Morgunblaðið - 19.04.2013, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 2013
Sjálfstæðisflokk-
urinn leggur fram
áhugaverðar tillögur
um að auðvelda
fyrstu íbúðarkaup
með skattalegum
sparnaði og um
skattalegan afslátt
fyrir þá sem vilja
lækka lán sín með
svokölluðum höf-
uðstólsgreiðslum.
Báðar tillögurnar
marka tímamót. Sú fyrri gæti haft
jákvæð áhrif á eiginfjármyndun
íbúðakaupenda, alveg óháð því
hvernig opinberu íbúðalánakerfi
verður háttað í framtíðinni. Síðari
tillagan er einnig góð því vart er
hægt að hugsa sér einfaldari og
áhrifaríkari aðgerð af hálfu rík-
isins til skuldalækkunar yf-
irskuldsettra heimila en skattfríð-
indi til þeirra sem lækka skuldir
sínar með höfuðstólsgreiðslum.
Hitt er algjör óþarfi og raunar
afar skaðlegt að hengja við þessar
ágætu tillögur hugmynd um að
nota eina frjálsa lífeyrissparn-
aðinn til þess að greiða niður höf-
uðstól lána. Þetta er okkar dýr-
mætasti sparnaður. Honum er
ætlað að tryggja okkur mann-
sæmandi eftirlaun. Og hann er
ekki aðfararhæfur þótt allar aðrar
eignir okkar geti lent undir hamr-
inum. Enginn sparnaður er jafn
vel til þess fallinn að ná tilætl-
uðum árangri og þessi séreign-
arsparnaður.
Verjum frjálsa
lífeyrissparnaðinn!
Verði þeirri leið haldið opinni
að nota þessa séreign í eitthvað
annað en lífeyrissparnað, er verið
að dæma þá sem hana velja, og
eru í flestum tilvikum hinir skuld-
settustu, til fátæktar öll eft-
irlaunaárin. Almannatryggingar
og lífeyrissjóðir munu aðeins sjá
okkur fyrir grunnlífeyri eða að
hámarki um helmingi af fyrri
tekjum í framtíðinni. Frjálsa líf-
eyrissparnaðinum,
séreignarsparn-
aðinum, er ætlað að
brúa bilið þannig að
eftirlaunin verði sem
næst því sem launa-
tekjurnar voru og við
getum haldið lífs-
gæðum og reisn í ell-
inni. Í ljósi þess hve
illa lífeyrissjóðirnir
standa eftir hrunið
verðum við að verja
frjálsa lífeyrissparn-
aðinn með öllum til-
tækum ráðum.
Best að eyða viðhenginu
Viðhengið vanhugsaða við hina
ágætu tillögur Sjálfstæðisflokks-
ins rímar illa við grundvall-
arstefnu flokksins. Lífeyriskerfið
byggist á langtímahugsun og
stöðugleika og á að vera laust við
hringl og pólitíska íhlutun. Þótt
segja mætti að hver og einn ætti
að vera frjáls að því að velja
hvort hann greiðir niður húsnæð-
islán eða leggur fyrir til eft-
irlaunaára, þá er það val ekki
frjálst. Sá sem sagar af greinina
sem hann situr á gerir það ekki af
fúsum og frjálsum vilja heldur
oftast í fljótræði eða í hreinni
neyð.
Áður en lengra er haldið í kosn-
ingabaráttunni ættu frambjóð-
endur á D-listum að eyða við-
henginu og halda sig við
tillögurnar góðu sem miða að því
að auðvelda fyrstu íbúðarkaup og
lækka höfuðstól íbúðalána.
Góðar D-tillögur
en vont viðhengi
Eftir Ingólf H.
Ingólfsson
Ingólfur H.
Ingólfsson
» Alger óþarfi er að
hengja við þessar
ágætu tillögur hug-
mynd um að nota eina
frjálsa lífeyrissparn-
aðinn til þess að greiða
niður höfuðstól lána.
Höfundur er formaður stjórnar
Sparnaðar ehf.
Ljóst var eftir að
forkurinn Páll Gísla-
son, læknir og borg-
arfulltrúi, og duglegir
kollegar hans yfirgáfu
sviðið að aldraðir áttu
fáa pólitíska málsvara
í flokkaflórunni. Nema
að vera skyldi Jó-
hönnu Sigurðardóttur
þegar hún var félags-
málaráðherra en það
eltist af henni.
Ísland er ríkt land af verðmætum
gæðum sem getur veitt okkur allt
sem við þurfum og meira til. Svo
sem að fullnægja dekurmálum sér-
sinna í lista- og menningarmálum
og ýmislegt annað sem landsmenn
hafa gert og haft gaman af, sem
virðist abstrakt fyrir tilveruna. En
líka ýmislegt sem var mjög gaman
að byggja eða reisa, en síður en svo
ánægjulegt að reka, s.s tónlist-
arhöllina Hörpu.
Við hjá Samtökum aldraðra eru
mjög þakklát stjórnmálamönnum
og -konum fyrir alla liðveislu við
verkefni hagsmunasamtaka eldri
borgara. Sem eru nú sem áður
verkefni í varnar- og sóknarbarátta
fyrir hóp, sem er búinn að leggja
sitt af mörkum við að byggja upp
menningar- og menntunarstyrk ís-
lenskrar þjóðar, tæknivæða landið,
frá ströndum til innstu dala og
fjallatinda. Hefur líka tekið þátt í
uppbyggingu heilbrigðiskerfis, al-
mannatrygginga og margskonar
tryggingasjóða sem við aldraðir
eigum skilið að njóta af á ævikvöldi
í stað eignarnáms og margskött-
unar.
Við viljum því þakka formanni
Sjálfstæðisflokksins hans góðu
grein í Morgunblaðinu 9. apríl sl.
Þann veruleika sem nú blasir við
eldri borgurum má skilgreina án
flækju á eftirfarandi hátt:
1. Það er næsta ómögulegt fyrir
alltof marga eldri borgara
að ná framfærslu.
2. Það er næsta ómögulegt fyrir
alltof marga eldri borgara
að eiga fyrir lyfjum.
3. Það er næsta
ómögulegt fyrir eldri
borgara að eiga
sparifé.
4. Það er næsta
ómögulegt að vera
vinnufús eldri borgari.
5. Það er næsta
ómögulegt fyrir eldri
borgara að eiga fyrir
þjónustugjöldum
sveitarfélaganna.
6. Það er næsta
ómögulegt að fá pláss
á dvalar- eða hjúkr-
unarheimili fyrir eldri borgara.
Hinn 1. júlí 2009 gerði félags-
málaráðherra skyndibreytingar á
lögum um almannatryggingar,
þannig að lífeyrissjóðstekjur hefðu
áhrif á útreikning grunnlífeyris og
var frítekjumarkið sett við 214.602
kr. Auðfengnir milljarðar þar í rík-
issjóð, enginn spurður, ekkert sam-
ráð, bara rússnesk tilskipunar-
aðferð valdstjórnar. Slíkir
gerendur ættu að hafa vit á að
skammast sín. Nú er svo komið að
margir aldraðir Jónar og aldraðar
Gunnur hafa 1,50 kr. af hverjum tíu
í tekjur en ríkið hirðir 8,50 kr. Lof-
að var að leiðrétta skerðingar innan
þriggja ára en nú skulu það vera
fimm ár, en löngu búið að leiðrétta
ráðherra og þingmenn afturvirkt.
Virðingarleysi við stöðu eldri borg-
ara er hræðilegt. Mönnum getur
ekki verið sjálfrátt sem þessu
stjórna.
Eiga aldraðir skilið
skerðingar og margsköttun?
Eftir Erling
Garðar Jónasson » Við hjá Samtökum
aldraðra eru mjög
þakklát stjórnmála-
mönnum og -konum
fyrir alla liðveislu við
verkefni hagsmuna-
samtaka eldri borgara.
Erling Garðar
Jónasson
Höfundur er formaður
Samtaka aldraðra.
Málefni tveggja
þjóðfélagshópa hafa
lengi verið mér afar
hugleikin, málefni
aldraðra og öryrkja.
Í allri umræðunni
sem nú fer fram um
skuldamál heim-
ilanna, verðtrygg-
ingu, vexti og allt
sem því fylgir finnst
mér rödd þessara
hópa hafa týnst. Ég
þekki marga eldri borgara og, ef
ég verð heppin, mun ég lifa það
sjálf að komast í þann hóp. Sömu-
leiðis á ég góða vini í hópi öryrkja
og þó að enginn hafi áhuga á að
fylla þann hóp er staðreyndin sú
að það getur komið fyrir okkur öll
að lenda í aðstæðum þar sem við
þurfum að sækja okkur ör-
orkubætur. Það er morgunljóst í
mínum huga að á undanförnum
árum hefur ekki verið hugað nógu
vel að málefnum þessara hópa og
stundum hefur virst sem núver-
andi ríkisstjórn hafi talið eðlilegt
og sjálfsagt að seilast eins djúpt
og þeim þóknaðist í vasa þeirra.
Eitt af mörgu sem mér líkar
þegar litið er til stefnuskrár Sjálf-
stæðisflokksins fyrir komandi
kosningar er hvernig á að taka á
málefnum aldraðra og öryrkja.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur
áherslu á að eldri borgarar haldi
fjárhagslegu sjálfstæði sínu.
Flokkurinn er með á stefnuskrá
sinni að eldri borgarar hafi, eins
og aðrir, rétt á bestu mögulegu
heilbrigðisþjónustu óháð efnahag.
Það er sömuleiðis á stefnuskrá að
endurskoða bætur almannatrygg-
inga þannig að öllum verði tryggð-
ar lágmarkstekjur til lífsvið-
urværis. Sjálfstæðisfólk vill að
eldri borgarar geti aflað sér at-
vinnutekna án þess að lífeyr-
isgreiðslur skerðist. Það er á
stefnuskrá flokksins að þeim sem
eru á örorku verði tryggt mót-
framlag í séreignasparnað, tekju-
tenging öryrkja við maka verði af-
numin og að öryrkjar séu ekki
hnepptir í fátæktargildru sökum
skerðingar á bótum vegna tilfall-
andi tekna. Jafnframt er á stefnu-
skrá flokksins, og skiptir það mjög
miklu máli, að kjaraskerðingin
sem eldri borgarar og öryrkjar
urðu fyrir í júlí 2009
verði afturkölluð án
tafar.
Eldra fólk, sem hef-
ur í gegnum tíðina
unnið heiðarlega vinnu
og lagt sitt til sam-
félagsins, á skilið það
frelsi sem felst í því
að geta eytt efri ár-
unum án stöðugra
peningaáhyggja. Hið
sama gildir um ör-
yrkja, það er sjálf-
sagður réttur þeirra
að geta lifað mannsæmandi lífi á
örorkubótum. Það er enda ekki
ósk neins að lenda í slysi eða
veikjast þannig að starfsorka
skerðist og þess vegna glórulaust
að refsa fólki fyrir slík áföll. Það
dylst engum, allra síst sjálfstæð-
isfólki, að nauðsynlegt er að finna
lausnir á skuldamálum heimilanna.
Það sem þarf hins vegar að gera,
um leið og þau mál eru leyst, er
að sjá til þess að eldri borgarar og
öryrkjar verði ekki látnir borga
fyrir þær leiðréttingar í formi
skerðinga á lífeyri og bótum, þess-
ir hópar mega ekki við frekari
kjaraskerðingum. Við verðum að
fara að átta okkur á því að velflest
náum við sem betur fer efri árum
og velflest eigum við nákomna að
sem fylla þann hóp í dag, ásamt
því að öll getum við lent í áföllum
sem hefta möguleika okkar til
vinnu. Þess vegna er það okkar
allra hagur að búa vel að eldri
borgurum og öryrkjum og ég
treysti Sjálfstæðisflokknum til að
bæta kjör þessara hópa. Það er
nefnilega misskilningur hjá þeim
sem hugnast ekki íhaldið að halda
því fram að flokkurinn sé aðeins
fyrir þá ríku. Sjálfstæðis-
flokkurinn er, hefur alltaf verið og
mun alltaf vera fyrir landsmenn
alla.
Eldri borgarar,
öryrkjar og lífskjör
Eftir Sigríði
Ólafsdóttur
Sigríður
Ólafsdóttir
»… það er okkar allra
hagur að búa vel að
eldri borgurum og ör-
yrkjum og ég treysti
Sjálfstæðisflokknum til
að bæta kjör þessara
hópa.
Höfundur er sauðfjárbóndi.
EINFÖLD ÁKVÖRÐUN
VELDU
ÖRYGGI
FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
Smiðjuvegi 68-70, Kópavogi 544 5000
Hjallahrauni 4, Hfj 565 2121
Rauðhellu 11, Hfj 568 2035
Fitjabraut 12, Njarðvík 421 1399
Eyrarvegi 33, Selfossi 482 2722www.solning.is
Smurþjónusta RafgeymarSmáviðgerðir RúðuvökviRúðuþurrkurHjólastillingarDekkjaverkstæði Bremsuklossar Peruskipti
– UMBOÐSMENN UM LAND ALLT –
Þú paSSaR HaNN
VIÐ PÖSSUM ÞIG