Morgunblaðið - 22.01.2013, Qupperneq 17
gerðum var lokið fyrir miðnætti.
Deilur höfðu lengi staðið yfir um
fyrirhugaðar framkvæmdir í Mý-
vatnssveit og Laxárdal. Ekkert var
rætt við heimamenn en fyrirhugaðir
voru gífurlegir vatnaflutningar, m.a.
átti að veita Skjálfandafljóti austur
og búa til miðlunarlón í Mývatns-
sveit, heldur stærra en Mývatn.
Stíflan við Miðkvísl hefði orsakað
svo mikla vatnsborðshækkun að
sögn, að byggð í Laxárdal hefði far-
ið í eyði. Þegar ekkert var gert með
mótmæli heimamanna – sem ótt-
uðust ekki síst að viðkvæmt lífríki
Laxár og Mývatns skaðaðist veru-
lega til frambúðar – var ákveðið að
grípa til örþrifaráða.
„Fólki fannst ekki síðra að nota
sprengiefni frá þeim sjálfum!“ segir
einn viðmælenda í myndinni, Hólm-
fríður Jónsdóttir frá Arnarvatni.
Áður en gripið var til sprengi-
efnis hafði ýmislegt verið reynt til
að mótmæla. Meðal annars fór fjöl-
menn bílalest frá Húsavík til Ak-
ureyrar til þess að afhenda bæj-
arstjóranum þar formleg mótmæli
vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
Svo fór að fallið var frá hinum
stórtæku virkjanahugmyndum
þannig að breytingar við Mývatn
urðu engar en rennslisvirkjun mun
neðar í ánni byggð í staðinn.
Dóm hlutu 63, sem fyrr segir, en
mun fleiri kváðust bera ábyrgð á
verknaðinum og voru mörg dæmi
um að menn reyndu að fá sig sjálfa
sig kærða! „Ég man ekki eftir nein-
um í sveitinni sem voru andvígir að-
gerðum við stífluna. Æði margir
komust reyndar ekki á staðinn,
voru uppteknir, og urðu sárir yfir
því að fá ekki að vera með!“ segir
Ásmundur á Hofsstöðum við Morg-
unblaðið, en bróðir hans var Guð-
mundur, einn sprengjumannanna.
„Blessuð sértu áin mín“
Hólmfríður Jónsdóttir, sem áður
er nefnd, er systurdóttir Eysteins á
Arnarvatni Sigurðssonar, stjórn-
armanns í Landeigendafélaginu.
Vert er að geta þess að Eysteinn
átti forláta Bedford-bíl sem fór fyrir
bílalestinni frá Húsavík til Akureyr-
ar í mótmælaferðinni frægu. Á hann
var fest skilti með áletruninni Með
lögum skal land byggja en með
ólögum eyða.
Ýmis ættjarðarlög voru sungin
við Miðkvísl að kvöldi 25. ágúst
1970, t.d. Blessuð sértu sveitin mín,
eftir Sigurð Jónsson, föður Ey-
steins. Reyndar var kvæðið sungið í
tveimur útgáfum; bæði þeirri hefð-
bundnu og einnig sem Blessuð sértu
áin mín.
Kvikmyndin Hvellur verður
frumsýnd í Bíó Paradís í Reykjavík
á morgun. Leikstjóri er Grímur Há-
konarson en myndin er framleidd af
Sigurði Gísla Pálmasyni og Hönnu
Björk Valsdóttur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hvellur Arngrímur Geirsson „sprengjumaður“ annar frá vinstri á fremsta bekk á forsýningunni í Skjólbrekku.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
Bræðurnir á Hofsstöðum, Ás-
mundur og Guðmundur Jóns-
synir, komu báðir við sögu
kvöldið eftirminnilega við Mið-
kvísl. „Ég missti af mesta gamn-
inu,“ segir Ásmundur og glottir í
samtali við blaðamann, „vegna
þess að ég var á dráttarvélinni
minni neðan við stífluna. En
Guðmundur var í stærra hlut-
verki.“
Guðmundur, sem er nýlátinn,
var einn þeirra þriggja sem
sprengdu stífluna. „Honum hefur
stundum verið eignuð spreng-
ingin þótt aðrir hafi verið með
honum,“ segir Ásmundur.
Guðmundur stundaði minka-
veiðar og hafði þess vegna leyfi
til að sprengja með dínamíti;
það var stundum eina leiðin til
að ná dýrunum út úr gjótum í
hrauninu. Guðmundur kunni því
vel með sprengiefni að fara.
Ásmundur var alsæll með
myndina. „Ég er mjög ánægður
með hana. Mér finnst hafa tekist
alveg ljómandi
vel til,“ segir
hann. Töluvert
er rætt við þá
bræður báða í
myndinni. Og
atburðirnir eru
honum að sjálf-
sögðu mjög
minnisstæðir.
„Það var góður andi í hópnum,
allir áhugasamir og skemmtu sér
vel. Bæði karlar og konur, þær
voru ekki síður harðar en þeir.“
Ásmundur segir kvöldið eft-
irminnilegt en einnig næsta dag.
„Þá komu lögreglumenn að
kynna sér málið, ég fór og sýndi
þeim hvar við höfðum tekið
bæði dínamítið og hvellhett-
urnar. Hvort tveggja var geymt í
hellum, hvort á sínum staðnum.
Þetta hafði verið þarna lengi
vegna þess að þegar klakastíflur
komu í ána voru þær stundum
sprengdar til að losna við þær,“
segir Ásmundur.
„Missti af mesta gamninu“
ÁSMUNDUR JÓNSSON Á HOFSSTÖÐUM
Ásmundur
Jónsson
„Myndin gerir enga tilraun til að
vera heimild um Laxárdeiluna í
heild, en mér finnst hún góð
sem heimild um viðhorf heima-
manna í deilunni,“ sagði Kári
Þorgrímsson í Garði. Hann er
sonur hjónanna Jakobínu Sig-
urðardóttur og Starra, sem var
einn forystumanna þeirra sem
börðust fyrir verndun náttúru
Mývatns.. „Ég var ekki við Mið-
kvísl enda ekki nema ellefu ára
gamall þegar þetta gerðist.
Tengsl mín við Laxárdeiluna voru
í gegnum pabba, sem var í
stjórn Landeigendafélagsins.“
Kári segir kvikmyndagerð-
arfólkið hafa viljað tala við af-
komanda fólks
sem stóð í eld-
línunni og segir
töluvert frá.
„Þetta voru
uppreisnartímar;
hipparnir voru
upp á sitt besta
og vopnaðar
skæruliðahreyf-
ingar víða. Mannkynið var í upp-
reisnarhug gegn ríkisvaldi og
ríkjandi gildum og hér í Mý-
vatnssveit bættist Laxárdeilan
við!“ Hann man vel nóttina eftir
sprenginguna. „Þá tóku þeir af
okkur rafmagnið um tíma; sendu
okkur kveðju...“
„Þeir sendu okkur kveðju...“
KÁRI SONUR STARRA Í GARÐI
Kári Þorgrímsson
FÆST Í NÆSTA APÓTEKI
HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Á FRÁBÆRU VERÐI.
ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI.
HLÚÐU AÐ VIÐKVÆMRI HÚÐ Í FROSTINU
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Samkvæmt lögum VR gerir Uppstillinganefnd tillögu um skipan í trúnaðarráð
félagsins. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið
uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12 á hádegi þann 1. febrúar nk.
Uppstillinganefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins
og mögulegt er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsmanna. Einnig verður litið
til félagsaðildar og starfa fyrir félagið.
Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis
stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins svo sem við gerð
kjarasamninga og stærri framkvæmda.
Uppstillinganefnd VR
Viltu leggja þitt af
mörkum í starfi VR?