Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2013 Lýsing á tillögu að deiliskipulagi í Borgarbyggð Gerð hefur verið svokölluð lýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags fyrir fólkvanginn í Einkunnum í landi Hamars í Borgarbyggð, sbr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsáformin eru í samræmi við aðal- skipulag Borgarbyggðar 2010-2022 og voru þau samþykkt á 90. fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar hinn 13.9. 2012. Fyrirhuguð deiliskipulagstillaga nær m.a. til 272 hektara svæðis sem var friðlýst af umhverfisráðherra árið 2006 en í aðalskipu- lagi Borgarbyggðar 2010-2022 er svæðið skilgreint sem náttúruverndarsvæði og landbúnaðarsvæði. Markmið skipulagsins er m.a. að lagfæra aðkomuveg, útbúa bíla- stæði, fjölga gönguleiðum, breyta reiðleiða- kerfi á svæðinu, byggja upp áningastað fyrir hestamenn, skilgreina lóðir og byggingar- reiti o.fl. Skipulagslýsingin er til sýnis á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, frá 14. – 28. janúar 2013 á skrif- stofutíma. Athugasemdum skal skila í Ráðhúsi Borgar- byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi, eigi síðar en 28. janúar 2013 og skulu þær vera skriflegar. Eftir kynningu á skipulagslýsingunni verður fjallað um deiliskipulagstillöguna og hún kynnt samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010. Borgarbyggð, í janúar 2013, Jökull Helgason skipulagsfulltrúi. Vinningsnúmer í happdrætti Áss styrktarfélags 2012 1. vinningur Chevrolet Cruze LTZ 5 dyra að andvirði kr. 3.690.000 kom á miða númer 5096. 2.-8. vinningur: Heimilistæki frá Bræðrunum Ormsson að andvirði 200.000 hver vinningur. 1451, 7415, 9290, 9914, 12614, 15911, 19757. Upplýsingar á heimasíðu félagsins www.styrktarfelag.is Félagið óskar landsmönnum gleðilegs árs og þakkar veittan stuðning. Raðauglýsingar Tilkynningar www. radum. i s radum@radum. i s S ím i 519 6770 Nú geta allir fengið iPad-áskrift að Morgunblaðinu á 4.190 kr. á mánuði. Áskrifendur Morgunblaðsins fá 90% afslátt og greiða AÐEINS 419 kr. Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Umsjón með sjálfbærniverk- efni Alcoa og Landsvirkjunar, sem var sett á laggir árið 2004 hefur verið flutt til Aust- urbrúar á Egilsstöðum. Sam- komulag þess efnis var und- irritað eystra í dag. Austurbrú er sjálfseignarstofnun, sem stofnuð var á síðasta ári á grunni ýmissa stofnana eystra á sviði markaðs-, atvinnu- og menningarmála. Kanna langtímaáhrif Forsaga sjálfbærniverkefn- isins er sú að 2004 tóku fulltrú- ar ýmissa hópa, sem voru bæði fylgjandi og andvígir fram- kvæmdunum á Austurlandi, ákvörðun um að fylgjast með ýmsum þáttum sem snúa að áhrifum framkvæmdanna bæði á Austurlandi og á lands- vísu. Verkefnið er hugsað til minnst tuttugu ára og er ætlað að kanna langtímaáhrif stór- framkvæmda á umhverfi, sam- félag og efnahag. Í verkefninu, sem er hlið- stæðufátt, eru 45 þættir rann- sakaðir með reglulegri vöktun og snúa þeir m.a. að þróun í at- vinnuþátttöku fólks á svæðinu, umhverfismálum, þróun fast- eignaverðs, fjárhagsstöðu sveitarfélaga, gæðum skóla og almennri velferð borgaranna. Einnig er fylgst með því hvernig uppsöfnun aurs við Hálslón þróast og hvernig flú- or í gróðri er háttað. Fylgst er með loftgæðum, ástandi heiða- gæsa og því hvernig ferða- þjónustan þróast svo fátt eitt sé nefnt. „Á vefnum sjalfbaerni.is er gerð grein fyrir öllum þeim vísum sem fylgst er með. Er þess vænst að vefsíðan, sem er opin öllum og er miðpunktur verkefnisins, verði í framtíð- inni vettvangur til upplýsinga um sögu verkefnisins og sjálf- bærnimælinga og að hún nýt- ist skólasamfélagi, stofnunum, fjölmiðlum og nærsamfélagi,“ segir í tilkynningu frá að- standendum málsins. sbs@mbl.is Sjálfbær Frá undirritun, Sigurður Guðni Sigurðsson frá Landsvirkjun, Karl Sölvi Guðmunds- son framkvæmdastjóri Austurbrúar og Janne Sigurðsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls. Austurbrú sér um sjálfbærni  Fylgjast með þróun samfélags og stóriðjuáhrifa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.