Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.03.2013, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.3. 2013
Matur og drykkir
Mættir: Börkur Gunnarsson leikstjóri, Linda Blöndal útvarps-
kona, Jón Páll Eyjólfsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir og
Guðrún Bjarnadóttir mættu á réttum tíma en Björn Thors
mætti seint.
Björn Thors kom inn næstum klukkutíma of seint og afsak-
ar sig. „Ég hélt þetta væri hálfátta, ekki hálfsjö. Ég er alveg í
karakter að vera allt of seinn, vantar bara að ég sé blindfullur
líka og fari að staupa mig á klósettinu,“ segir hann og hlær.
Börkur: „Eins gott að ég er með súpu í matinn sem verður
bara betri við að malla á hellunni, annars hefðirðu eyðilagt
matinn fyrir okkur.“ Björn: „Já, þú að elda? Ég hafði nú ekk-
ert voða mikla trú á því, hélt þú værir „outsourcing“ og
myndir bara panta pítsu fyrir okkur.“ Börkur: „Nei, nei.
Mexíkósk kjúklingasúpa, í tilefni þess að einhvern tímann á
árinu verður þjóðhátíðardagur í Mexíkó.“
Björn: „Já, við verðum að taka næstu mynd upp þar. Og þá
vil ég fá alvöruhjólhýsi fyrir mig með aðstoðarmönnum og
whiskey on the rocks í pásum.“
Linda: „Ég skil nú ekki af hverju þú kallar þetta mexíkóska
súpu þegar hún er með öllu þessu karríi? Karrí er ekkert sér-
staklega mexíkóskt krydd!“
Börkur: „Uppskriftin heitir bara þetta, ég veit ekkert meira
um þetta. Ég fann þetta á netinu. En það er fullt af chili í
henni, þeir eru alltaf í chilíinu þarna í Mexíkó. Það er ferskt
chili í henni, það er chili-tómatpúrra í henni og meira að segja
chili-rjómaostur.“
Maríanna: „Skemmtilega metafýsískt hjá þér Börkur að láta
Björn Thors fá stólinn undir plakatinu af sjálfum sér.“
Börkur: „Já, og ég er með nafn hans skrifað hérna á blaðið
fyrir framan mig, þannig að hann er eiginlega hér með okkur
í þrennum skilningi.“
Jón Páll: „Bjössi … Bjössi.“
Björn: „Og ég var einmitt að hugsa um sjálfan mig.“
Jón Páll: „Ég er svo mikið með þér í þessu Bjössi að ég er
ekki lengur ég sjálfur. Ég held ég sé þú, Bjössi.“ Bjössi hlær.
Jón Páll: „Nei, ég er kominn í ruglið. Góð súpa.“
Linda: „Já, þetta er ætt hjá honum.“
Jón Páll: „Já, svo sé ég alltaf að Ingvar E. Sigurðsson er
skrifaður miklu hærra á plakatinu en mitt nafn.“
Börkur: „Já, guð minn góður, ég segi alltaf frægustu nöfnin
fyrst í viðtölum, fyrst segi ég Björn Thors, svo vind ég mér
strax í aukaleikarana Eddu Björgvinsdóttur og Ingvar E. Sig-
urðsson og ef þeir vilja enn heyra leikaranöfn eftir það fer ég
kannski aftur í aðalleikarana og minnist á ykkur Maríönnu
Clöru og Guðrúnu.“
Maríanna: „Jæja, þú minnist þó á mig af og til.“
Jón Páll: „Já, maður skilur hvaða sess maður hefur í huga
þér.“
Maríanna: „Hann mundi samt eftir þér þegar hann setti ljós-
mynd úr myndinni í auglýsinguna þar sem við erum allsnakin
í hörku kynlífi.“
Jón Páll: „Já, hvernig er það, þarf ekki leyfi frá leikara áður
en manni er slengt svona í tímarit allsnöktum í brútal ást-
arsenu?“
Börkur: „Nei, sem betur fer lastu ekki smáa letrið.“
Maríanna: „Úff, maðurinn minn er ekki enn búinn að þora að
kíkja á hana.“
Jón Páll: „Ekki konan mín heldur. Mamma ætlaði á hana með
börnin mín, ég sagði henni að nei, nei, það væri ekki góð hug-
mynd.“
Maríanna: „Óli ætlar reyndar með mér núna um helgina,
hann er orðinn nógu stór til að sjá hana.“
Jón Páll: „En þessi ljósmynd fer út um allt.“
Maríanna: „Ég var reyndar heppin þar, það þekkir mig eng-
inn á ljósmyndinni nema einhver þekki brjóstin mín of vel, en
þú ert mjög vel þekkjanlegur á myndinni,“ segir Maríanna og
hlær.
Jón Páll: „Hafið þið annars séð nýju mynd Bigelow, Zero
Dark Thirty?“
Maríanna: „Nei.“
Jón Páll: „Hún er merkilega góð. Þessi kona er svo karllægur
leikstjóri að það er rosalegt.“
Börkur: „Já, hún gerði Strange Days, ég ætlaði ekki að trúa
því að það hefði verið kona sem leikstýrði henni þegar ég
heyrði það.“
Björn: „Hún leikstýrði Ingvari E. Sigurðssyni í K-19 og var
víst svakalega grimm. Það var mikil starfsmannavelta meðan
á tökunum stóð því hún rak svo marga. Henni var fært kalt
kaffi og hún var búin að reka manninn á staðnum.“
Maríanna: „Já, það er örugglega ekkert auðvelt fyrir konu að
skapa sér pláss í svona karllægum heimi sem kvikmyndaleik-
stjórnin í Hollywood er.“
Björn: „Já, Þórhildur Þorleifsdóttir hefur stundum talað um
þetta, að það þurfi klókindi til að skapa sér pláss sem leik-
LEIKSTJÓRINN BÖRKUR GUNNARSSON BAUÐ Í MAT
Þetta reddaðist
allt að lokum
LEIKHÓPURINN SEM STENDUR AÐ BÍÓMYNDINNI ÞETTA REDDAST
KOM Í SÚPU HEIM TIL LEIKSTJÓRANS, BARKAR GUNNARSSONAR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Börkur tekur vænan skammt upp úr pottunum.
Björn Thors býður upp á knús.
Morgunblaðið/Kristinn