Morgunblaðið - 03.04.2013, Side 15

Morgunblaðið - 03.04.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013 Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23 Þú hringir Við bökum Þú sækir Miðvikudags- PIZZA-TILBOÐ 12“ PIZZA, 3 áleggstegundir og 1l Coke 1.290 kr. VIÐTAL Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Hægt hefði verið að ganga lengra þegar breytingar voru gerðar á ákvæðum laga sem mæla fyrir um endurupptöku sakamála til þess að rýmka möguleikann á því að mál séu tekin upp að nýju. Þetta er mat Arn- dísar Soffíu Sigurðardóttur, for- manns starfshóps um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Með breytingunum á lögunum sem tóku gildi í febrúar var sett á fót sérstök endurupptökunefnd sem tekur ákvarðanir um hvort mál skuli tekin upp aftur en fyrirmynd nefnd- arinnar kemur frá Noregi. Tók hún við því valdi af Hæstarétti. „Í greinargerð með frumvarpinu segir að það sé að norskri fyrirmynd en það eina sem er þaðan er að þetta vald er tekið af Hæstarétti og fært til þessarar nefndar. Engu öðru virðist breytt. Við bendum á að sama nefnd í Noregi hefur mun víðtækari heimildir en þessi sem á að starfa hér á Íslandi,“ segir Arndís Soffía. Heimild til gagnaöflunar Þannig hefur norska nefndin heimildir til að afla gagna og hefur til þess aðgang að teymi lögfræðinga og fólks með reynslu af lögreglu- störfum til að rannsaka þætti mála sem koma á borð hennar. Hér á landi fær nefndin ekki slíka heimild og því hvílir það á þeim sem sækist eftir endurupptöku að sýna fram á að skilyrði fyrir því séu uppfyllt. „Það getur verið þungur róður fyrir þann sem óskar eftir endur- upptöku, til dæmis bara það að skila rökstuddri greinargerð til endur- upptökunefndarinnar, sérstaklega í flóknum og viðamiklum sakamálum. Grundvallarþáttur eins og gagnaöfl- un getur verið flókinn.“ Rýmri heimildir Þá bendir Arndís Soffía á að í Noregi séu fleiri atriði sem koma til greina þegar ákveðið er hvort heim- ilt sé að taka mál upp aftur. Þar er heimilt að taka upp mál ef niður- staða þess stríðir gegn alþjóðlegum skuldbindingum og ætla má að nið- urstaðan yrði önnur með nýrri með- ferð fyrir dómi og ef málsmeðferðin sem liggur til grundvall- ar niðurstöðunni stang- ast á við alþjóðlegar skuldbindingar ríkis- ins. „Aftur bendum við á að ef norska kerfið á að vera til fyrirmyndar þá þyrfti að ganga lengra hér,“ segir hún. Víðtækari heimildir í Noregi  Nýstofnuð endurupptökunefnd fær ekki eins rúmar heimildir og norska fyrirmyndin  Stendur upp á þann sem sækist eftir endurupptöku að afla gagna  Færri atriði sem veita tilefni til endurupptöku Morgunblaðið/Golli Hæstiréttur Ákvarðanir um hvort mál væru tekin upp að nýju voru áður teknar af Hæstarétti. Nú hefur hins vegar verið stofnuð sérstök endurupptökunefnd sem fjallar um hvort ástæða sé til þess að taka dómsmál upp á ný. Eftir breytingar á lögum um dómstóla sem samþykktar voru í febrúar tekur sérstök endurupptökunefnd, sem er sjálfstæð stjórnsýslustofnun, við ákvörðunarvaldi um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála sem dæmt hefur verið í í héraði eða Hæsta- rétti. Áður ákvað Hæstiréttur hvort mál væru tekin upp aft- ur. Þrír fulltrúar eiga sæti í nefndinni, einn tilnefndur af Hæstarétti, annar af dómstól- aráði og sá þriðji kjörinn af Alþingi. Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráð- herra, var kjörin fulltrúi Al- þingis. Ákvarðanir eru teknar með meirihluta atkvæða fulltrú- anna. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður ekki skotið til dómstóla. Þeir verða birtir opinberlega eftir að þeir hafa verið kynntir málsaðilum. Úrskurðirnir endanlegir ENDURUPPTÖKUNEFND Arndís Soffía Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.