Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 43
fyrir dönskukennara á vegum KHÍ 1973-79, var deildarstjóri fræðsludeildar Vinnueftirlits rík- isins 1984-93 og framkvæmda- stjóri Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna 1993- 2001. Hörður sat í Stúdentaráði HÍ 1955-56, var formaður Félags rót- tækra stúdenta 1956-57, sat í stjórn Æskulýðsfylkingarinnar 1958-60 og Félags háskólamennt- aðra kennara 1968-71, var í fræðsluráði Reykjavíkur 1978-82 og fulltrúi Íslands í nefnd sem stjórnaði norrænu grannmálaáætl- uninni 1976-77. Hörður var fyrsti formaður Hagþenkis, félags höfunda fræði- rita og kennslugagna, 1983-89 og sat í stjórn Fjölís, samtaka rétt- hafa, frá 1986-2002. Hörður hefur ritað margt um mennta- og þjóðmál og birt það í blöðum og tímaritum. Þrjár bækur um þróun þjóðfélags og lífshátta liggja eftir hann: Umbúðaþjóð- félagið – uppgjör og afhjúpun, nýr framfaraskilningur, 1989, Þjóðráð – haldbær þróun samfélags og lífs- hátta, 1999 og Að vera eða sýnast – gagnrýnin hugsun á tímum sjónarspilsins, 2007. Hann hefur samið, ýmist einn eða í samstarfi við aðra, fjölda kennslubóka í dönsku og íslensku auk kennslu- leiðbeininga. Þá er hann höfundur bóka og fræðsluefnis um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnu- stað. Hann þýddi ritið Inngangur að félagsfræði eftir Peter Berger, ásamt Lofti Guttormssyni, 1968. Það var lengi vel notað við kennslu í framhaldsskólum. Réttindi og hagsmunir höf- unda fræði- og kennslugagna Er eitthvað Hörður sem þér finnst standa upp úr, öðru fremur, þegar þú lítur um öxl yfir langan og fjölbreyttan starfsferil? „Já, mér þykir afar vænt um að hafa átt þátt í að stofna Hagþenki – félag höfunda fræðirita og kennslugagna og verða fyrsti for- maður þess. Það var bæði lær- dómsríkt og ánægjulegt að takast á við það verkefni að auka rétt og virðingu höfunda sem félagið starfar fyrir. Með stofnun þess og starfi tókst að tryggja þeim við- unandi hlutdeild í greiðslum sem koma til rétthafa fyrir fjölföldun úr útgefnum verkum, móta samn- ingsgrunn fyrir höfunda náms- og fræðirita og efna til uppörvandi styrkveitinga og árlegrar við- urkenningar fyrir vel unnin verk. Svo þykir manni vitaskuld vænt um að rekast á fólk sem vill ræða þjóðmálabækurnar. Umbúðaþjóð- félagið stendur þar upp úr þótt næstum sé liðinn aldarfjórðungur síðan sú bók kom út.“ Fjölskylda Eiginkona Harðar var Dóróthea Sveina Einarsdóttir, f. 21.2. 1932, d. 16.8. 2011, leiðbeinandi. Hún var dóttir Jónasínu Sveinsdóttur, f. 21.2. 1890, d. 13.10. 1967, hús- freyju, og Einars Jörundar Helga- sonar, f. 7.6. 1896, d. 20.2. 1985, bónda. Börn Harðar og Dórótheu eru Halldóra Björk Bergmann, f. 21.3. 1953, sálfræðingur; Atli, 31.12. 1958, sölufulltrúi; Jóhanna, f. 26.6. 1963, sérfræðingur hjá Þjóðmenningarhúsinu og Helga Lilja, f. 7.11. 1967, bókasafns- og upplýsingafræðingur hjá Hafrann- sóknastofnun. Barnabörnin eru níu og þau eiga níu börn. Bræður Harðar: Árni, f. 22.8. 1935, fyrrv. ritstjóri og rithöf- undur; Stefán, f. 2.7. 1942, líffræð- ingur og Jóhann, f. 16.10. 1946, verkfræðingur. Foreldrar: Halldóra Árnadóttir, f. 13.10. 1914 í Keflavík d. 13.3. 2006, húsfreyja og Jóhann Berg- mann, f. í Keflavík 18.11. 1906, d. 4.2. 1996, bifvélavirki. Úr frændgarði Harðar Bergmann Hörður Bergmann Pálína Pálsdóttir húsfr. í Merkisnesi Halldór Sigurðsson smiður í Merkisnesi í Höfnum Bjarnhildur Helga Halldórsdóttir húsfr. í Veghúsum Árni Vigfús Magnússon bátasmiður í Veghúsum í Keflavík Halldóra Árnadóttir húsfr. í Keflavík Þorbjörg Vigfúsdóttir f. húsfr. á Bolafæti Magnús Árnason b. á Bolafæti í Ytri-Njarðvík Bergsteinn Jónsson b. í Þinghóli, systursonur Jóhannesar, afa Gunnars Bergsteinssonar, fyrrv. forstj. Landhelgisgæslunnar, og systursonur Þuríðar, langömmu Ólafs G. Einarssonar, fyrrv. ráðherra og alþingisforseta Guðlaug Bergmann húsfr. í Keflavík Stefán Bergmann ljósmyndari í Keflavík Jóhann Bergmann bifvélavirki í Keflavík Jóhanna Sigurðardóttir húsfr. í Fuglavík Magnús Bergmann hreppstj. í Fuglavík Árni Bergmann rithöfundur og fyrrv. ritstj. Stefán Bergmann líffræðingur Jóhann Bergmann verkfræðingur Guðrún Bergmann húsfr. í Keflavík Rúnar Júlíusson hljómlistarmaður Jónína Bergmann húsfr. í Keflavík Daníel Bergmann bakarameistari í Rvík Guðlaugur Bergmann forstjóri í Karnabæ Guðlaugur Bergmann yogakennari Ólafur Bergmann grafíkmaður ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Jón Ísberg, sýslumaður Hún-vetninga og heiðursborgariBlönduóss, fæddist á Möðru- felli í Eyjafirði 24.4. 1924, sonur Árnínu Hólmfríðar Ísberg húsfreyju og Guðbrands Ísberg sýslumanns. Guðbrandur var sonur Magnúsar, b. í Snóksdal í Miðdölum Kristjáns- sonar, hreppstjóra á Gunn- arsstöðum í Hörðudal Guðbrands- sonar. Móðir Magnúsar var Guðbjörg Hákonardóttir. Móðir Guðbrands var Guðrún Gísladóttir, b. á Ytri-Hrafnabjörgum í Hörðudal Þórðarsonar, og Arndísar Þorsteins- dóttur. Systir Árnínu var Alexína, amma Hjálmars Jónssonar, sókn- arprests í Dómkirkjunni og fyrrv. alþm.. Meðal systkina Jóns var Ævar Hrafn Ísberg skattstjóri. Eftirlifandi eiginkona Jóns er Þórhildur Guðjónsdóttir fyrrv. hér- aðsskjalavörður. Þau eignuðust sex börn: Arngrím dómstjóra, Eggert Þór framkvæmdastjóra, Guðbrand Magnús prentara, Guðjón hagfræð- ing, Jón Ólaf sagnfræðing og Nínu Ósk mannfræðing. Jón lauk stúdentsprófi frá MA 1946 og lögfræðiprófi frá HÍ 1950. Hann varð fulltrúi sýslumanns Húnavatnssýslu á Blönduósi 1951 og var sýslumaður Húnvetninga á ár- unum 1960-94 við góðan orðstír. Jón Ísberg gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Húnvetninga og íbúa Blönduóss. Hann sat í hreppsnefnd Blönduósshrepps í ára- tugi og var oddviti þar í níu ár. Þá sat hann í bygginganefndum vegna heilbrigðisstofnana, félagsheimilis, skóla og bókhlöðu, svo fátt eitt sé nefnt. Á námsárunum sat hann í stjórn Vöku og var formaður Orators og síðar varð hann formaður Sýslumannafélags Íslands. Í heimabyggð sinni var hann m.a. formaður Skógræktarfélags A- Húnvetninga, Lionsklúbbs Blöndu- óss og Veiðifélags Laxár á Ásum og var skátaforingi og safnaðarfulltrúi. Þá sat hann í stjórnum fjölmargra fyrirtækja. Hann var í framboði fyr- ir Sjálfstæðisflokkinn og settist á Alþingi sem varamaður árið 1967. Jón lést 24.6. 2009. Merkir Íslendingar Jón Ísberg 95 ára Málfríður Pálsdóttir 90 ára Lilja Þorgeirsdóttir 85 ára Bergþór Sigurðsson 80 ára Birgir Ólafsson Guðmundur Eggertsson Halldóra Jafetsdóttir Jón Kristinn Gíslason Kristín Jónasdóttir Sveinbjörn Tryggvason Þórunn Böðvarsdóttir 75 ára Dóra Egilson Emil Wilhelmsson Guðríður Karlsdóttir Hanna G. Ingibergsdóttir Ingibjörg Vestergaard Þórhalla Haraldsdóttir 70 ára Christa Hauksson Jacob Jacobsen Lúther Olgeirsson Ólafur Kristinn Sigurðsson Ólöf Kristín Magnúsdóttir Sigríður Ólafsdóttir 60 ára Ásdís Rafnar Ásta Steinunn Thoroddsen Elísabet Þórdís Harðardóttir Erla Þórhildur Sigurðardóttir Eyrún Björg Jónsdóttir Finnur S. Kristinsson Halldóra Þórarinsdóttir Helgi Jónsson Hrafnhildur Árnadóttir Jóhanna Ingimundardóttir Katarzyna Dabkowska Kristbjörg Sigurfinnsdóttir Kristín Björg Hilmarsdóttir Ragnheiður Gunnarsdóttir Rudolf Ágúst Jónsson Sigurjón Símonarson Þorsteinn Einarsson 50 ára Angela Berthold Angelique Butler Anna Guðný Egilsdóttir Bára Héðinsdóttir Edda Antonsdóttir Guðmundur Kristján Sigurðsson Hlynur Magnússon Ingibjörg Elísabet Jónsdóttir Margrét Guðmundsdóttir Margrét Þórðardóttir María Þórðardóttir Markús Ómar Sigurðsson Pétur Fjalar Baldvinsson Ragnar Harðarson Rakel Edda Ólafsdóttir Valþór Brynjarsson 40 ára Ásta Lín Hilmarsdóttir Donald Cameron Corbett Guðjón Óttarsson Hannes Karl Hilmarsson Haraldur Daði Ragnarsson Hrund Harðardóttir Kristinn Þór Ellertsson Lilja Guðlaug Bolladóttir Nína Jacqueline Becker Ólöf Guðmundsdóttir Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir Sigrún Karlsdóttir Þrúður Sigurðardóttir 30 ára Anna Gígja Kristjánsdóttir Guðrún Helga Schopka Jónas Þór Sveinsson Marta Kosewska Marzena Zofia Kuc Ngoc Gia Luu Til hamingju með daginn 30 ára Sigríður ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík, lauk MSc-prófi í iðn- aðarverkfræði frá Uni- versity of Minnesota og starfar hjá Íslandsbanka. Maki: Arnar Gauti Reyn- isson, f. 1981, iðn- aðarverkfræðingur. Dóttir: Edda Björk Gauta- dóttir, f. 2012. Foreldrar: Halldór Jó- hannsson, f. 1948, og Nína Björg Ragnarsdóttir, f. 1949. Sigríður Vala Halldórsdóttir 40 ára Sigursveinn ólst upp á Vopnafirði og er múrarameistari á Húsa- vík. Maki: Elín Pálmadóttir, f. 1978, grunnskólakennari. Börn: Dagur Ingi, f. 1994; Andri Már, f. 2005, og Lena Björk, f. 2009. Foreldrar: Hreinn Ár- mannsson, f. 1939, fyrrv. múrari á Vopnafirði, og Ásta Sigurjónsdóttir, f. 1946, fyrrv. fiskvinnslu- kona og húsfreyja. Sigursveinn Hreinsson 30 ára Rósa fæddist á Akureyri, býr nú í Reykja- vík, lauk stúdentsprófi frá FÁ og síðar yogakenn- araprófi, starfar hjá HPC og rekur eigið sölufyrir- tæki. Sonur: Ívan Þór, f. 2008. Foreldrar: Sigþrúður Árnadóttur, f. 1964, ritari hjá Landsbanka Íslands, og Árni Jón Guðmunds- son, f. 1964, fyrrv. við- gerðarmaður. Þau eru bú- sett í Reykjavík. Rósa Björk Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.