Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Bæjarráð Norðurþings skorar á
mennta- og menningarmálaráðherra,
sem æðsta vald safnamála hér á
landi, að lýsa því yfir að beinagrind
steypireyðar sem rak á land á Skaga
síðsumars 2010 verði sett upp á
Húsavík. Nýlega kom fram í Morg-
unblaðinu að gert sé ráð fyrir því að
beinagrindin verði hluti af nátt-
úruminjasýningu í Perlunni, vilji
hönnuðir fyrirhugaðrar sýningar þar
fá beinagrindina.
Bæjarráð Norðurþings fjallaði um
samstarfssamning Hvalasafnsins ses.
og Garðarshólma ses. þann 18. apríl
sl. Stofnanirnar hafa nýlega undir-
ritað yfirlýsingu um sameiginlega
uppbyggingu safna-, menningar- og
fræðastarfsemi á lóð Hvalasafnsins á
Húsavík. Í fundargerð bæjarráðs
segir m.a. að Norðurþing hafi lengi
horft til þess að koma upp menning-
arsal sem geti hýst hina ýmsu við-
burði. Við uppbyggingu og hönnun á
byggingarreit Hvalasafnsins hafi
komið fram hugmyndir um að sam-
þætta menningarsal þeirri starfsemi
sem fyrirhuguð er á lóðinni.
Hvalasafnið á Húsavík hefur nú á
þriðja ár unnið að því að fá grindina
af steypireyðinni.
„Einsýnt er að slíkur gripur á
heima á Hvalasafninu, eina sérhæfða
hvalasafni landsins. Steypireyðar-
grind myndi auka aðdráttarafl og
ímynd Húsavíkur sem áfangastaðar
til hvalaskoðunar og sýning hennar
innan veggja sameiginlegs húsnæðis
Hvalasafnsins og Garðarshólma
myndi því falla vel að þeirri uppbygg-
ingu sem fyrirtæki, stofnanir og
sveitarfélag hafa unnið að á Húsavík í
tengslum við hvalaskoðun, sýningu,
fræðslu og rannsóknir á hvölum síð-
ustu tvo áratugi,“ segir í fundargerð-
inni. „Því er mikilvægt að stjórnvöld
styðji uppsetningu grindarinnar á
Húsavík til framtíðar með afgerandi
hætti. Fellur það einnig vel að yfir-
lýstu markmiði stjórnvalda um
aukna dreifingu ferðamanna um
landið.“
Beinagrindin er 25 metra löng og
allt að átta metra breið. Til að hægt
verði að ganga í kringum beina-
grindina þarf því um 200 fermetra
gólfpláss.
Morgunblaðið/Ómar
Stórbeinótt Þorvaldur Þ. Björnsson, starfsmaður á Náttúrufræðistofnun, við beinin úr steypireyðinni. Hvalasafnið
á Húsavík vill hýsa beinagrindina. Einnig hefur verið rætt um að hún verði hluti af sýningu Náttúruminjasafns.
Húsvíkingar vilja fá
steypireyðargrindina
Skorað á mennta- og menningarmálaráðherra
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þetta er síðbúinn áhugi hjá ríkis-
stjórninni. Ég er búinn að vera að
biðja um þessar upplýsingar í hátt í
tvö ár og á þeim tíma hefur ríkis-
stjórnin komið sér hjá því að
grennslast fyrir um þetta,“ segir
Guðlaugur Þór Þórðarson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Tilefnið er bréf sem atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytið sendi
fjármálaráðuneytinu 15. apríl sl.
þar sem „óskað er eftir upplýs-
ingum frá stofnuninni um það hvort
laun eða þóknanir slitastjórnar-
manna eða viðskipti þeirra við
tengda aðila séu í samræmi við
reglur um eðlilega og heilbrigða
viðskiptahætti og venjur“.
Óskaði ráðuneytið eftir að svarið
bærist eigi síðar en 24. apríl.
Hafi lengi haft tækifæri
Guðlaugur Þór segir að ríkis-
stjórnin hafi haft tækifæri til þess
að afla sér þessara upplýsinga.
„Steingrímur J. Sigfússon [at-
vinnuvega- og nýsköpunarráð-
herra] útlistaði það ágætlega í febr-
úar 2010 hvernig ríkisstjórnin gæti
aflað þessara upplýsinga. Það er
því ekki sannfærandi, nú þegar rík-
isstjórnin býr sig undir að yfirgefa
stjórnarráðið, að hún sé að fara
fram á þetta.
Ég vek jafnframt athygli á því að
ég er ekki sá eini sem hefur beðið
um þessar upplýsingar. Árni Þór
Sigurðsson lagði fram skýrslu-
beiðni um þetta, en Árni Páll Árna-
son, þáverandi ráðherra viðskipta-
mála, svaraði ekki þeirri beiðni þó
að honum bæri skylda til þess.“
Fram kemur í bréfi ráðuneytisins
að FME skuli hafa eftirlit með
starfsemi slitastjórna og tryggja
þannig að farið sé að reglum.
Ekki náðist í Steingrím vegna
málsins í gærkvöldi.
Segir „síðbúinn
áhuga“ stjórnar
ekki sannfærandi
Atvinnuvegaráðuneytið óskar eftir
gögnum frá FME um kjör slitastjórna
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Beiðni Atvinnuvegaráðuneytið hef-
ur óskað eftir svari frá FME í dag.
Fulltrúar Hvalasafnsins ses. og Garðarshólma ses. á
Húsavík hittu í gær Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og
menningarmálaráðherra, og starfsmenn ráðuneytisins
til að kynna þeim samstarf stofnananna. Einnig var
óskað eftir frekari staðfestingu ráðuneytisins á því að
Hvalasafnið fái grindina af steypireyðinni til sýningar.
„Við höfum unnið að undirbúningi þess að taka á
móti steypireyðinni í á þriðja ár, alveg frá því hana rak á
land,“ sagði Einar Gíslason, framkvæmdastjóri Hvala-
safnsins. Hann sagði beinagrindina vera safngrip og því
á forræði menntamálaráðherra.
Hvalasafnið fékk bréf frá ráðuneytinu 31. ágúst 2012 þar sem fram kom
að ráðuneytið kanni kosti þess að semja við Hvalasafnið um uppsetningu
og varðveislu beinagrindarinnar þar til Náttúruminjasafn Íslands komist í
framtíðarhúsnæði.
Hvalasafnið vill steypireyðina
FULLTRÚAR HVALASAFNSINS OG GARÐARSHÓLMA Á HÚSAVÍK
HITTU MENNTAMÁLARÁÐHERRA VEGNA BEINAGRINDARINNAR
Einar Gíslason
Ármúla 38 | Sími 588 5011 | Opið: virka daga 11-18, laugard. 12-14
Kimmidoll Junior
sumargjafir í úrvali
Töskur
2.900 kr.
Kimmidoll
Verð frá
2.490 kr.
Lögreglan hefur nú um sextíu vænd-
iskaupamál til rannsóknar en frá því
í haust hefur verið unnið að því að
kortleggja brotastarfsemi tengda
vændi og mansali. Þetta var meðal
þess sem kom fram á blaðamanna-
fundi sem lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hélt í gær um aðgerðir gegn
skipulagðri glæpastarfsemi.
Á fundinum var m.a. sagt frá því
að staða vélhjólagengja á borð við
Hells Angels og Outlaws hefði veikst
undanfarin misseri en það bæri m.a.
að þakka starfi stýrihóps ríkislög-
reglustjóra sem skipaður var af inn-
anríkisráðuneytinu árið 2011. Þá
kom fram að Vítisenglar, Hells Ang-
els á Íslandi, hefðu lent í vandræðum
gagnvart móðursamtökunum er-
lendis, m.a. vegna afskipta lögreglu
hér á landi, og að tekist hefði að
koma í veg fyrir fullgildinu mótor-
hjólagengisins Outlaws. Tilkynnt var
í gær að ríkisstjórnin hefði ákveðið
að verja 25 milljónum af ráðstöfun-
arfé sínu til áframhaldandi baráttu
gegn skipulagðri glæpastarfsemi.
Karl Steinar Valsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, sagði frá því á
fundinum að vændiskaupendur væru
á aldrinum 16-70 ára en að konurnar
sem lögregla hefði rætt við vegna
rannsókna á vændi og mansali væru
á aldrinum 32-45 ára. Um væri að
ræða sjö konur og væru tvær þeirra
íslenskar.
Eftirspurnin umtalsverð
Fyrir liggur ítarleg greining á um-
fangi vændis og birtingarmyndum
þess en það er mat rannsóknarteym-
isins að umfang vændis á netinu sé
umtalsvert og eftirspurnin hérlendis
sömuleiðis. Karl Steinar sagði að
skoða þyrfti fleiri birtingarmyndir
vændis og mansals heldur en á net-
inu, sérstaklega í tengslum við
skemmtanaiðnaðinn.
Hann sagði jafnframt að sérstak-
lega væri til skoðunar milliganga um
vændi, sem er ólögleg. Þegar um-
hverfi þeirra vændiskvenna sem
rætt hefði verið við væri skoðað
kæmi í ljós ákveðin samsvörun við
það sem þekktist erlendis.
Konurnar hefðu ferðast um Evr-
ópu með stuttum stoppum og nokkr-
ar þeirra hefðu komið hingað til
lands nokkrum sinnum frá því í sept-
ember þegar skoðun þessara mála
hófst. Ýmislegt benti til þess að kon-
ur sem hefðu stundað vændi hér á
landi tengdust að einhverju leyti
skipulagðri glæpastarfsemi sem
væri að mestu leyti stýrt frá útlönd-
um.
60 vændismál í rannsókn
Vændiskaupendur á aldrinum 16-70 ára Hafa rætt við sjö konur vegna rann-
sókna á vændi og mansali Staða Hells Angels og Outlaws veikst síðustu misseri
Morgunblaðið/Rósa Braga
Rannsóknir Frá blaðamannafundi
lögreglunnar í gær.
Samkvæmt ársskýrslu Stíga-
móta dvöldu 20 konur með 9
börn í Kristínarhúsi í fyrra en
húsið er ætlað konum sem eru á
leið úr vændi og/eða mansali.
Steinunn Gyðu- og Guðjóns-
dóttir, verkefnisstýra Krist-
ínarhúss, segir að að öllu jöfnu
sé dvalið í fjórum herbergjum
hússins af fimm en dvölin sé
mislöng. Sumar kvennanna sem
þangað leita séu ekki tilbúnar að
þiggja hjálp og dvelji stutt. „En
þær sem eru virkilega að vinna í
sínum málum stoppa hjá okkur í
sex eða jafnvel níu mánuði,“ seg-
ir Steinunn. Hún segir erfitt að
segja til um árangurinn af starf-
inu þar sem húsið hafi aðeins
verið opið í eitt og hálft ár. Leiðin
úr mansali taki mun lengri tíma.
Leiðin úr
mansali löng
KRISTÍNARHÚS