Morgunblaðið - 22.01.2013, Síða 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET.
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR.
PARKET...DÚKAR...FLÍSAR
FLÍSAR...TEPPI...PARKET
DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET
DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PAR
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR.
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Plastparket
frá kr. 1.390 m2
Baðherbergisvörur
20 -70% afsláttur
L
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ása Guðný Ásgeirdóttir,landsliðskona í hjólreið-um, verður meðal kepp-enda í Uphill duel-mótinu
næstkomandi föstudag. Þetta er í
fyrsta sinn á Íslandi sem Hjólreiða-
félag Reykjavíkur heldur slíkt mót
en það fer fram í miðbæ Reykjavík-
ur og því hæg heimatökin fyrir
borgarbúa að koma og fylgjast með.
Áhuginn kviknaði ytra
Ása Guðný byrjaði að hjóla
þegar hún var í námi í Bandaríkj-
unum. Þar keppti hún í ýmsum
smærri keppnum og síðan þá hafa
hjólreiðar verið hennar helsta
áhugamál. Hún fór markvisst að
æfa hjólreiðar fyrir um þremur ár-
um og hefur keppt hérlendis í ýms-
um keppnum síðan þá. Þá var Ása
Guðný í landsliðinu fyrir síðustu
Smáþjóðaleika árið 2011 en komst
ekki áfram. Í ár stefnir hún því
ótrauð að því takmarki á ný.
Ása Guðný æfir með Hjólreiða-
félagi Reykjavíkur og reynir að
mæta á æfingar nokkuð reglulega.
Hún æfir að mestu innandyra nú
yfir vetrartímann og þjálfar upp
bæði styrk og þol.
„Þetta er mikil úthaldsíþrótt
en það skiptir líka máli að hafa gott
jafnvægi og eins að hafa úthald í að
geta sprett svolítið undir lokin.
Þess vegna skiptir styrkur í löppum
líka miklu máli. Ég á tvö börn og
maðurinn minn hjólar líka svo við
þurfum að skiptast dálítið á og
reyna að nýta vel þann æfingatíma
sem við höfum. Þar sem ég hef ekki
mikinn tíma til að æfa úthaldið tek
ég mest stuttar æfingar þar sem ég
keyri alveg í botn til að vinna á
móti því að geta ekki farið út að
hjóla í fjóra tíma,“ segir Ása
Guðný.
Ýmiss konar hjól í mið-
bænum
Ása Guðný segir keppni líkt og
þá sem haldin verður á föstudaginn
henta vel á þessum árstíma enda
séu stuttir sprettir ákjósanlegir
þegar kalt er í veðri. Keppnin er út-
sláttarkeppni þar sem tveir kepp-
endur í senn þeysast af stað. Sá
sem vinnur heldur síðan áfram og
því hjólar sá sem vinnur nokkuð oft
sama sprettinn. Karlkyns kepp-
endur sem hafa skráð sig til leiks
eru 16 en konurnar fjórar sem þýð-
ir að karlarnir munu púla talsvert
meira. Um leið og hjólakapparnir
fara af stað gefa þeir í og spretta
þá 70 metra vegalengd sem farin er
í mótinu.
„Maður hjólar alltaf þannig að
maður er festur í pedölunum en
þarna er manni haldið og ýtt af stað
svo þá er bara að passa að vera í
réttum gír. Keppendur velja sér
hvernig hjóli þeir vilja keppa á og
ég býst við að sjá alls konar hjól.
Sjálf ætla ég að mæta á götuhjólinu
sem er léttara en fjallahjólið. Ann-
ars eru BMX líka skemmtileg hjól
með enga gíra og því þarf maður
alltaf að vera að hjóla. Ég væri til í
að prófa slíkt hjól einn daginn. Það
verður spennandi að taka þátt í
þessu móti og færir okkur keppn-
isfólkinu í hjólreiðum nýja mögu-
leika,“ segir Ása Guðný.
Hjólar dags daglega
Hún segir mótið líka vel stað-
sett á Skólavörðustígnum og
skemmtilegt sé fyrir almenning að
koma og horfa og kynnast íþrótt-
inni. Hjólreiðar hafi aukist mikið
hérlendis og segir Ása Guðný mótið
gefa gott tækifæri á að sýna fólki
að hjólið sé ekki eingöngu frábært
samgöngutæki. Ása Guðný og eig-
inmaður hennar búa bæði frekar
Hjólreiðagarpar spretta
á Skólavörðustígnum
Uphill duel kallast hjólreiðamót sem fram fer á Skólavörðustígnum næstkomandi
föstudag. Þar spretta hjólreiðagarpar 70 metra vegalengd á hjóli að eigin vali en
Hjólreiðafélag Reykjavíkur stendur fyrir mótinu í tengslum við RIG (Reykjavík
International Games). Ása Guðný Ásgeirsdóttir, landsliðskona í hjólreiðum, er
ein þeirra sem keppa á mótinu og nýtir hún æfingatímann sinn vel.
Sprettur Hafsteinn Ægir Geirsson og Helgi Berg Friðþjófsson eigast við.
Mót Alma María Rögnvaldsdóttir, Ása Guðný og María Ögn Guðmundsdóttir.
Ljósmynd/Örn Sigurðsson
Vefsíðan yogajournal.com er fróð-
leg og nytsamleg fyrir alla þá sem
hafa áhuga á að kynna sér eða
iðka jóga. Á síðunni er að finna
kennslumyndbönd í jóga og hug-
myndir að einföldum æfingum sem
þú getur gert í vinnunni. Hver jóg-
astelling er útskýrð í máli og
myndum sem gerir það einfalt að
fylgja þeim eftir. Þú getur jafnvel
búið til þitt eigið jógaherbergi
heima við eða á skrifstofunni með
litlum tilkostnaði.
Á síðunni má einnig finna lífs-
stílstengdar jógagreinar og finna
krækjur á bloggsíður fólks sem
gefur góð ráð um jóga. Áhugaverð
síða sem sett er upp á not-
endavænan og aðgengilegan hátt.
Vefsíðan www.yogajournal.com
Morgunblaðið/Kristinn
Jóga Liðkandi og skemmtilegt fyrir fólk á öllum aldri og börn líka.
Jóga heima í stofu eða í vinnu
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Framfarir, hollvinafélag millivega-
lengda og langhlaupara, völdu á laug-
ardaginn síðastliðinn framúrskarandi
hlaupara og hlaupahóp ársins 2012.
Framfarir hafa staðið að valinu í 10 ár
og á þeim tíma hafa 32 einstaklingar
og hópar hlotið nafnbótina hlaupari
ársins, hlaupahópur ársins, ein-
staklingur með mestu framfarirnar
og efnilegasti unglingurinn. Úrslitin í
ár urðu sem hér segir í flokki
kvenna;.
Hlaupari ársins og mestu framfar-
ir: Rannveig Oddsdóttir, UFA
Efnilegasti unglingurinn: Aníta
Hinriksdóttir, ÍR.
Í flokki karla urðu úrslitin svo:
Hlaupari ársins: Kári Steinn Karlsson,
Breiðabliki. Mestu framfarir: Ingvar
Hjartarson, Fjölni. Efnilegasti ung-
lingurinn: Arnar Orri Sveinsson.
Hlaupahópur ársins:
Afrekshópur – Ármann, Daníel
Smári Guðmundsson.
Framfarir veita viðurkenningu
Morgunblaðið/Golli
Hlaupari ársins Í flokki karla bar Kári Steinn Karlsson sigur úr býtum.
Framúrskarandi hlauparar
og hlaupahópar ársins