Morgunblaðið - 03.04.2013, Qupperneq 11
Gleði Berglind á fullri ferð með nemendum sínum en á námskeiðið mæta foreldar með börnum sínum.
„Ég leyfi sköpunargleði barn-
anna að njóta sín sem mest, t.d. með
því að búa til söng í kringum stein
sem þau finna í fjörunni eða annað
álíka,“ segir Berglind. Miðað er við
að hópurinn gefi sér góðan tíma í
gönguna og fái sér jafnvel nesti und-
ir húsvegg en náttúruöflin munu
stjórna því hvenær hægt er að
ganga út í Gróttu, enda verður líka
að vera hægt að ná til lands áður en
flæðir að.
Saman í eitt
Berglind hefur haldið fjölmörg
tónlistarnámskeið fyrir börn og
kennara síðastliðin 15 ár, m.a. í
Kramhúsinu og í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Hún vinnur eftir kenn-
ingum Carls Orffs um að ekki sé
hægt að aðskilja leik, söng og dans
heldur falli slík tjáning í raun undir
einn og sama hattinn.
Berglind er einnig barnakór-
stjóri og kennir tónlist og skapandi
hreyfingu á leikskólum.
„Það er mjög skemmtilegt og
gefandi að vinna með börnum og
börnin á leikskólanum hafa spurt
hvenær ég fari eiginlega í vinnuna!
Þeim finnst ég alltaf vera að leika
mér,“ segir Berglind í léttum dúr.
Fyrir áhugasama er hægt að
skrá börn á námskeiðið á netfangið
barnakor@gmail.com með nafni
barns, fæðingardegi, nafni foreldris
og farsíma ásamt netfangi. Nám-
skeiðið hefst næstkomandi laug-
ardag, 6. apríl, og fara tímarnir fram
í Tóney en þar kennir Berglind einn-
ig svipað námskeið fyrir fjögurra og
fimm ára börn. Það námskeið hefst
fimmtudaginn 4. apríl. Á því nám-
skeiði mæta börnin ein og sér en for-
eldrar fá að slást með í för í Gróttu-
ferð sem er einnig hluti af
námskeiðinu.
Náttúran er tvinnuð inn í
námskeiðið og læra
börnin um íslenska
fugla og fjöruna í gegn-
um söng, dans, mark-
vissa hlustun og hljóð-
færaslátt.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar
Sjötta myndlistarsýning Sig-
urðar Sævars Magnúsarsonar
opnar í ART67 hinn sjötta apríl
næstkomandi klukkan 14. Sig-
urður er fæddur 15. september
1997 og er nemandi í 10. bekk í
Hagaskóla. Hann hefur haldið
þrjár einkasýningar og tvær sam-
sýningar en fyrsta sýning hans
var haldin sumarið 2011 í sam-
starfi við Simma og Jóa, eig-
endur Íslensku hamborg-
arafabrikkunnar, í garðskála
Höfðatorgs. Sýningar Sigurðar
hafa vakið athygli og þá sér-
staklega sýning hans sem haldin
var á Menningarnótt 2012 en þá
sýndi Sigurður í sama sal og
myndlistarmennirnir Sigurður
Þórir og Sigurður Örlygsson í
Saltfélaginu, Grandagarði.
Auk þess að mála safnar Sig-
urður einnig myndlist og á t.d. myndverk eftir Kristján Davíðsson, Tolla, Braga
Ásgeirsson, Hjalta parelius, Sigurjón Jóhannsson og Rudolf Weissauer.
Ungur listamaður Sigurður Sævar Magnúsarson með sýningu
Morgunblaðið/Ómar
Myndlistarmaður Sigurður Sævar er hér með nokkur verka sinna.
Málar og safnar málverkum