Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar 100%made in Italy www.natuzzi.com Við bjóðum velkomna ítalska hönnun Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel. Stuttar fréttir ... Ónákvæmni gætti í frétt sem birtist á viðskiptasíðu Morgunblaðsins á mánudag um skýrslu Íslandsbanka um sjávarútveg á N-Atlantshafs- svæðinu. Var þar haft eftir Rúnari Jónssyni á þann hátt að skilja mætti að það væri niðurstaða skýrslunnar að lítið svigrúm væri eftir til að auka virði þess afla sem fiskveiðiskip færa í land. Hið rétta er að í skýrslunni kemur fram að mikil tækifæri eru til frekari fullvinnslu í sjávarútvegi. Eru hlutaðeigandi og lesendur beðn- ir velvirðingar á þessum mistökum. Mikil tækifæri til staðar LEIÐRÉTT í 151,1 milljón evra í lok fjórðungsins borið saman við 189,4 milljónir evra í lok fyrsta ársfjórðungs í fyrra. Marel gerir ráð fyrir hóflegum vexti árið 2013 að því gefnu að að- stæður á helstu mörkuðum batni á seinni hluta ársins. Með aukinni sölu á stöðluðum vörum og áherslu á rekstrarhagkvæmni á öllum sviðum væntir Marel þess að ná 10-12% EBIT markmiði sínu. agnes@mbl.is 56% minni hagn- aður hjá Marel  Fyrirtækið gerir ráð fyrir hóflegum vexti á þessu ári Morgunblaðið/RAX Marel Theo Hoen, forstjóri Marel, segir að fyrsti fjórðungur þessa árs hafi verið í samræmi við væntingar. Stefnt sé að 10-12% EBIT. Marel hagnaðist um 5,7 milljónir evra, jafnvirði 868 milljóna íslenskra króna, á fyrsta árfjórðungi. Þetta jafngildir 56% samdrætti á milli ára því á fyrsta fjórðungi í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins rúmlega 131 milljón evra. Fram kemur í uppgjöri Marel sem birt var síðdegis í fyrra- dag að tekjur á fyrsta ársfjórðungi námu 158 milljónum evra, og hafa tekjur þannig dregist saman um 14,8% á milli ára. Hagnaður á hlut nam 0,78 evrusentum samanborið við 1,8 evrur á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Í uppgjöri félagsins á heimasíðu Marel, er m.a. haft eftir Theo Hoen, forstjóra Marel: „Ársfjórðungurinn var í samræmi við væntingar okkar. Tekjur voru í lægri kantinum sem endurspeglar tiltölulega lága stöðu pantanabókarinnar í upphafi árs. Umtalsverð aukning á nýjum pönt- unum og meira líf á mörkuðum okk- ar á tímabilinu gefa þó tilefni til bjartsýni. Enn sem fyrr mun Marel leggja ríka áherslu á hagræðingu og kostn- aðaraðhald en við erum ekki að minnka umsvifin og erum í góðri stöðu til að auka sölu og markaðs- hlutdeild á næstunni. Eins og við til- kynntum í lok síðasta fjórðungs þá væntum við þess að ná 10-12% EBIT markmiði okkar á seinni hluta ársins 2013.“ Fram kemur í uppgjörinu á fjórð- ungnum að rekstrarhagnaður fyrir skatta, afskriftir og gjöld (EBITDA) nam 16,9 milljónum evra, sem er 10,7% af tekjum. Til samanburðar nam hagnaðurinn 27,4 milljónum evra á fyrstu þremur fjórðungum síðasta árs. Þá segir að pantanabók hafi staðið Óleiðréttur launamunur kynjanna á Íslandi reiknaður samkvæmt að- ferðafræði evrópsku hagstofunnar Eurostat var 18,1% árið 2012. Mun- urinn var 18,5% á almennum vinnu- markaði en 16,2% hjá opinberum starfsmönnum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands. Frá árinu 2008 hefur óleiðréttur launamunur farið minnkandi og var lægri árið 2012 en 2008. Á al- mennum vinnumarkaði fór launa- munurinn minnkandi til ársins 2010 en hækkaði aðeins árið 2011. Óleið- réttur launamunur hjá opinberum starfsmönnum minnkaði allt tíma- bilið. Útreikningar á óleiðréttum launamun kynjanna byggjast á að- ferðafræði launarannsóknar evr- ópsku hagstofunnar Eurostat. Sú rannsókn er framkvæmd á fjögurra ára fresti, síðast árið 2010. Í evrópskum samanburði var óleiðréttur launamunur á Íslandi sá níundi mesti árið 2010 í samanburð- arhópum eða tæplega 18%. Það er svipaður launamunur og að með- altali í Evrópusambandinu. Árið 2010 var mestur launamunur í Eist- landi eða rúmlega 27% en minnstur í Króatíu. Nánar á mbl.is Launa- munur 18,1%  Mestur munur milli kynja í Eistlandi ● BankNordik og Eik Banki í Færeyjum heyja nú vaxtastríð sín á milli, en íbúða- lánavextir bankanna hafa lækkað um meira en eitt prósentustig síðan í fyrra- dag. Eik byrjaði með að lækka vexti á íbúðalánum úr 5,25% niður í 4%. Í kjölfarið hefur BankNordik tilkynnt að hann hyggist bjóða lán allt niður í 3,95%. Þetta kemur fram á færeyska fréttavefnum Aktuelt. Færeyskir bankar að lækka íbúðalánavexti Vaxtastríð Janus Petersen, forstjóri BankNordik í Kauphöll Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.