Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2013
* Nýtt í auglýsingu
15375 Netarall 2013. Ríkiskaup, fyrir hönd
Hafrannsóknastofnunarinnar, óska eftir
tilboðum í leigu á netabátum til að
stunda netaveiðar í rannsóknarskyni og
gagnaöflunar, tímabundið, vegna
mælinga á hrygningarstofni þorsks vorið
2013. Nánari upplýsingarer er að finna í
útboðsgögnum er verða aðgengileg á vef
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is. Opnunar-
tími tilboða er 14. febrúar 2013 kl. 14.00
hjá Ríkiskaupum.
*15355 Lokað blóðtökukerfi fyrir heil-
brigðisstofnanir. Ríkiskaup, fyrir hönd
Landspítala og annarra heilbrigðisstofn-
ana, standa fyrir þessu rammasamnings-
útboði vegna kaupa á vörum í eftirfar-
andi vöruflokkum: A: Status-glös, B: Ser-
um-glös, C: Natríum citrat-glös, D: Hepa-
rin-glös, E: Sökkglös, F: Butterfly-nálar og
millistykki, G: Blóðtökunálar og hólkar, H:
Stasar. Heimilt er að bjóða í einstaka
hluta (vöruflokka) útboðsins. Nánari
upplýsingar er að finna í útboðsgögnum
sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is, frá 16. janúar nk.
Opnun tilboða er 26. febrúar 2013
kl. 14.00 hjá Ríkiskaupum.
*15360 Markaðseftirlit raffanga fyrir Mann-
virkjastofnun. Ríkiskaup, fyrir hönd
Mannvirkjastofnunar, óska eftir tilboðum
í framkvæmd markaðseftirlits með
rafföngum. Samningstími er 3 ár. Nánari
upplýsingar er að finna í útboðsgögnum
sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.rikiskaup.is, frá 16. janúar nk.
Opnun tilboða er 28. febrúar 2013
kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum.
Ofanflóðavarnir, Búðum
við Fáskrúðsfjörð
Nýjabæjarlækur - varnarvirki
Útboð nr. 15368
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Fjarða-
byggðar og Ofanflóðasjóðs, óskar eftir tilboðum í
verkið Ofanflóðavarnir, Búðum við Fáskrúðsfjörð –
Nýjabæjarlækur varnarvirki.
Verkið felst í að reisa varnarvirki í farvegi Nýja-
bæjarlæks ofan skólamiðstöðvar og byggðar við
Skólabrekku og Hlíðarveg. Varnarvirkið saman-
stendur í megindráttum af grjótstíflu, leiðigarði og
þvergildru. Grjótstíflan sem stendur í 110 m hæð y.
s. er um 15 m á lengd og 6 m há. Leiðigarður
neðan grjótstíflu er um 200 m langur og 3 – 7 m
hár. Neðst er þvergildran í framhaldi leiðigarðs
sem er um 80 m á lengd og um 7 m á hæð um
miðbikið.
Einnig felst í verkinu gerð vinnuvegar, varanlegra
vegslóða og gangstíga. Jafnframt gerð dren-
skurða, lækjarfarvega, lagning ræsa, smíði
göngubrúa og setbekkja og jöfnun yfirborðs og
ýmis frágangur.
Helstu magntölur eru:
Grjótstífla:
Klapparsprengingar / fleygun 650 m³
Stórgrýti: flokkun/ flutningur 1.200 tonn
Frágangur stórgrýtis í stíflu 550 m³
Leiðigarður—þvergildra:
Sprengigröftur 2.800 m³
Gröftur/tilfærsla skriðuefnis 7.500 m³
Stoðfyllingar 2.100 m³
Styrkingakerfi – uppsetning 415 m²
Vegfyllingar úr skeringum 1.500 m³
Þökulagning 1.600 m²
Verkinu skal vera að fullu lokið í ágúst 2014.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík, frá og
með þriðjudeginum 15. janúar 2013.Tilboðin
verða opnuð hjá Ríkiskaupum 26. febrúar 2013
kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
ENDURBÆTUR Á
RAFLÖGNUM OG LAGNA- OG
LOFRÆSIKERFUM
Í BYGGINGU NR. 130
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
FORVAL NR. 6061030-F
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Landhelgisgæslu
Íslands, efnir til forvals vegna fyrirhugaðs
útboðs um endurbætur á raflögnum og lagna-
og loftræsikerfum í byggingu nr. 130 innan
öryggissvæðis Keflavíkurflugvallar. Hér er um að
ræða forval þar sem þátttakendur verða valdir með
tilliti til hæfni og reynslu (hæfi) en einnig með tilliti til
þess búnaðar sem þeir hyggjast bjóða. Gerðar eru
kröfur um hæfi þátttakenda í forvali sem taldar eru
nauðsynlegar til þess að bjóðendur í lokuðu útboði
geti unnið verkefnið á fullnægjandi hátt. Bygging
nr. 130 er stjórnstöð samþætts loftvarnakerfis NATO
hér á landi og er um 2.800 m2 á þremur hæðum.
Í meginatriðum fellst verkið í að laga rafkerfin að
gildandi reglugerð um raforkuvirki og ÍST: 200:2006 –
Raflagnir bygginga. Gerðar verða einnig umtalsverðar
breytingar á kæli- og loftræsikerfum byggingarinnar.
Dælubúnaður og stjórnlokar í neysluvatns-
og frárennsliskerfi verða einnig endurnýjaðir.
Öryggisvottunar og öryggisviðurkenningar á sviði
öryggis- og varnarmála verður krafist af verktaka
og öllum starfsmönnum og stjórnendum hans
sem koma að verkinu og einnig af starfsmönnum
og stjórnendum undirverktaka sbr. reglugerð nr.
959/2012. Áætlaður kostnaður í þessu verki er um
200-300 milljónir kr. með Vsk.
Forvalsgögn verða til sýnis og afhendingar
hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, Borgartúni 7A,
105 Reykjavík frá og með mánudeginum
14. janúar 2013, opnunartími 8:30-16:00.
Skilafrestur þátttökutilkynninga hjá
Framkvæmdasýslu ríkisins, Borgartúni 7A, 105
Reykjavík er til kl. 16:00 þann 28. janúar 2013.
FRAMKVÆMDASÝSLA RÍKISINS
15374 Forval - FLE
Innri frágangur og kerfi
- endurhönnun suðurbyggingar 2013
Ríkiskaup fyrir hönd Isavia ohf. óska eftir
umsóknum áhugasamra aðila um þátttöku í
forvali fyrir lokað útboð vegna Endurhönnunar
Suðurbyggingar 2013.
Verkið felst í innréttingu á afmörkuðum svæðum á
1. hæð (um 1100 m²), 2. hæð (um 400 m²) og í kjall-
ara (um 400 m²). Meðal verkefna er innrétting
rýmanna á 1. og 2. hæð ásamt tilheyrandi tækni-
kerfum, færsla á loftræsisamstæðu, smíði og upp-
setning lyftustokka og stálstiga ásamt nýjum
almenningssalernum í kjallara.
Áætlað upphaf verks er 1.3. 2013 og skal
stærstum hluta verksins vera lokið eigi síðar en
5.6. 2013.
Þeim aðilum sem uppfylla kröfur forvalsgagna
verður boðin þátttaka í lokuðu útboði.
Nánari upplýsingar er að finna í forvalsgögnum
sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa,
www.ríkiskaup.is , ekki seinna en miðvikudaginn
16.1. 2013 nk.
Þátttökutilkynningar verða opnaðar í viðurvist
þeirra bjóðenda sem þess óska 28. janúar 2013
kl. 14.00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c,
105 Reykjavík.
VALHÚSASKÓLI SELTJARNARNESI
Viðhaldsframkvæmdir
FORVAL
VSÓ Ráðgjöf, fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar,
efnir til forvals vegna viðhaldsframkvæmda
við Valhúsaskóla til að velja þátttakendur í
fyrirhugað lokað útboð. Verkefnið felst í viðgerðum
á steyptum byggingarhlutum ásamt endurnýjun
á gluggum. Áætlaður verktími er 1. júní 2013 -
23. ágúst 2013.
Helstu magntölur eru:
- Um 1.200 m2 steyptir fletir.
- Um 400 m2 endurnýjun á gleri.
- Um 80 stk af opnanlegum fögum.
Forvalsgögn verða aðgengileg á vef VSÓ
Ráðgjafar, www.vso.is, frá og með þriðjudeginum
15. janúar 2013.
Umbeðnum upplýsingum í forvalsgögnum skal
skilað í móttöku VSÓ Ráðgjafar eigi síðar en
kl. 14:00 þriðjudaginn 29. janúar 2013.
Allt að fimm hæfum aðilum verður gefinn
kostur á að taka þátt í lokuðu útboði.
Reykjavíkurborg
Innkaupadeild Reykjavíkurborgar
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Sími 411 1042/411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
ÚTBOÐ
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
!
Tilboð/útboð