Morgunblaðið - 03.04.2013, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2013
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Efnahags-legt áfallKýpur
hefur orðið ýms-
um fréttaskýr-
endum tilefni til að
horfa á ný til Ís-
lands. Sumum þeirra, jafnvel
víðfrægum pistlahöfundum,
hefur skjöplast nokkuð þegar
þeir bera saman þessar tvær
fjarlægu eyjar, eðli atburð-
anna, afleiðingar þeirra og
viðbrögð við þeim. Íslenskum
fréttaskýrendum hefur einnig
orðið á.
Þess er auðvitað að gæta að
ekki eru öllu kurl enn komin
til grafar á Kýpur og rann-
sóknir þeirra þar á feilskotum
fortíðar eru rétt að hefjast.
Hvernig svo sem þær munu
takast breytir það ekki því, að
fleira er ólíkt en líkt, þegar
horft er til eyjanna tveggja og
áfalla þeirra. Á Kýpur var
fjármögnun með innstæðum
mun veigameiri þáttur en
lánsfjáröflun frá erlendum
aðilum, sem var á hinn bóginn
yfirgnæfandi hjá íslensku
bönkunum.
Eftir fall íslensku bankanna
kom í ljós að endurskoðaðir
reikningar þeirra voru fjarri
því að gefa rétta mynd af
eignastöðu þeirra, láns-
fjárlínur þeirra voru ekki þær
sem fullyrt var eða háðar slík-
um skilmálum að þær voru
hreint sýndaröryggi. Bæði
þessi atriði voru hluti af
blekkingarleik gagnvart ytra
sem innra umhverfi íslensku
bankanna. Við það bættist
margt fleira, svo sem að ein-
stakir stórskuldarar voru um
alla meginbankana þrjá og
höfðu fengið óhemjulegt fé
lánað í nafni fjölmargra fé-
laga, sem allar lutu einu
ákvörðunarvaldi eða voru á
könnu sömu aðila. Loks komu
til meintir yfirgengilegir til-
burðir í sýndarviðskiptum í
kauphöllum til að halda uppi
verði bankanna, en þau mál
eru nú til meðferðar fyrir
dómstólum.
Í umfjöllun um viðbrögð yf-
irvalda og samanburði á milli
Íslands og Kýpur hafa margir
farið illa út af sporinu. Marg-
endurtekið er að sett hafi ver-
ið gjaldeyrishöft á Kýpur í
anda þess sem gerðist á Ís-
landi. Þar er mjög ólíku saman
að jafna. Kýpur býr við evru.
Hún er þjóðarmynt eyjar-
innar. Höft sem sett hafa verið
þar bera svip af því og eru
miklu víðtækari og meira lam-
andi en gjaldeyrishöft ein
mundu vera. Innstæðueigend-
ur fá aðeins að taka út lágar
upphæðir í evrum, landsmynt-
inni sinni. Í fyrstunni er talað
um upphæðir í
evrum sem svara
til tæpra 50 þús-
und íslenskra
króna. Netbanka-
viðskipti eru tak-
mörkuð og bannað
er að gefa út ávísanir. Miklar
hömlur eru á notkun kredit-
korta innanlands og þar fram
eftir götunum. Hér er því ekki
um gjaldeyrishöft að ræða
heldur almenn efnahagsleg
höft, sem aldrei þurftu að
koma til á Íslandi þar sem
landið ræður yfir sinni eigin
mynt. Bankaviðskipti og
kortaviðskipti lágu ekki niðri
einn einasta dag á Íslandi.
Þá er gjarnan talað um
ákvarðanir yfirvalda á Kýpur
annars vegar og íslenskar
ákvarðanir hins vegar. Þær
ákvarðanir sem eru taldar
vera innlendra yfirvalda á
Kýpur sneru „að útvegun“ á
rúmlega 5 milljörðum evra til
að mæta lánsfjárframlagi
þríeykisins, því eina hjálp
ESB og AGS var í formi láns.
Engin önnur aðstoð fékkst frá
þessum aðilum, þótt svo sé lát-
ið í veðri vaka. Yfirvöld á Kýp-
ur fengu „tillögur“ að því frá
þríeykinu hvernig þau skyldu
leysa sinn þátt málsins. Þeim
tillögum var hafnað í Nikósíu.
Yfirvöld þar vildu fara aðra
leið, sem fólst m.a. í sjóðs-
stofnun, sem myndast skyldi
með sölu eigna, yfirfærslu líf-
eyriseigna og fleira þess hátt-
ar. Þríeykið blés á allt slíkt og
tilkynnti að aðeins „tillögur“
þeirra sjálfra kæmu til greina.
Yfirbuguð yfirvöld á Kýpur
féllust loks á „tillögurnar“.
Ísland fór sína eigin leið,
sem undirbúin var og ákveðin
um og upp úr mánaðamótum
september og október árið
2008.
Carl Bildt, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, benti
Kýpverjum á, að eyjan sú
hefði farið betur út úr sínum
erfiðleikum en Ísland, því Ís-
landi hefði ekki staðið til boða
lán eins og þeim. Ísland þurfti
ekki á neinu slíku láni að
halda. AGS krafðist þess að
Ísland leysti til sín slíkt lán og
hefur sú óþarfa „fyrir-
greiðsla“ kostað þjóðina tugi
milljarða króna í vexti. Ekki
væri úr vegi að sænski utan-
ríkisráðherrann léti fara yfir
hve óvinsamlega afstöðu sum-
ir norrænir frændur tóku
gagnvart Íslandi innan AGS
og víðar og kíkti á hvers konar
kjör þeir buðu frændþjóð
sinni.
Kýpur á ekki „sína leið“ út
úr ógöngunum og verður því
illa löskuð um langa hríð. Hið
sama gildir ekki um Ísland.
Evran forðaði ekki
Kýpur frá voða en
flækist fyrir þeim í
erfiðleikunum}
Íslendingar betur settir
H
vort sem fyrirhugaðar fríverzl-
unarviðræður á milli Evrópu-
sambandsins og Bandaríkjanna
skila tilætluðum árangri eða
ekki er það vitaskuld mjög
ánægjulegt hafi John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tekið vel í þá hugmynd að ræða
um fríverzlun við Ísland samhliða þeim við-
ræðum. Verði sú raunin er hins vegar mik-
ilvægt að um verði að ræða viðræður um sér-
stakan fríverzlunarsamning við Ísland óháð
mögulegum samningi við Evrópusambandið.
Fyrir þessu eru einkum tvær ástæður. Fyrir
það fyrsta er alls óvíst að það takist að landa
fríverzlunarsamningi á milli Evrópusambands-
ins og Bandaríkjanna. Þegar eru ýmsar blikur
á lofti í þeim efnum þrátt fyrir að formlegar
viðræður séu ekki enn hafnar en stefnt er að
því að þær hefjist í júní í sumar. Þrátt fyrir að einkum
bandarísk stjórnvöld leggi mikla áherzlu á að viðræðurnar
gangi hratt og vel fyrir sig og ljúki í síðasta lagi í lok næsta
árs eru ekki allir á sömu skoðun. Þannig hafa franskir
ráðamenn lýst því yfir nýverið að of snemmt sé að hefja
viðræðurnar í sumar og ennfremur að þær eigi eftir að
taka langan tíma. Hugsanlega nokkur ár.
Frakkar setja sömuleiðis ýmsa fyrirvara við fríverzl-
unarviðræðurnar. Bæði varðandi viðskipti tengd menn-
ingarmálum, sem þeir vilja halda fyrir utan viðræðurnar,
og landbúnaðarmál. Þýzkir bændur hafa að sama skapi
kallað eftir því að takmarkanir verði settar á innflutning á
landbúnaðarvörum frá Bandaríkjunum náist
samningar. Er þar ekki sízt horft til erfða-
breyttra matvæla og kjötvara sem meðhöndl-
aðar hafa verið með hormónum. Bandaríkja-
menn hafa hins vegar vísað þessu á bug.
Talið er mjög ólíklegt að ráðamenn í Wash-
ington séu reiðubúnir að sýna Evrópusam-
bandinu mikla þolinmæði ef ríki sambandsins
reynast ekki samstiga í fríverzlunarviðræð-
unum og setji fram kröfur um að undanskilja
ákveðna málaflokka frá þeim. Einkum þar sem
fyrri tilraunir til slíkra viðræðna runnu út í
sandinn af sömu ástæðum. Viðræðurnar gætu
þannig hæglega strandað á málum sem við Ís-
lendingar teldum ekki standa í vegi fyrir sam-
komulagi um fríverzlun. Ef slíkar aðstæður
kæmu upp væri þannig mikilvægt að tryggja
að það kæmi ekki í veg fyrir að viðræður á milli
Íslands og Bandaríkjanna gætu eftir sem áður haldið
áfram óháð því.
Hin ástæðan er sú að takist fríverzlunarsamningar á
milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna á einhverjum
tímapunkti með aðkomu Íslands þýddi það að fríverzlun
okkar við Bandaríkin væri háð því að samskiptin á milli
Brussel og Washington væru í lagi og ekki kæmi til við-
skiptastríða eða annarra deilna um hagsmuni sem hefðu
ekkert með okkur Íslendinga að gera, líkt og stál-, flug-
véla- og bifreiðaframleiðslu, en gætu hins vegar hæglega
sett fríverzlun okkar við Bandaríkin í uppnám.
hjortur@mbl.is
Hjörtur J.
Guðmundsson
Pistill
Fríverzlun á eigin forsendum
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Netarall sex báta á hrygn-ingarsvæði þorsks hófst ígær er fyrstu bátarnirfóru út. Síðustu ár hefur
fengist mokafli í rallinu, sem hefur
endurspeglað hátt hlutfall af eldri
fiski og stækkandi hrygningarstofn.
Netarallið tekur frá átta dögum
upp í um hálfan mánuð eftir veðri og
vindum og stærð svæða sem hver
bátur kannar. Á sama tíma er að
hefjast árlegt veiðistopp á grunnslóð
vegna hrygningarinnar, svokallað
„fæðingarorlof“ þorsksins. Tíma-
setning orlofsins er mismunandi eftir
svæðum, en lýkur á síðasta svæðinu
rétt fyrir lok mánaðarins.
Í netaralli er safnað mikilvæg-
um upplýsingum um hrygningu
þorsks, hrygningarstöðvar og þróun í
samsetningu hrygningarstofnsins.
Niðurstöður þess eru hafðar til hlið-
sjónar við fiskveiðiráðgjöf. Stofn-
mæling Hafrannsóknastofnunar á
botnfiskum að haustlagi, svokallað
haustrall, og mælingar togara og
rannsóknaskipa í marsmánuði, vor-
rall, eru hins vegar helsti grundvöll-
ur ráðgjafarinnar.
Í samræmi við aðgerðir
Niðurstaðna togararallsins er að
vænta eftir nokkra daga, en það hef-
ur verið framkvæmt með sambæri-
legum hætti á hverju ári síðan 1985. Í
netarallið var hins vegar fyrst farið
árið 1996 og hefur það skilað mikils-
verðum upplýsingum um þróun
hrygningarstofnsins. Hafrannsókna-
stofnun leggur til netin í rallinu, en
um 300 netatrossur eru lagðar á
helstu hrygningarsvæði þorsks og
eru fjórar möskvastærðir notaðar.
Bátarnir eru valdir eftir útboð
og í ár kannar áhöfnin á Saxhamri
SH svæði í Breiðafirði, Magnús SH
rannsakar Faxaflóa, Friðrik Sigurðs-
son ÁR Selvogsbanka, Ársæll ÁR
svæðið í kringum Vestmannaeyjar
og kantinn austur af Eyjum, Hvan-
ney SF fer á suðaustursvæðið og
Þorleifur EA rannsakar hrygning-
arstöðvar fyrir Norðurlandi. Um
borð í hverju skipi verða 3-5 rann-
sóknamenn.
Síðustu ár hefur veiðst mikið af
þorski á hrygningarstöðvunum og
segir Valur Bogason, líffræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun í Vest-
mannaeyjum, að það sé í samræmi
við aðgerðir síðustu ár til að byggja
þorskstofninn upp. „Það væri í raun
óeðlilegt ef það fengist ekki góður afli
á þessum stöðum á aðalhrygningar-
tímanum,“ segir Valur.
„Afar góður afli hefur fengist í
netarallinu tvö síðustu ár og hlutfall
stærri fisks hefur aukist mjög, sem er
í samræmi við það sem við höfum bú-
ist við. Stofnvísitala hefur aldrei verið
hærri en í togararallinu í fyrra frá því
að það hófst og ég hef enga ástæðu til
að ætla að hún verði lægri í ár, þó að
of snemmt sé að fullyrða um það,“
segir Valur.
Hann segir að eina undantekn-
ingin á hrygningarstöðvunum sé
kanturinn austan við Vestmanna-
eyjar. Þar hafi afli verið lélegur síð-
ustu fjögur árin og skýri hann þessa
breyttu hegðan helst með því að
þorskurinn gangi nú fyrr og meira
upp á grunnið en áður.
Sex bátar í netarall
í „fæðingarorlofinu“
Ljósmynd/Alfons
Á netum Í rallinu eru um 300 netatrossur lagðar á helstu hrygningarsvæði
þorsks við landið og síðustu ár hafa netin oft verið bunkuð af fiski.
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
fyrir næsta fiskveiðiár er væntan-
leg í byrjun júní. Í formála að síð-
ustu ástandsskýrslu kom m.a. fram
hjá Jóhanni Sigurjónssyni, for-
stjóra, að horfur væru á að stofninn
myndi áfram styrkjast ef nýting
hans yrði með sama hætti, þrátt
fyrir að árgangur 2010 virtist léleg-
ur.
„Eins og fram kemur í þessari
skýrslu hefur veiðidánartala þorsks
lækkað úr 0.75 árið 2000 í 0.28 ár-
ið 2011 og veiðihlutfallið (hlutfall
afla af stærð viðmiðunarstofns)
hefur á sama tíma lækkað úr 35-
40% í um 20%. Þessi þróun hefur
haft í för með sér að árgangar end-
ast betur í stofninum og hann fer
nú vaxandi. Bæði viðmiðunarstofn
og hrygningarstofn þorsks hafa
vaxið hratt á undanförnum árum og
er hrygningarstofninn nú meira en
tvöfalt stærri en hann var lengst af
síðustu áratugina og hefur ekki ver-
ið stærri síðan á fyrri hluta sjöunda
áratugar síðustu aldar. Hlutdeild
eldri fisks í afla hefur aukist þrátt
fyrir að frekar lélegir árgangar séu
uppistaða veiðistofns nú. Áhrifa
þessa gætir í verulega auknum afla
á sóknareiningu og meiri hag-
kvæmni við að ná í úthlutaðar afla-
heimildir. Segja má að þetta séu
dæmigerð einkenni þess að stjórn
veiðanna og ástand stofnsins séu
að færast í gott horf,“ sagði í for-
mála forstjórans.
Hraður vöxtur stofnsins
STJÓRN VEIÐA OG ÁSTAND STOFNSINS FÆRAST Í GOTT HORF