Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013 ✝ HrafnhildurEygló Ólafs- dóttir fæddist á Þverá í Miðfirði 23. ágúst 1917. Hún lést á Höfða, hjúkr- unar- og dval- arheimili á Akra- nesi, 13. janúar 2013. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jó- hanna Margrét Halldórsdóttir frá Kárastöðum í Þingvallasveit og maður henn- ar, Ólafur Halldórsson, sem fæddur var í Litlu-Fellsöxl í Skilmannahreppi. Jóhanna Mar- grét lést árið 1921. Seinni kona Ólafs var Fanný Karlsdóttir. Systkini Hrafnhildar voru fimm: Gunnar, Halldóra, Að- alheiður, Herborg og Björgvin. Lifir Herborg nú ein þeirra systkina. Hinn 23. desember 1945 gift- ist Hrafnhildur Guðjóni V. Árnasyni bifreiðarstjóra frá Ráðagerði á Akranesi. Guðjón fæddist 10. maí 1912 og lést 26. 1d. Helga Hauksdóttir, f. 1978, lögfræðingur, sambýlismaður Geir Gestsson. Synir þeirra eru Guðmundur Hrafn, f. 2008, og Árni, f. 2006. 2) Sigrún, f. 1949, viðskiptafræðingur. Maki Há- kon Björnsson og eiga þau tvö börn. 2a. Björn Hákonarson, f. 1975, viðskiptafræðingur, maki María Ragna Aradóttir. Dóttir þeirra er Elísa, f. 2009. Dóttir Maríu er Ísabella Bragadóttir, f. 2001. Dóttir Björns og fyrri eiginkonu hans, Lindu Þóreyjar Svanbergsdóttur, er Berglind Rós, f. 1999. 2b. Hrafnhildur Hákonardóttir, f. 1976, við- skiptafræðingur, maki Guð- mundur Garðar Brynjólfsson. Börn þeirra eru Ólafur, f. 2002, Sigrún, f. 2004, og Hildur, f. 2009. Hrafnhildur ólst upp á Að- albóli í Miðfirði. Áður en hún giftist Guðjóni stundaði hún al- menna kaupavinnu og vann við húshjálp og barnagæslu. Eftir það var starfsævi hennar á heimilinu á Akranesi. Þau reistu sér hús á Háteigi 1 og þar bjó hún í rúmlega 50 ár. Síðustu árin dvaldi hún í góðu yfirlæti á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi. Útför Hrafnhildar verður gerð frá Akraneskirkju í dag, 22. janúar 2013, kl. 14. júní 1989. Dætur Hrafnhildar og Guðjóns eru: 1) Jó- hanna Margrét, f. 1947, framhalds- skólakennari. Fyrr- verandi maki er Haukur Ingibergs- son og eiga þau fjögur börn. 1a. Bergþór Hauksson, f. 1970, eðlisfræð- ingur og tölvunar- fræðingur, maki Áslaug Bjarna- dóttir. Sonur þeirra er Bjarni, f. 2011. Dóttir Áslaugar er Iðunn Ingólfsdóttir, f. 2005. Börn Bergþórs og fyrri eiginkonu, Sigríðar Ólafsdóttur, eru Breki, f. 1992 og Antonía, f. 1995. 1b. Þorgerður Hauksdóttir, f. 1971, hjúkrunarfræðingur, maki Gísli Brjánn Úlfarsson. Börn þeirra eru Berglind Björk, f. 1996, Haukur Gylfi, f. 1998, og Hildur Marín, f. 2004. 1c. Guðjón Hauksson, f. 1976, fé- lagsfræðingur, maki Hugrún R. Hjaltadóttir. Börn þeirra eru Hulda, f. 2008, og Egill, f. 2012. Hrafnhildur Ólafsdóttir er lát- in á 96. aldursári. Þó að segja megi að æviferill hennar hafi ekki verið ýkja ólíkur æviferli annarra íslenskra kvenna, sem voru henni samtíða, þá hefur mér alltaf fund- ist saga hennar sérstök. Hún fæddist í torfbæ á Þverá í Núps- dal í Miðfirði árið 1917. Hún var aðeins þriggja ára þegar móðir hennar lést frá fimm ungum börnum. Ólafur faðir hennar hætti þá búskap og börnunum var komið í fóstur í Miðfirði, í Kjós og í Reykjavík. Þessi lífs- reynsla hefur efalaust haft mikil áhrif á Hrafnhildi. Hrafnhildur ólst upp á Aðal- bóli í Miðfirði. Skólagangan var nokkurra mánaða sveitaskóli heima á Aðalbóli og eins vetrar dvöl í Reykholti. Á unglingsárum flytur hún til Reykjavíkur og er þá komin nær föður sínum og systkinum sem þar voru. Á þess- um árum vann Hrafnhildur í kaupavinnu og við húshjálp. Minntist hún oft með hlýju á þann tíma sem hún vann á heimili Helga Ingvarssonar læknis á Víf- ilsstöðum. Á stríðsárunum liggja leiðir Hrafnhildar til Akraness. Þar kynnist hún Guðjóni Árnasyni í Ráðagerði, eiginmanni sínum. Hjónaband þeirra var farsælt. Þau byggðu sér reisulegt hús á Ráðagerðislóðinni og þar ólu þau upp dæturnar, Jóhönnu Margréti og Sigrúnu. Þarna lifði Hrafnhildur ham- ingjutíma. Hrafnhildur og Guð- jón voru alþýðufólk. Hjá þeim var heimilishaldið einfalt og fábrotið en metnaðurinn fyrir velferð dætranna mikill. Þó að skóla- menntun þeirra væri ekki mikil báru þau mikla virðingu fyrir menntun og hvöttu og studdu dætur sínar í skólagöngu þeirra. Þegar Hrafnhildur og systkini hennar komust á efri ár var eins og þau vildu bæta sér upp að- skilnaðinn í æsku þeirra. Þau leit- uðu mjög eftir samvistum hvert við annað og fundu sér oft tilefni til að hittast og vera öll saman þó að nokkur fjarlægð væri á milli heimila þeirra. Hrafnhildur var lágvaxin og grönn kona. Hún var kvik í hreyf- ingum og létt á fæti. Fæðingar- galla hafði hún á hægri hendi, þar sem vantaði fjóra fingur. Þetta lét Hrafnhildur aldrei há sér við störf sín. Hrafnhildur hafði létta lund. Hún var mjög geðprúð og sá ég hana aldrei reiðast eða missa stjórn á skapi sínu. Hún bar hlýhug til samferðafólks síns og gladdist yfir velgengni ann- arra. Síðustu árin hefur elli kerling sótt á. Frá árinu 2002 dvaldi Hrafnhildur á hjúkrunarheim- ilinu á Höfða. Þar leið henni vel þó að geta hennar til samskipta hafi verið lítil hin síðari ár. Að leiðarlokum þakka ég tengdamóður minni samfylgdina og þá fórnfýsi og umhyggju sem hún hefur alltaf sýnt okkur hjón- unum og börnum okkar. Hákon Björnsson. Í dag kveð ég Hrafnhildi ömmu mína og langar mig að minnast hennar með nokkrum orðum. Amma mín var einstaklega já- kvæð og hjartahlý kona og af- skaplega dugleg að sinna okkur barnabörnunum. Hún var áhuga- söm um allt sem við tókum okkur fyrir hendur hverju sinni og var ætíð umhugað um líðan okkar. Heimili ömmu og afa á Akra- nesi var látlaust og stóð opið öll- um þeim sem þangað vildu koma. Þar leið mér vel og á ég þaðan margar dýrmætar minningar. Tvíbökumjólkin, dýrasúkkulaðið í fataskápnum og gosflöskurnar í tröppunum vöktu kátínu hjá okk- ur krökkunum en mest spenn- andi voru þó ferðirnar upp á háa- loft. Þar ægði saman alls kyns dóti og framandi hlutum sem mynduðu ævintýraheim fyrir okkur barnabörnin. Amma var mikil spilakona og var stokkurinn aldrei langt und- an. Ég hef alltaf dáðst að því hversu dugleg og þolinmóð hún var við okkur barnabörnin þegar kom að því að spila á spil. Við nöfnurnar áttum okkar uppá- haldsspil sem heitir marías og minnist ég þess að hafa setið með henni tímunum saman með spil í hendi maulandi kandís úr skál- inni á eldhúsborðinu. Iðulega fékk hún eintóma hunda en ég sat uppi með fullt af stigum og óvenju oft bar ég sigur úr býtum. Amma mín var orðin gömul og síðustu ár voru henni erfið. Hún dvaldi þó í góðu yfirlæti á Höfða og kann ég starfsfólkinu þar bestu þakkir fyrir umönnunina. Ég kveð ömmu mína með söknuði og ber nafn hennar með stolti. Hrafnhildur. Ráðagerði heitir húsið sem Hrafnhildur bjó í lengst af með Guðjóni sínum. Segja má að húsið beri nafn með rentu, því þau hjónin virtust alltaf eiga ráð und- ir rifi hverju. Við systkinin á Vesturgötu 32 vorum svo einstaklega heppin að búa í næsta húsi við þau heiðurs- hjón og áttum ávallt hjá þeim öruggt skjól og í þeim trygga bandamenn. Hrafnhildur, sem nú kveður, sýndi okkur ávallt kær- leika í verki og til hennar var gott að koma hvert sem erindið var. Stundum fengum við hjálp með heimalærdóminn eða hjálp við að laga fötin okkar. Svo ekki sé nú talað um heimabökuðu vínar- brauðin og annað bakkelsi sem ávallt var á boðstólum. Það var einhvern veginn þannig að alltaf komst betra skikk á hlutina, þeg- ar búið var að líta inn í Ráðagerði. Hrafnhildur var myndarleg kona, kvik á fæti, gekk daglega um allan Skagann löngu áður en trimmið komst í tísku. Hún var ávallt fallega klædd, í fínni kápu með hatt og veski, sem var henn- ar göngudress, síðbuxur voru ekki fyrir hennar smekk. Hún gaf sig á tal við fólk og var í eðli sínu ákaflega félagslynd. Hún kom oftar en ekki í eld- húsið til mömmu að loknum göngutúr og þær fóru yfir stöðu mála á Skaganum. Það sem við dáðumst kannski allra mest að í fari hennar var hvað hún var klár kona, dugleg og hörð af sér, æðrulaus og nægjusöm, einhvern veginn laus við allt vol og víl. Hún fæddist með fötlun á hægri hendi sem hún virtist aldr- ei láta trufla sig. Við krakkarnir störðum á hana vinna fínustu handavinnu og hvernig hún gat látið nálar og títuprjóna leika í höndum sér. Við spurðum barna- legra spurninga, hvernig hún gæti þetta og alla þessa putta vantaði. Þá svaraði hún að hönd hennar væri svona, því Guð hefði ekki átt nægjanlega marga fing- ur fyrir sig, á því augnabliki sem hann skapaði hana. Þetta var dæmigert viðhorf hennar til lífs- ins og þetta viðhorf gerði hana að hamingjusamri konu. Hún gerði sannarlega alltaf það besta úr því sem úr var að spila. Þau voru einstaklega samrýnd hjónin Guðjón og Hrafnhildur, og þeirra mesta gleði í lífinu voru dæturnar Jóhanna Margrét og Sigrún og ekki dró úr gleðinni þegar barnabörnin, hvert öðru efnilegra, komu til sögunnar. Nú kveður velgjörðarkona okkar í hárri elli, fyrir löngu tilbúin í ferðina sem bíður okkar allra. Það er gott að trúa því að nú séu hjónin í Ráðagerði saman að nýju. Við þökkum allt gott í okkar garð og biðjum Guð að blessa minningu Hrafnhildar í Ráðagerði. Matthea Kristín, Haraldur, Sveinn, Rannveig, Sturlaug- ur og Helga Ingunn Stur- laugsbörn. Hrafnhildur Eygló Ólafsdóttir Elsku amma Bogga. Þú varst svo yndisleg og fal- leg amma og langamma. Þú varst alltaf ljúf og góð og gafst þér alltaf tíma fyrir okkur barnabörnin og langömmustelp- urnar þínar. Þú sast hjá okkur, talaðir við okkur, last fyrir okk- ur og söngst eða hummaðir okkur í svefn og alltaf varstu tilbúin að strjúka á okkur fæt- urna eða bakið ef við gátum ekki sofnað. Það er svo gott að hafa átt þig að. Þú endaðir samtal ævinlega á því að segja okkur að þér þætti vænt um okkur og þú baðst guð að geyma okkur. Hlý og góð orð sem eiga eftir að fylgja okkur um ókomna tíð eins og minn- ingin um þig, elsku amma. Sjá, hér tímans brotnar bára, byltist fram með straumi ára; geirar milli hærðra hára, hrukkótt ennið nýtur sín. – Þetta er hún amma mín. Á myrku vetrar köldu kveldi kveikir hún ljós og gerir að eldi, Gunnlaug Sigurbjörg Sigurðardóttir ✝ Gunnlaug Sig-urbjörg Sig- urðardóttir fædd- ist á Geirmundar- stöðum í Sæmund- arhlíð 7. október 1921. Hún lést á Heilbrigðisstofn- uninni Sauð- árkróki 7. janúar 2013. Jarðsungið var frá Sauðárkróks- kirkju 15. janúar 2013. hver athöfn greypt í æðra veldi, enginn mistök, léttúð, grín. – Amma vandar verkin sín. Hún les á kvöldin, segir sögur, semur jafnvel stund- um bögur. Þá er hún í framan fögur, fegri en nokkur blómarós. – Þó fær amma aldrei hrós. Þótt hún sömu verkin vinni, vefi, tæti, kembi, spinni, alltaf er hennar sama sinni, sífelld vinnugleði og fjör. – Svona eru ömmu ævikjör. Amma mín er fyrst á fætur, flýr hún langar vökunætur. Þegar barnabarnið grætur, bregst hún þá við létt og ör. – Amma forðast feigðarkjör. Amma er dáin, dagur liðinn, Drottinn veitti henni friðinn. Enn eru sömu sjónarmiðin, sami áhuginn og fyrr – fyrir innan Drottins dyr. (Haraldur Hjálmarsson) Við eigum eftir að sakna þín mikið en það er gott að hugsa til þess að þú ert komin til hans afa og við vitum að hann hefur tekið vel á móti þér. Okkur þykir vænt um þig, guð geymi þig. Grétar Rafn, Fanney, Kristinn Þórir og langömmustelpurnar þínar. Þegar ég sest niður til að skrifa fáein minningarorð um vin minn og fyrrverandi samstarfs- kennara við Seljaskóla, Ásgeir Pálsson, verður mér hugsað til þess hversu hollt það hafi verið nýútskrifuðum kennara að ráða sig til starfa við glænýjan skóla í hópi reyndra kennara. Við Ásgeir vorum í hópi þeirra kennara sem Hjalti skólastjóri réð með sér til starfa í Seljaskóla haustið 1979. Í sjö ár áttum við Ásgeir ánægju- legt og gefandi samstarf þar sem óskorað traust og trúnaður ríkti á milli okkar frá fyrsta degi. Lengst af starfaði Ásgeir sem yf- irkennari við skólann. Við kenndum fyrsta árið í sam- liggjandi stofum. Það var vissu- lega traustvekjandi fyrir nýlið- ann að hafa þennan stæðilega kennara við hlið sér. Skemmti- legt var þegar tími gafst til að hlusta á frásagnir Ásgeirs frá æskustöðvum hans í jaðri sunn- lenskra fjalla, sögur hans af merkilegu samferðafólki og síð- ast en ekki síst skemmtilegar sögur úr skólastofunni. Mér er það sérstaklega minnisstætt hversu góður teiknari Ásgeir var. Margsinnis nýtti hann þessa hæfileika sína við kennsluna. Ásgeir Pálsson ✝ Ásgeir Pálssonfæddist að Hjálmsstöðum í Laugardal 25. sept- ember 1928. Hann lést 27. desember 2013 á Hrafnistu í Kópavogi. Útförin fór fram frá Seljakirkju í Reykjavík 9. janúar 2013. Námsefnið reyndist nemendum Ásgeirs auðskilið þegar teikningar hans birtust á krítartöfl- unni samhliða yfir- ferð í sögu og landa- fræði. Einnig braut Ásgeir upp kennslu- stundirnar með áhugaverðum sög- um og teikningum frá sinni eigin reynslu og upplifun, undantekn- ingarlaust í faðmi íslenskrar náttúru. Samskipti okkar Ásgeirs voru alltaf svo auðveld og ánægjuleg. Engar málalengingar né óþarfa vangaveltur. Verkin látin tala. Mér þótti það líka mikill heiður þegar Ásgeir óskaði þess sér- staklega að ég kenndi syni hans, Jóni Páli, þegar drengurinn var að hefja skólagöngu í 1. bekk. Þarna upphófst fjögurra ára ánægjulegt samstarf við þau hjónin Ásgeir og Gullu sem ein- kenndist af þeirra hálfu af trausti og hvatningu. Stolt vorum við öll af áhuga og árangri unga manns- ins í skólanum. Ég verð enda- laust þakklátur Ásgeiri og þeim góðu kennurum sem ég kynntist fyrsta árið mitt í Seljaskóla. Frá þeim hlaut ég gott veganesti sem nýst hefur mér vel í starfi síðan bæði sem kennari og skólastjóri. Minningar mínar um Ásgeir eru bjartar og ég er þakklátur fyrir að hafa átt hann að vini og sam- starfsmanni. Ég votta þeim börnum hans, Jóni Páli og Rósu, samúð mína. Blessuð sé minning Ásgeirs Páls- sonar. Helgi Árnason. ✝ Faðir minn, tengdafaðir og afi, EBENEZER JENSSON, Hellisbraut 20, Reykhólum, verður jarðsunginn frá Reykhólakirkju föstudaginn 25. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð. Kristján Þór Ebenezersson, Rebekka Eiríksdóttir og barnabörn. ✝ INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR frá Ökrum, Ánahlíð 16, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju miðvikudaginn 23. janúar kl. 13.00. Gunnar Þór Ólafsson, Dagný Þorsteinsdóttir, Þórir Jökull Þorsteinsson, Böðvar Bjarki Þorsteinsson, Kolbeinn Þorsteinsson, Guðný Ása Þorsteinsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÞÓRDÍS ÞÓRHALLSDÓTTIR, Sólheimum 23, Reykjavík, áður húsfreyja á Melum í Hrútafirði, verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtu- daginn 24. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Elsa Jónasdóttir, Gunnar Guðjónsson, Ína Halldóra Jónasdóttir, Eggert Sveinn Jónsson, Þóra Jónasdóttir, Birna Jónasdóttir, Gunnar Friðgeir Vignisson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.