Morgunblaðið - 22.01.2013, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2013
ITS PART JASON BOURNE,
PART DIRTY HARRY.
-EMPIRE
-TOTAL FILM
-THE HOLLYWOOD REPORTER
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
NAOMI WATTS TILNEFND
TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
"SKOTHELD Í ALLA STAÐI!"
- HELGI SNÆR SIGURÐSSON,
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR VONBRIGÐUM.
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
FRÁBÆR MYND MEÐ
GERALD BUTLER OG ELISABETH SUE
SURPRISING
-ROGER EBERT
SOLID PERFORMANCES
-HOLLYWOOD REPORTER
MÖGNUÐ NÝ ÍSLENSK MYND
3 ÓSKARSTILNEFNINGAR
-SÉÐ & HEYRT/VIKAN
“THE BEST FILM OF “SPELLBINDING
DGA
AWARD NOMINEE
BEST DIRECTOR
PGA
AWARD NOMINEE
BEST PICTURE OF THE YEAR
WGA
AWARD NOMINEE
BEST ADAPTED SCREENPLAY
SAG AWARD®
N O M I N A T I O N S
OUTSTANDING PERFORMANCE BY A
MALE ACTOR IN A SUPPORTING ROLE
OUTSTANDING PERFORMANCE BY A
CAST IN A MOTION PICTURE
2
ACADEMY AWARD
®
NOMINATIONS7
INCLUDING
BEST PICTURE
GRANT HESLOV BEN AFFLECK GEORGE CLOONEY
WINNER
BEST PICTURE BEST DIRECTOR
CRITICS CHOICE AWARDS
BEN AFFLECK
WINNER
BEST PICTURE BEST DIRECTOR
GOLDEN GLOBE® AWARDS
DRAMA
7 TILN FNING R TILÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA MYND
BESTA YND
BESTA MYND
BESTI LEIKSTJÓRI
BESTI LEIKSTJÓ I
SIGURVEGA I
MEÐAL ANNARS
SIGURVEGA I
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
XL KL. 5:50 - 8 - 10:30
CHASING MAVERICKS KL. 8 - 10:30
JACK REACHER KL. 5:20 - 8 - 10:40
JACK REACHER VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40
HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY3D KL. 5 - 8:30
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50 KRINGLUNNI
XL KL. 5:50 - 8 - 10:10
JACK REACHER KL. 5:20 - 10:20
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30
SINISTER KL. 8
DJANGO UNCHAINED KL. 5 - 8 - 10:30
CHASING MAVERICKS KL. 5:30 - 8
JACK REACHER KL. 8 - 10:40
THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8
LIFE OF PI3D KL. 5:20
ARGO KL. 10:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
DJANGO UNCHAINED KL. 8
XL KL. 8
CHASING MAVERICKS KL. 10:10
HVÍTI KÓALABJÖRNINN ÍSLTAL KL. 6
SAMMY 2 ÍSLTAL KL.6
AKUREYRI
XL KL. 6 - 8
CHASING MAVERICKS KL. 10:10
JACK REACHER KL. 10:10
THE IMPOSSIBLE KL. 8
RISEOFTHEGUARDIANS ÍSLTAL3D KL. 6
ÞRIÐJUDAGS
TILBOÐ Í DAG
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
ENN EITT STÓRVIRKIÐ FRÁ TARANTINO.
-GÍSLI FREYR VALDÓRSON, VIÐSKIPTABLAÐIÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
TILB
OÐ
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Flowers nefnist nýjasta breiðskífa
Sin Fang, þ.e. tónlistarmannsins
Sindra Más Sigfússonar sem einnig
kemur fram með hjómsveit undir því
nafni. Platan verður gefin út form-
lega 1. febrúar en Sin Fang mun
einnig gefa hana út á hjólabrettum.
Brettunum fylgir kóði sem kaupandi
getur slegið inn á netinu og halað
niður plötuna. Tvö ólík bretti verða
til sölu, prýdd málverkum Sindra en
hann er bæði myndlistar- og tónlist-
armaður. Framleiðandi brettanna er
fyrirtækið Alien Workshop en það
hefur áður framleitt bretti í sam-
starfi við tónlistarmenn. Spurður að
því hvernig þetta hafi komið til, að
platan væri gefin út á hjólabrettum,
segir Sindri að eigandi Alien Work-
shop sé mikill áhugamaður um Ís-
land og hafi komið á myndlistarsýn-
ingu á síðustu Iceland Airwaves
tónlistarhátíð þar sem Sindri átti
verk. Þeir hittust á sýningunni og
kviknaði þar sú hugmynd að Sindri
myndi myndskreyta bretti og að nið-
urhalskóði á plötuna nýju myndi
fylgja þeim. Á brettunum mun
standa „Sin Fang“ (sjá mynd) og á
þeim verður blanda af nokkrum
verkum Sindra, að hans sögn.
Líkt og á fyrstu tveimur plötum
Sin Fang, Clangour og Summer
Echoes, (Sin Fang hét reyndar Sin
Fang Bous á fyrstu plötunni) skart-
ar Sindri skrautlegu skeggi á um-
slagi nýju plötunnar, að þessu sinni
blómaskeggi. „Á fyrstu plötunni þá
gerðum við skegg úr mislitum papp-
ír og ég veit ekki alveg hver pæl-
ingin var á bakvið það, þetta var
bara eitthvað sem mér datt í hug,“
segir Sindri, spurður út í skeggin. Á
næstu plötu hafi hann ákveðið að
búa til annað skegg og var það hekl-
að. Flowers verður síðasta „skegg-
plata“ Sin Fang og segir Sindri
skegg-þríleik þar með lokið.
Gleði og sorg
En gefur skeggið eitthvað til
kynna um innihaldið? Er það vísun í
náttúrustemningu? „Ekki beint,“
svarar Sindri. „Það lá bara beinast
við að gera þetta blómaskegg af því
platan heitir Flowers en nafnið á
plötunni er tengt þemanu textalega
á henni. Þetta er svona unglings-
áraþema, lauslega byggt á því og
mér fannst blóm passa vel við það
því þau eru bæði notuð við gleðileg
tilefni og sorgleg, eins og unglings-
árin eru, svona upp og niður. Mér
fannst það ramma þema plötunnar
inn,“ segir Sindri.
– Mikil gleði og mikil dramatík?
„Einmitt, eins og unglingsárin eru
og ég held ég hafi aldrei verið jafn-
væminn á neinni plötu,“ bætir Sindri
við. Er hann þá að verða væmnari
með aldrinum? „Nei, nei, ég held það
hafi bara verið út af þessu þema sem
ég datt inn á þegar ég var búinn að
semja nokkur lög,“ svarar Sindri.
Hann hafi samið mjög mörg lög fyrir
plötuna og látið Alex Somers, upp-
tökustjóra og framleiðanda hennar,
hafa 26 lög og úr þeim hafi þeir á
endanum valið tíu. Vinur hans Eirík-
ur Orri Ólafsson, tónskáld og tromp-
etleikari, hafi svo útsett strengi og
brass fyrir lögin.
– Er tónlistin á þessari plötu ólík
tónlistinni á fyrri tveimur?
„Þetta er alla vega stærst sánd-
andi platan,“ svarar Sindri. Síðasta
plata hafi verið kaflaskiptari og ekki
eins aðgengileg og þessi. Flowers sé
poppaðri, meiri áhersla lögð á popp-
elementin í lögunum.
– Tónlist sem myndi henta banda-
rískri „indí“-mynd kannski?
„Já, það gæti passað vel,“ segir
Sindri og hlær. „T.d. í Juno 2,“ bætir
hann sposkur við.
Bara bull
Talið berst að nafninu Sin Fang.
Sindri er allt í öllu í Sin Fang, semur
alla tónlist og texta og má því í raun
kalla þetta eins manns verkefni.
Þegar að tónleikum kemur þarf hins
vegar að kalla til fleiri tónlistarmenn
og þá er Sin Fang hljómsveit. En
hvað þýðir Sin Fang? Er það bull?
„Já, þetta er bara bull. Mig langaði
að búa til nafn sem þýddi ekki neitt
og þetta var nú mikið af stöfum úr
nafninu mínu sem ég endurraðaði,“
svarar Sindri. Sin Fang er enda for-
vitnilegra nafn en Sindri Már. Um
það eru blaðamaður og viðmælandi
sammála.
„Ég held ég hafi aldrei
verið jafnvæminn“
Sindri skartar skeggi í þriðja sinn á þriðju skífu Sin Fang
Ljósmynd/Ingibjörg Birgisdóttir
Skeggjað Sindri Már með blómlegt alskegg fyrir plötuna Flowers.
Bretti Hjólabretti myndskreytt af
Sindra og merkt Sin Fang.
Fjöldi tónlistarmanna kemur fram
á veitinga- og skemmtistaðnum
SPOT í Kópavogi á laugardaginn,
26. janúar, í tilefni af því að 40 ár
verða þá liðin frá því eldgosið í
Heimaey hófst. Listamennirnir eiga
það sameiginlegt að hafa búið í
Vestmannaeyjum til lengri eða
skemmri tíma. Meðal þeirra sem
skemmta munu gestum eru Logar,
7-und, Bjartmar Guðlaugsson,
sönghópurinn Blítt og létt og
hljómsveitin Obbossí. Logar er ein
þekktasta hljómsveit Eyjamanna
fyrr og síðar og á m.a. að baki
smellinn „Minning um mann“.
Bjartmar þarf vart að kynna nokkr-
um Íslendingi á fullorðinsaldri,
hann á margan ódauðlegan smell-
inn að baki og 7-und eitt besta Eyja-
lag allra tíma, skv. tilkynningu,
„Pípuna“. Um Blítt og létt segir að
hópurinn hafi fyrir margt löngu
slegið í gegn og að Obbossí komi
fram á Eyjakvöldi í fyrsta skipti.
Fjörið hefst kl. 23.
Skemmtir Bjartmar Guðlaugsson
treður upp á SPOT á laugardaginn.
Líf og fjör á
Eyjakvöldi SPOT
Morgunblaðið/Kristinn