Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2013, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JANÚAR 2013 3
Leitum að lyfjatæknum eða sérmenntuðum starfsmönnum
til þjónustu í apótekum félagsins á höfuðborgarsvæðinu.
www.lyfogheilsa.is
Starfssvið
• Ráðgjöf til viðskiptavina
• Almenn þjónusta og sala
Hæfniskröfur
• Reynsla af starfi í apóteki eða
menntun á heilbrigðissviði er kostur
• Söluhæfileikar
• Mikil þjónustulund og jákvæðni
• Lágmarksaldur 20 ára
Lyf og heilsa er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið.
Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi
þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða.
Um er að ræða hlutastörf eftir hádegi,
vinnutími kl. 13–18 virka daga.
Umsóknir merktar „Þjónusta“, ásamt
ferilskrá sendist á starf@lyfogheilsa.is
fyrir 18. janúar nk.
Þjónusta í apóteki
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
-1
30
13
4Fulltrúar Nýsköpunarmið-
stöðvar Íslands og mennta-
og atvinnuvegaráðuneytanna
undirrituðu á dögunum sam-
starfssamning til þriggja ára
um eflingu nýsköpunar- og
frumkvöðlamennta á fram-
haldsskólastigi. Samstarfs-
aðilar í verkefninu eru
Menntavísindasvið Háskóla
Íslands, Félag íslenskra
kennara í nýsköpunar- og
frumkvöðlamennt og Félag
íslenskra framhaldsskóla
Í fyrstu verður staða ný-
sköpunar- og frumkvöðla-
mennta á framhaldsskólastigi
greind og þörf skóla og vinnu-
markaðar fyrir menntað fólk
á því sviði vegin. Í framhald-
inu verður unnin áætlun um
aðgerðir. Gera má ráð fyrir að
tilraunakennsla á þessu sviði
hefjist við valda framhalds-
skóla nú í haust.
Ríkir samfélagslegir hags-
munir eru fólgnir í því að
menntastefna og atvinnu-
stefna séu í samræmi og unn-
ar í víðtæku samstarfi. Í raun
má rekja verkefnið til hróp-
andi ákalls þjóðfélagsins alls
til aukinnar nýsköpunar, að
sögn Jóhönnu Ingvarsdóttur,
sem stýrir þessu verkefni. Í
fréttatilkynningu er sókn-
aráætlun til 2020 sem stjórn-
völd lögðu á sínum tíma fram
lögð til grundvallar. Þar segir
að leggja þurfi áherslu á ný-
sköpun á öllum skólastigum.
Samþætting hennar við allt
nám er þar lykilorð og mennt-
un kennara mikilvæg.
Til móts við þarfir
„Við mótun atvinnustefnu á
vegum nýs atvinnu- og ný-
sköpunarráðuneytis er lögð
áhersla á nýsköpun og þátt
menntunar í eflingu hennar.
Samtök á vinnumarkaði
leggja áherslu á styrkari
starfsmenntun og að komið
verði til móts við þarfir vinnu-
markaðarins fyrir menntað
starfsfólk, sérstaklega á sviði
nýsköpunar- og frum-
kvöðlamenntar sem og verk-
og tæknimenntunar. Þannig
verði stuðlað að aukinni fram-
leiðni og verðmætasköpun á
Íslandi,“ segir í frétt frá Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands.
Mennt Frá undirritun samninga um eflda nýsköpunarmennt á
Íslandi, sem sögð er vera mjög þýðingarmikið verkefni.
Ætla að efla
nýsköpunar-
menn í skólum
Tilraunakennsla í greininni
hefst í haust Hrópandi ákall