Morgunblaðið - 19.04.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2013
Vilhjálmur Egilsson er með hug-ann við „Endurreisn-
arskýrslu“ sem hann sá um að
færð var í letur, á örskömmum
tíma, og það áður en Rannsókn-
arnefnd Alþingis hóf sitt tímafreka
starf um sama efni. Skýrslan var
með innbyggðan
sjálfseyðingarbúnað
og gufaði upp
hjálparlaust og hef-
ur ekki heyrst af
henni síðan.Vil-
hjálmur lýsir aðför-
unum við skýrslu-
gerðina svona:
Fjölmennur hópur mætti áfyrsta kynningarfundinn en
80 einstaklingar störfuðu allan
tímann og skrifuðu sig fyrir verk-
inu. Um 200 manns komu að því,
mismikið, en ætla má að a.m.k. 100
einstaklingar hafi verið þokkalega
virkir í starfinu.
Fjórir vinnuhópar störfuðu semfjölluðu um uppgjör og lær-
dóm, hagvöxt framtíðarinnar, at-
vinnulíf og fjölskyldur og sam-
keppnishæfni.
Innan hvers hóps voru fjölmargirsettir til verka til að gera upp-
köst að ákveðnum hlutum skýrsl-
unnar og á fundum vinnuhópanna
var farið yfir málin. Drög að ein-
stökum hlutum skýrslunnar voru
sett jafnóðum á heimasíðu nefnd-
arinnar þannig að vinnan var gal-
opin og öllum aðgengileg allan
tímann.
Þannig voru sjö uppköst birtfyrir hópinn um uppgjör og
lærdóm, 11 uppköst fyrir hópinn
um hagvöxt framtíðarinnar, 15
uppköst um atvinnulíf og heimili
og 29 uppköst um samkeppn-
ishæfni.“
Er skrítið að flökurleika hafigætt á landsfundi eftir öll
þessi uppköst?
Vilhjálmur
Egilsson
Uppsölumenn að
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.4., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 0 skýjað
Kirkjubæjarkl. 3 léttskýjað
Vestmannaeyjar 3 heiðskírt
Nuuk -6 snjókoma
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 7 alskýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 7 skúrir
Lúxemborg 15 léttskýjað
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 11 skýjað
Glasgow 11 skýjað
London 10 léttskýjað
París 17 heiðskírt
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 16 heiðskírt
Berlín 20 léttskýjað
Vín 24 skýjað
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 heiðskírt
Róm 22 heiðskírt
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -1 heiðskírt
Montreal 7 skúrir
New York 14 alskýjað
Chicago 12 skúrir
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:41 21:14
ÍSAFJÖRÐUR 5:35 21:30
SIGLUFJÖRÐUR 5:18 21:13
DJÚPIVOGUR 5:07 20:46
Lögreglan á Selfossi hefur lokið
rannsókn á láti fanga á Litla-Hrauni
sem lést í klefa sínum 17. maí í fyrra
og hefur ríkissaksóknari nú fengið
málið til meðferðar. Tveir menn, þeir
Annþór Kristján Karlsson og Börk-
ur Birgisson, eru grunaðir um að
hafa veitt manninum áverka sem
leiddu hann til dauða, en upptaka úr
öryggismyndavél fangelsisins sýnir
að mennirnir fóru inn í klefa hins
látna skömmu áður en hann kenndi
sér meins og lést í kjölfarið.
Í tilkynningu frá lögreglunni á
Selfossi kemur fram að rannsóknin
hefur um margt verið flókin og frá
upphafi hefur verið ljóst að ekki yrði
að vænta samvinnu þeirra tveggja
sakborninga sem grunaðir eru um að
hafa valdið áverkum sem leiddu
manninn til dauða.
Báru vitni undir nafnleynd
Í þágu rannsóknarinnar hefur ver-
ið leitað til ýmissa sérfræðinga um
úrlausn tiltekinna atriða. Dóm-
kvaddur var réttarmeinafræðingur
til að fara yfir þau gögn sem urðu til
við krufningu líksins auk annarra
þátta sem varða áverka þá er leiddu
til dauða mannsins. Þá voru tveir
prófessorar í sálfræði dómkvaddir til
að greina atferli fanga á upptökum
úr öryggismyndavélum. Prófessor í
verkfræði var fenginn til að rann-
saka þá krafta sem þarf til að valda
þeim áverkum sem voru á líkinu.
Nákvæm eftirlíking fangaklefans
var byggð í fullri stærð í húsnæði
Lögregluskóla ríkisins þar sem
Tæknideild Lögreglu höfuðborgar-
svæðisins sviðsetti mögulega at-
burðarás auk þess sem grunuðum
var gefinn kostur á að lýsa atvikum í
klefanum þar.
Ótiltekinn fjöldi vitna hefur nú
þegar verið leiddur fyrir dóm og bor-
ið þar vitni undir nafnleynd en vitnin
hafa talið að framburður þeirra um
málavexti gæti sett þau í hættu á að
þeim yrði unnið mein vegna hans,
segir m.a. í frétt lögreglunnar.
Flókinni rannsókn á láti fanga lokið
Ríkissaksóknari með málið til meðferðar Nákvæm eftirlíking af fangaklefa
Vorheftið
komið út
Þjóðmál— tímarit um stjórnmál og
menningu — hefur nú komið út í níu ár
í ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Þjóðmál koma út fjórum sinnum á ári
— vetur, sumar, vor og haust.
Tímaritið fæst í lausasölu í helstu
bókabúðum og nokkrum stórmörkuðum,
en ársáskrift kostar aðeins 5.000 kr.
Áskriftarsími: 698-9140.