stjórn-
málaflokka, sem eiga fulltrúa á Al-
þingi, um aðgang stjórnmála-
hreyfinga og frambjóðenda að
fjölmiðlum í aðdraganda kosninga.
Samkvæmt frétt frá ráðuneytinu er
nefndinni m.a. ætlað að fjalla um at-
hugasemdir ÖSE um framkvæmd
kosninga til Alþingis árið 2009. „Fjöl-
mörg ríki hafa sett reglur um umfjöll-
un og störf fjölmiðla í tengslum við
kosningar. Í kjölfar eftirlits með
kosningum til Alþingis árið 2009 benti
eftirlitsnefnd ÖSE (Öryggis- og sam-
vinnustofnunar Evrópu) á að hér á
landi giltu ekki reglur um störf eða
skyldur fjölmiðla í aðdraganda kosn-
inga. Í ábendingum nefndarinnar er
m.a. bent á möguleika á lagasetningu
um starfsemi fjölmiðla í þessum efn-
um, þ.m.t. um pólitískar auglýsingar
og veitingu útsendingartíma til fram-
boða,“ segir í frétt ráðuneytisins.
Nefndin er þannig skipuð: Finnur
Beck, formaður, skipaður af ráðherra
án tilnefningar, Friðrik Þór Guð-
mundsson, tilnefndur af þingflokki
Hreyfingarinnar, Sunna Gunnars
Marteinsdóttir, tilnefnd af þingflokki
Framsóknarflokksins, Eysteinn Eyj-
ólfsson, tilnefndur af þingflokki Sam-
fylkingarinnar, Björn Jónas Þorláks-
son, tilnefndur af þingflokki Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs og
Svanhildur Hólm Valsdóttir, tilnefnd
af þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Málþing um fjölmiðlana
Málþing um hlutverk og ábyrgð
fjölmiðla í aðdraganda kosninga verð-
ur haldið miðvikudaginn 23. janúar kl.
14-17 í Öskju, stofu 132. Það er á veg-
um mennta- og menningarmálaráðu-
neytis, Stofnunar stjórnsýslufræða
og stjórnmála, og meistaranáms í
blaða- og fréttamennsku við HÍ.
Finnur Beck lögfræðingur opnar
málþingið og erindi flytja Elfa Ýr
Gylfadóttir framkvæmdastjóri fjöl-
miðlanefndar, Guðbjörg Hildur Kol-
beins fjölmiðlafræðingur, Margrét
Sverrisdóttir verkefnastjóri, Ólafur
Stephensen ritstjóri og Jóhanna Vig-
dís Hjaltadóttir fréttamaður.
Að framsöguerindum loknum
verða pallborðsumræður með frum-
mælendum ásamt Ólafi Þ. Harðar-
syni prófessor og Frey Einarssyni
ritstjóra. Fundarstjóri verður Þór
Jónsson blaðamaður.
Morgunblaðið/Kristinn
Nefnd um aðgang
að fjölmiðlum í að-
draganda kosninga
Kosningabarátta Skoða á hvernig frambjóðendur fá aðgang að fjölmiðlum.
KORTIÐ GILDIRTIL
31. janúar 2013
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
MOGGAKLÚBBURINN
MOGGAKLÚBBURINN
25% AFSLÁTTUR Á STUNDARBROT
Í BORGARLEIKHÚSINU Í JANÚAR
„Ef ekki væri fyrir tímann mundi allt gerast í einu.“
Í Stundarbroti er teygt á tímanum, hann er beygður
og afmyndaður þar til skynjunin er sprengd
í loft upp og skilin eftir í tætlum.
Þetta er verk á mörkum vísinda, leikhúss og dans og framsækið
nútímaleikhús sem hristir duglega upp í skynjun áhorfenda.
Í verkinu er tekist á við lúmska spurningu: Hvað er tíminn?
Gegn framvísun Moggaklúbbskortsins í miðasölu Borgarleikhússins.
Miðasala í síma 568 8000 fyrir áskrifendur.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
Almennt verð: 3.900 kr.
Moggaklúbbsverð: 2.900 kr.
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á mbl.is/postlisti.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.