Morgunblaðið - 23.01.2013, Blaðsíða 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
Styrmir Gunnars-
son og Magnús
Finnson rifja upp
eftirminnilega
fréttavakt.
6
23.01.2013
23. janúar 2013
ELDGOS Í EYJUM
40 ÁR
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Blaðamenn
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
Auglýsingar
Erling Adolf Ágústsson erling@mbl.is
Forsíðumyndina tók Ólafur K.
Magnússon
Prentun
Landsprent ehf.
Reynir Guðsteinsson var í
forystusveit Eyjamanna
meðan á eldgosinu stóð.
14
Sigurður Guðmundsson –
Siggi á Háeyri – hefur gefið
út bók um eldgosið.
10
Viðlagasjóður gegndi lykil-
hlutverki í aðgerðum vegna
hamfaranna í Eyjum.
4
Kristín Jóhannsdóttir menn-
ingarfulltrúi segir frá þakk-
argjörð í Vestmannaeyjum.
15
Eldgosið í Heimaey kom Vestmanneyingum sem
og landsmönnum öllum í opna skjöldu aðfaranótt
23. janúar 1973. Vissu heimamenn vart hvaðan á
þá stóð veðrið og héldu margir að ýmist væri
kviknað í ellegar stríð hafið þegar eldarnir vörp-
uðu birtu sinni á bæinn um miðja nótt. Nátt-
úruhamfarirnar voru að sönnu mikið áfall fyrir
hina drífandi verstöð og blómlegu byggð sem í
Vestmannaeyjum var, og svo er að þakka þeirri
stillingu sem heimamenn sýndu á ögurstundu,
hinum fumlausu handtökum sem höfð voru við
brottflutningana og þeim samhug í verki sem fólk
á fasta landinu sýndi að enn í dag er byggðin í
Heimaey blómleg og verstöðin mikilvæg þjóð-
arbúinu. Á margan hátt má segja að gosið í
Heimaey hafi verið fyrsta prófið á almannavarna-
kerfið og verður ekki annað sagt en að það hafi
staðist þolraunina og um leið sannað gildi sitt.
Um leið og vert er að þakka fyrir hversu vel
tókst til við björgun og brottflutning, er rétt að
óska Vestmanneyingum til hamingju með hversu
vel byggð hefur dafnað á ný síðan áfallið dundi yf-
ir. Landsmenn munu án alls vafa standa saman af
sama myndarskap ef aftur þarf á að halda.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Heimaey Byggðin í Vestmannaeyjum er blómleg og bæjarstæðið fallegt. Áfallið var að sönnu mikið og óvíst um hríð hvernig færi fyrir byggðinni en hún dafnaði á ný að gosi loknu.
Þegar jörðin opnaðist og eldi spjó