Morgunblaðið - 23.01.2013, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
11
4
2
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Sérfræðingar í sparnaði
í þínu útibúi
Kveðja frá starfsfólki Íslandsbanka í Vestmannaeyjum
V
estmannaeyjar eru ævintýraheimur.
Strax eftir eldgosið árið 1973 urðu
þær vinsæll áfangastaður ferðamanna,
enda margt forvitnilegt að sjá í kjölfar
þessara miklu náttúruhamfara. Og svo koma
nýjar kynslóðir; fólk sem langar að kynna sér
sögusvið atburðanna en einnig koma til Eyja;
þar sem er glaðvært mannlíf og gaman að
koma.
Í atvinnuháttum í Eyjum hverfist allt um
fisk, þetta er ein stærsta verstöð landsins og
sjávarútvegur skilar miklum tekjum.
Sigling Herjólfs úr Landeyjahöfn til Eyja
tekur rétt um hálftíma. Tilkoma hafnarinnar
nýju hefur breytt miklu; mun fleiri sækja til
Eyja nú en áður og staðurinn er kominn í þjóð-
braut, ef svo má segja
Gott er að gefa sér að minnsta kosti einn dag
í Eyjaferð - og jafnvel lengri tíma. Skoða
óvenjulega náttúru, t.d. hraunið sem vall fram
fyrir fjörutíu árum. Svo er líka fjöldi áhuga-
verðra sögustaða í Eyjum – og afþreying við
allra hæfi.
sbs@mbl.is
Ævintýraheimur í Eyjum
Vestmannaeyjar eru vinsælar meðal ferðamanna. Hálftíma sigl-
ing í annan heim. Glaðvært mannlíf og gaman að koma. Ein
helsta verstöð landsins. Náttúra, sögustaðir og afþreying.
Ferjan Herjólfur, sem hér kemur fyrir klettinn, er aðeins hálftíma að sigla milli lands og Eyja.
Kaupstaður Hreinsun og endurreisn í Eyjum að gosi loknu var nokkurra ára verkefni. Þegar því starfi
lauk var hins vegar bráðfallegur bær risinn úr öskustó, rétt eins og fuglinn Fönix gerði í sögunni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hraun Um þriðjungur húsa í Eyjum eyðilagðist í gosinu. Svo að segja allur austurhluti Heimaeyjar fór
undir hraunið sem horft er yfir frá Eldfelli. Fjær sést til Elliðaeyjar og Bjarnareyjar sem er til hægri.