Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hlutabréf Icelandair Group hafa
hækkað mikið eftir að tilkynnt var
um kaup Sigurðar Helgasonar,
stjórnarformanns fyrirtækisins, í fé-
laginu fyrir um 24 milljónir króna
þann 17. desember. Sérfræðingar á
markaði segja að kaupin hafi styrkt
þá trú fjárfesta að umfangsmikil
flugvélakaup sem tilkynnt voru ellefu
dögum áður væru skynsamleg.
Bréfin hafa hækkað um 19% frá
því að tilkynnt var um kaup stjórn-
arformannsins. Á sama tíma hefur
Úrvalsvísitalan hækkað um 13%.
Gengið hækkaði lítið mánuðinn fyrir
kaup Sigurðar. Erlendis hafa hluta-
bréf hækkað frá áramótum. Áhættu-
samur rekstur, eins og t.d. ferðaþjón-
usta, er alla jafna næmari fyrir
gengisbreytingum; hækka og lækka
meira en áhættuminni félög á mark-
aði.
Tilkynnt var að Icelandair hefði
pantað tólf Boeing 737 flugvélar með
kauprétti á tólf til viðbótar þann 6.
desember. Icelandair mun taka við
fyrstu vélunum af þessum gerðum á
fyrri hluta árs 2018, eða eftir rúmlega
fimm ár. Ýmsar fjárhagsupplýsingar
varðandi kaupin liggja ekki fyrir.
Rekstur Icelandair hefur gengið
vel eftir hrun, afkoman hefur batnað
jafnt og þétt, segja sérfræðingar, og
félagið var hástökkvarinn í Kauphöll-
inni á síðasta ári; hækkaði um 61%.
Stjórnendurnir stefna á um 15%
vöxt í ár og þykir fjárfestum kaupin á
þessum nýju flugvélum til marks um
að stjórnendunir telji að félagið muni
halda áfram að vaxa hratt á næstu ár-
um.
Icelandair er með erlenda starf-
semi og erlendar tekjur. Það þykir
eftirsóknarvert á tímum gjaldeyris-
hafta en með kaupum á félaginu er að
vissu marki verið að kaupa erlenda
eign. Félagið treystir ekki alfarið á
efnahagsástandið hér: Viðskipta-
módel Icelandair byggist á því að
koma Evrópubúum sem ætla til
Bandaríkjanna til Keflavíkur, en þar
er í raun hjarta fyrirtækisins, og
ferja þá svo áfram á áfangastað. Hið
sama gildir um Bandaríkjamenn og
Kanadamenn sem ætla til Evrópu.
Rekja má þetta módel til upphafs ní-
unda áratugarins þegar Sigurður var
við stjórnvölinn.
Fjárfestar rýna í það þegar til-
kynnt er um kaup eða sölu hjá inn-
herjum, líkt og Sigurður var í þessu
tilviki, enda hafa þeir bestu upplýs-
ingarnar og þekkinguna á rekstri fé-
laga. Þegar innherjar selja hafa þeir
vara á, en telja það jákvætt að þeir
kaupi.
Hughreystir markaðinn
Eftir kaup Sigurðar Helgasonar, stjórnarformanns Icelandair, 17. janúar hafa
bréfin hækkað um 19% Skömmu áður var tilkynnt að blásið yrði til sóknar
Morgunblaðið/Eggert
Góð ávöxtun Icelandair Group hækkaði um 61% í Kauphöllinni á liðnu ári. Stjórnendurnir eru vongóðir um framtíðina og hafa pantað tólf nýjar flugvélar .
Treysta formanninum
» Sigurður Helgason, stjórn-
arformaður Icelandair Group,
þekkir fyrirtækið afar vel: hann
hóf störf hjá því árið 1974 og
var forstjóri þess 1985-2005.
» Hann keypti í félaginu í des-
ember fyrir 24 milljónir. Í kjöl-
farið hafa bréfin hækkað mik-
ið. Áður hafði verið tilkynnt um
umfangsmikil flugvélakaup.
Aldrei hafa jafnmargar hugmyndir
verið sendar inn í frumkvöðla-
keppni Innovit, Gulleggið, en alls
bárust 327 viðskiptahugmyndir í
keppnina í þetta skiptið. Að baki
hugmyndunum eru 530 þátttak-
endur sem munu þurfa að vinna að
þróun og framgangi sinna við-
skiptatækifæra á komandi misseri.
Í fyrra bárust 224 hugmyndir og
því er um tæplega 50% aukningu að
ræða milli ára.
Á næstu fimm vikum munu þátt-
takendur eiga kost á að sækja nám-
skeið og vinnusmiðjur skipulagðar
af Innovit og bakhjörlum keppn-
innar. Á námskeiðunum fá þátttak-
endur rýni og endurgjöf á hug-
myndir sínar ásamt þjálfun í gerð
viðskiptaáætlana og uppbyggingu
viðskiptahugmynda. Sigurvegari
keppninnar hlýtur verðlaunagrip-
inn Gulleggið 2013 og eina milljón
króna í peningum. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Innovit.
Frumkvöðlakeppni Innovit hefur
farið fram síðustu ár og vaxið með
hverju árinu. Alls hafa um þúsund
hugmyndir verið sendar inn til
þátttöku þau fimm ár sem keppnin
hefur verið haldin en keppnin í ár
er sú sjötta í röðinni.
Í tilkynningunni er sagt að Gull-
eggið sé fyrst og fremst stökk-
pallur fyrir framúrskarandi við-
skiptahugmyndir og vettvangur
þjálfunar og tengslanets fyrir há-
skólanemendur, nýútskrifaða og
frumkvöðla. Þar fái keppendur
stuðning og ráðgjöf með það að
markmiði að skapa grundvöll fyrir
ný fyrirtæki og verðmætasköpun á
Íslandi.
327 viðskipta-
hugmyndir
Aldrei fleiri hugmyndir í Gullegginu
Verðlaunin Gulleggið 2012.
● Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur
staðfest niðurstöðu Neytendastofu
sem sektaði Tal um 7,5 milljónir í fyrra.
Nefndin lækkaði hins vegar sektina í
fjórar milljónir króna.
Sektin var vegna brota á lögum um
viðskiptahætti og markaðssetningu og
eldri ákvörðunum stofnunarinnar. Brot-
in voru í sex liðum og fólust meðal ann-
ars í því að notast við orðið „frítt“ þegar
greiða þurfti fyrir aðra þjónustu til þess
að fá þá þjónustu sem sögð er „frí“.
Sekt Tals lækkuð
● Arion banki lauk á föstudag þriðja út-
boði bankans á sértryggðum skulda-
bréfum sem eru óverðtryggð. Alls voru
seld skuldabréf til fagfjárfesta fyrir
1.820 milljónir að nafnvirði í skulda-
bréfaflokknum Arion CB 15. Stærð
flokksins eftir stækkun er 4.340 millj-
ónir. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Skuldabréfin bera 6,50% óverð-
tryggða vexti og eru á lokagjalddaga ár-
ið 2015. Ávöxtunarkrafa er 6,50%.
Skuldabréfaútboð Arion
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./
,0/.1
+,2.03
,,.-1-
,,.-11
+2.124
+/3.54
+.5//+
+24.3
+30.12
+,-.4+
,05.03
+,2.51
,,.2,1
,,.2,,
+2.41/
+/3.-5
+.5/3/
+23.,2
+3+.03
,/,.44+-
+,-.2,
,05.14
+,2.-/
,,.22,
,,.2-2
+2.3+
+/-.,,
+.55+1
+23.--
+3+.11
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is
-VOTTUN ER OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
Opið: 08:00 - 17:00alla virka daga
• Hert gler
- Í sturtuklefa
- Í handrið
- Í rennihurðir
- Í milliveggi
• Speglar
- Á baðið
- Á ganginn
- Á skápinn
- Í eldhúsið
- Í barnaherbergið
- Í svefnherbergiðSENDUM UM ALLT LAND