Morgunblaðið - 19.04.2013, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2013
Gott úrval af brauðum sem
höndluð eru af alúð af meisturum
okkar, tertur af öllum stærðum
og gerðum, konfekt unnið úr
frábærum hráefnum sem koma
frá öllum heimshornum, kaffi, te,
sultur, ostar, álegg, olíur
og ýmislegt annað skemmtilegt
fyrir alla sælkera.
Handverksbak
arí
fyrir sælkera
Einstök gæði á góðu verði
og vaxtalaus greiðsludreifing í 12 mánuði
Eldhúsinnréttingar
Þín veröld
X
E
IN
N
IX
13
04
00
6
Innréttingar
Skrifstofuhúsgögn
BoConcept
Ung stétt hefur hasl-
að sér völl og er búin að
sanna að hún er komin
til að vera. Félag ís-
lenskra félagsliða er
orðið 10 ára, tíminn er
fljótur að líða og það
virðist skammur tími
síðan fyrstu fé-
lagsliðarnir voru út-
skrifaðir frá Borg-
arholtsskóla, úr námi
sem unnið hafði verið
að eftir danskri fyrirmynd. Ný
starfsstétt var að verða til sem
vissulega var mikil þörf á en það hef-
ur þurft mikinn dugnað og kjark til
að skapa sér svigrúm og verða alvör-
ustarfsstétt. Stofnun félagsins var
stórt skref í þá átt en það var stofn-
að í apríl 2003. Félagsliðar eru stétt,
sem spratt upp af þörf fyrir menntað
fólk í að styrkja og efla einstaklinga
til sjálfshjálpar. Félagsliðar veita
fötluðum, öldruðum og
öðrum sem þurfa þjón-
ustu á heimilum, vinnu-
stöðum, í tómstundum
og í skólum.
Metnaður og fróð-
leiksfýsn hefur ein-
kennt það góða fólk
sem streymt hefur í
nám félagsliða, það
þekki ég best úr mínu
starfi í Borgarholts-
skóla. Þar hafa ungir
og eldri, reyndir og
óreyndir sest á skóla-
bekk lagt sig fram við
að öðlast þekkingu, leikni og hæfni í
að mæta margbreytilegum þörfum
fólks fyrir þjónustu. Til að verða
flinkur fagmaður í að mæta fólki af
virðingu og styrkja það til sjálfs-
hjálpar þarf þekkingu og hæfileika
sem ekki eru öllum gefnir, hæfileika
til að lesa í þarfir annarra, setja sig í
spor þeirra og vinna lausnarmiðað.
Þetta er hin sterka hlið félagsliða og
það er geysilega mikilvægt fyrir
okkar samfélag að þessi stétt stækki
og styrkist. Félagsliðar lögðu fljótt í
það verkefni að stofna félaga, setja
sér siðareglur og annan tilheyrandi
ramma til að stéttin nái að dafna.
Félagsliðar eru áhugasamir um end-
urmenntun ýmiss konar og þar með
talið viðbótarnám félagsliða og slíkt
ætti að styrkja stéttina og víkka
starfssvið hennar enn frekar.
Ég óska félaginu alls hins besta í
framtíðinni og veit að eljusemi og
dugnaður félagsmanna skilar sér í
betra fagfólki og meiri viðurkenn-
ingu stéttarinnar í samfélaginu.
Til hamingju félagsliðar
Eftir Þórkötlu
Þórisdóttur »Félagsliðar er stétt,
sem spratt upp af þörf
fyrir menntað fólk í að
styrkja og efla einstak-
linga til sjálfshjálpar.
Þórkatla Aðalsteins-
dóttir sálfræðingur
Höfundur er kennari
og félagsráðgjafi.
Ristilkrabbamein
er þriðja algengasta
krabbamein á Íslandi
og eitt algengasta
banameinið af þeim.
Með skipulagðri lýð-
grundaðri leit að rist-
ilkrabbameinum og
forstigum þess hjá
einkennalausum ein-
staklingum yfir fimm-
tugu er unnt að koma
í veg fyrir þjáningar
og veikindi og lækka dánartíðni af
völdum sjúkdómsins. Þá liggur
fyrir að vegna mikils kostnaðar við
meðferð sjúklinga er nú hag-
kvæmt fyrir samfélagið að hefja
þessa leit. Hjá embætti landlæknis
liggja fyrir leiðbeiningar um
hvernig hagi megi leitinni, en hún
uppfyllir öll skilyrði til hópleitar
sem venjulega er tekið mið af.
Þakkir þeim, sem þakka ber
Tillaga til þingsályktunar um
velferðarstefnu – heilbrigðisáætlun
til ársins 2020 hefur nú verið í
undirbúningi í velferðarráðuneyt-
inu um nokkurt skeið. Þetta er
metnaðarfull stefna og unnin í
samráði við þá sem gerst þekkja
til málaflokksins. Enda þótt við
hjá Krabbameinsfélaginu hefðum
að sjálfsögðu viljað sjá fleiri og
stærri skref til hagsbóta fyrir
sjúklinga, er þó rétt og sjálfsagt
að meta það sem vel er gert. Í
áætluninni er gert ráð fyrir að
hafinn verði undirbúningur að
hópleit að æxlum í ristli árið 2014.
Þingsályktunartillagan hefur verið
til umræðu á Alþingi. Velferð-
arnefnd þingsins hefur nú lagt
fram breytingartillögu sem felur í
sér að í stað þess að fyrir árslok
2014 eigi að „undirbúa að koma á
skimun fyrir ristilkrabbameini“
standi „undirbúa og koma á skim-
un fyrir ristilkrabbameini“. Við
viljum því þakka það sem þakka
ber og erum fullviss um að þeir
þingmenn, sem nú fá þingsálykt-
unartillöguna til umfjöllunar, muni
tryggja að ekki verði hróflað við
þessu ákvæði um hópleit að rist-
ilkrabbameini. Við fögnum því
einnig að í áætluninni stendur að
Krabbameinsfélag Íslands og sér-
fræðingar eigi að vera samstarfs-
aðilar velferðarráðuneytisins við
þetta verkefni.
Stöndum saman
Krabbameinsfélag Íslands og
aðildarfélög þess, sérstaklega
Ristilfélagið, Stómasamtökin og
Krabbameinsfélag Reykjavíkur,
hafa um árabil beitt sér fyrir því
að hópleit verði hafin að rist-
ilkrabbameini og hafa unnið með
læknum og öðrum að fræðslu um
málefnið. Jafnframt
hafa félögin staðið fyr-
ir margvíslegri
fræðslu og forvörnum
á þessu sviði. Við er-
um að sjálfsögðu
reiðubúin að leggja
þessu máli allt það lið
sem við getum.
Karlmenn fyrstir?
Íslenskum konum
stendur til boða að
koma til leitar að
krabbameini í brjóst-
um og leghálsi og forstigum þess á
vegum Leitarstöðvar Krabba-
meinsfélags Íslands. Því miður er
enn ekki unnt að bjóða skipulagða
lýðgrundaða hópleit að krabba-
meinum sem sérstaklega hrjá
karla. Meðan svo er ekki, má velta
fyrir sér hvort ekki megi hefja
undirbúning hópleitar að krabba-
meini í ristli hér á landi með því að
beina fræðslu og hvatningu fyrst
að körlum. Krabbamein í ristli eru
heldur algengari meðal karla en
kvenna (árlega greinast 74 karlar
og 60 konur) og dánartíðni einnig
heldur hærri (29 karlar og 23 kon-
ur). Danir, sem nú undirbúa hóp-
leit að ristilkrabbameini þar í
landi, hafa ákveðið að fara þessa
leið, þ.e. beina fræðslu fyrst og
fremst að körlum, þar til skipuleg
leit hjá báðum kynjum hefst hjá
þeim í byrjun árs 2014 . Forsvars-
menn danska krabbameinsfélags-
ins telja að þetta sé réttlætismál,
og hafa ekki orðið varir við gagn-
rýni vegna þessara áforma.
Ættum við ekki að gera þetta
líka, hvetja fyrst íslenska karla til
að huga að heilsu sinni og fræða
þá um einkenni krabbameina í
ristli og svo síðar að beina fræðslu
og hvatningu jafnt til kvenna og
karla?
Þingmenn stíga
framfaraskref
Eftir Ragnheiði
Haraldsdóttur
Ragnheiður
Haraldsdóttir
» Þetta er metn-
aðarfull stefna og
unnin í samráði við þá
sem gerst þekkja til
málaflokksins.
Höfundur er forstjóri
Krabbameinsfélags Íslands.
- með morgunkaffinu
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga