Morgunblaðið - 24.04.2013, Page 3

Morgunblaðið - 24.04.2013, Page 3
Hlutafjárútboð í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) stendur frá kl. 10:00 þann 22. apríl 2013 til kl. 16:00 þann 24. apríl 2013. Í útboðinu hyggjast Stoðir hf. selja 218.550.000 áður útgefna hluti í TM, sem samsvarar 28,7% af útgefnum hlutum í TM. Útboðs- gengi í útboðinu mun liggja á verðbilinu 17,75-20,10 krónur á hvern hlut í TM. Söluandvirði útboðsins getur numið á bilinu 3,9-4,4 milljörðum króna. Gjalddagi áskrifta er 3. maí 2013. NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur samþykkt umsókn stjórnar TM um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðal- markaði Kauphallarinnar. Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir skráningardag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti TM ámarkaði verði 8. maí nk., en Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag meðminnst eins viðskiptadags fyrirvara. TM hefur birt lýsingu, sem dagsett er 11. apríl 2013, í tengslum við hlutafjárútboðið og umsókn um töku allra hlutabréfa í TM til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Lýsinguna má nálgast rafrænt á www.tm.is/fjarfestar og útprentuð eintök má nálgast í höfuðstöðvum TM í Síðumúla 24 í Reykjavík. Áður en fjárfestar taka ákvörðun um fjárfestingu í hlutum í TM eru þeir hvattir til þess að kynna sér allar upplýsingar sem lýsingin hefur að geyma, þ. á m. skilmála útboðsins og umfjöllun um áhættu sem þar kemur fram. Nánari upplýsingar um útboðið er að finna á www.landsbankinn.is og www.islandsbanki.is. Umsjónar- og söluaðilar útboðs og töku hlutabréfanna til viðskipta Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík, sími 410 4000, tmutbod@landsbankinn.is. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík, sími 440 4000. Ráðgjafar Landsbankans veita upplýsingar um áskriftarhluta útboðs- ins í síma 410 4040, tölvupóstur: fjarmalaradgjof@landsbankinn.is, frá kl. 9:00-20:00 þann 22. og 23. apríl og fram til loka útboðsins kl. 16:00 þann 24. apríl 2013. Hlutafjárútboð í TM Lýkur klukkan 16:00 í dag • TM er eitt stærsta tryggingafélag landsins. Félagið byggir á 57 ára farsælli sögu og hefur um 26%markaðs- hlutdeild meðal skaðatryggingafélaga á Íslandi, miðað við iðgjöld árið 2011. • Sterkt vörumerki. TM hefur mælst með ánægðustu við- skiptavini íslenskra tryggingafélaga 12 af undanförnum 14 árum. • Hagnaður fyrir skatta er áætlaður 2,3 ma.kr. í ár sam- kvæmt rekstraráætlun félagsins. Í fyrra nam hagnaður fyrir skatta 3,0 mö.kr. • Góð framlegð af vátryggingastarfsemi. Í fyrra var samsett hlutfall tjóna og rekstrarkostnaðar 88,5%, hið lægsta meðal íslenskra vátryggingafélaga. Jákvæð framlegð hefur verið af vátryggingarekstrinum undan- farin þrjú ár. • Traustur efnahagur. Í lok síðasta árs nam eigið fé TM 10,2 mö.kr. og eiginfjárhlutfallið var 37,3%. • Stefnt er á reglulegar arðgreiðslur. Arðgreiðslur skulu nema a.m.k. 50% af hagnaði eftir skatta, samkvæmt arðgreiðslustefnu félagsins. • Styrkleikamat BBB- hjá Standard & Poor‘s.Matið var hækkað fyrr á þessu ári, með tilvísun í sterkari fjárhag og lengri sögu um jákvæða afkomu af vátrygginga- rekstri félagsins. • Um 2/3 hlutafjár var selt í fyrra, til hóps lífeyrissjóða og annarra innlendra fjárfesta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.