Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2013 9 Styrkir úr Sprotasjóði Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2013-14. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Í 4. gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir: Leikskólastjórar, skólastjórar eða skóla- meistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn. Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni: a) Mat á námi með hliðsjón af nýjum aðalnámskrám b) Jafnrétti í skólastarfi c) Kynjafræði, kynheilbrigði og klám; – í sam- hengi við grunnþætti menntunar Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind, að raunsæjar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram, og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint. Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslu- sviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun. Fyrir skólaárið 2013 – 2014 verða til úthlutunar allt að 45 milljónir kr. Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs, www.sprotasjodur.is. Tekið verður á móti umsóknum frá 11. janúar til 28. febrúar 2013. Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Gunn- hildur Helgadóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 460 8900 eða í tölvupósti á gh@unak.is Styrkir Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar auglýsir verkefna- og ferðastyrki til umsóknar á árinu 2013. Fyrsti frestur rennur út 1. febrúar 2013. Nánari upplýsingar á icelandicartcenter.is Æskulýðssjóður Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2013. Nánari upplýsingar og úthlutunarreglur sjóðsins er að finna á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is Auglýsing um deiliskipulagstillögu ásamt umhverfisskýrslu vegna Litla- Hrauns, Borgarbyggð Borgarbyggð auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir hluta jarðarinnar Litla- Hrauns í Borgarbyggð, sbr. 41. gr. skipulags- laga nr. 123/2010 og umhverfisskýrslu, sbr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tilefni deiliskipulagsgerðar eru áform um uppbyggingu á jörðinni Litla-Hrauni sem er gamalt lögbýli en verið hefur í eyði. Gert er ráð fyrir að endurnýja gamla húsakostinn á Litla-Hrauni og afmarka að auki tvær lóðir fyrir íbúðarhús, aðra við gamla býlið en hina nokkuð sunnar. Engin fomleg vegtenging er að býlinu nema yfir sjávarströnd þar sem gæta þarf sjávarfalla, en aðkoma að öðru leyti er frá þjóðvegi 54 um afleggjara að Stóra-Hauni sem er næsta jörð vestan við Litla-Hraun. Gert er ráð fyrir uppbyggingu vegar sem mun tengja saman nýju íbúðarhúsalóðirnar. Í aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022 er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði, auk þess að hluta til sem hverfisverndar- svæði vegna Eldborgarhrauns en stór hluti eldhraunsins er innan marka jarðarinnar Litla-Hauns. Hraunið fellur undir flokkinn „Hverfisvernd, nútímahraun“, skv. aðal- skipulaginu og verða byggingarreitir lóða ekki staðsettir innan þess svæðis í fyrirhug- uðu deiliskipulagi. Skv. aðalskipulagi Borgar- byggðar 2010-2022 er heimilt að byggja allt að 4 íbúðarhús á lögbýlum sem eru stærri en 100 ha, en stærð jarðarinnar Litla-Hrauns er 833 ha skv. Þjóðskrá. Ekkert deiliskipulag er fyrir á þessu svæði. Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar hinn 13. desember 2012 var deiliskipulagið ásamt umhverfisskýrslu samþykkt til auglýsingar í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi, og á heimasíðu sveitar- félagsins, www.borgarbyggd.is, frá 15. jan- úar til og með 26. febrúar 2013. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgar- nesi, eigi síðar en 26. febrúar 2013. Borgarbyggð, í janúar 2013, Jökull Helgason skipulagsfulltrúi. Styrkir til náms í hafrétti Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og fræðslustofnun á sviði hafréttar við Háskóla Íslands og er meginmarkmið stofnunarinnar að treysta þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar. Að stofnuninni standa Háskóli Íslands, utanríkisráðuneytið og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið. Hafréttarstofnun auglýsir hér með eftirfar- andi styrki til náms í hafrétti til umsóknar: 1. Styrk til framhaldsnáms í hafrétti á háskólaárinu 2013-2014. 2. Styrki til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti 30. júní -19. júlí 2013. Umsóknir berist Hafréttarstofnun Íslands, utanríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 1. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Tómas H. Heiðar, forstöðumaður stofnunarinnar, í síma 545 9900. Samband íslenskra sveitarfélaga Styrkir úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla 2013 Samband íslenskra sveitarfélaga auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2013-2014. Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, símenntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Gert er ráð fyrir að endurmenntunarverkefnum verði að fullu lokið eigi síðar en við lok skóla- ársins 2013-2014. Verði ekki unnt að ljúka námskeiðum innan þeirra tímamarka fellur styrkveiting niður. Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að allt að þriðjungi ráðstöfunarfjár verði úthlutað til verk- efna sem tengjast eftirfarandi áherslusviðum: Skólanámskrá í ljósi nýrrar aðalnámskrár. Námsmat og árangursrík kennsla á unglingastigi. Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi. Í umsóknum skal gefa ýtarlegar upplýs- ingar um hvers konar endurmenntun umsækj- andi hyggst bjóða, m.a. markmið námsins, stað og tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, skipulag kennslu, stjórnun, ábyrgðarmann og annað það sem máli kann að skipta við mat á umsókn. Einnig skal leggja fram kostnaðar- áætlun. Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna fram á að endurmenntunarverkefnin mæti þörfum grunnskólans, séu byggð á skólastefnu, aðalnámsskrá, fagmennsku og gæðum. Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds þátttakenda. Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk verður gerður sérstakur samningur um hvert endurmenntunarverkefni. Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar 2013. Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, www.samband.is. Umsóknir á öðru formi verða ekki teknar gildar. Nánari upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunnskóla veitir Klara E. Finnbogadóttir í síma 515 4900 eða í tölvupósti á klara.e.finnbogadottir@samband.is. Styrkir Þjónustuauglýsingar Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1390 eða á augl@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.