Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.04.2013, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafasýnt afar ríkan vilja til yfirlýs- inga að undanförnu. Svokölluðum viljayfirlýsingum er dælt út úr ráðu- neytum í þeirri von að almenningur hafi gleymt því að fram- undan eru kosningar til Alþingis og í ráð- herrastólunum þing- menn sem hafa yf- irlýstan vilja til að halda því starfi áfram.    Vandi ráð-herranna þegar kemur að þessum viljayfirlýsingum og öðrum ámóta áform- um er þó sá að al- menningur veit vel af því hvað framundan er og að vilja- yfirlýsingar og annar fagurgali skýr- ist alfarið af þeim en ekki af umbóta- vilja.    Kjörtímabilið hófst fyrir fjórumárum og ráðherrarnir hafa haft allan þann tíma til að sinna þeim verkum sem þeir segjast nú hafa fengið sérstakan áhuga á.    Hefðu ráðherrarnir haft raun-verulegan vilja til að fram- kvæma það sem í viljayfirlýsingunum segir hefðu þeir vitaskuld gert það þegar þeir höfðu tök á í stað þess að tala um það skömmu fyrir kosningar.    Viljayfirlýsingarnar eru þessvegna í raun aðeins áminning um það sem stjórnarflokkarnir áork- uðu ekki á kjörtímabilinu vegna þess að þeir voru of uppteknir af ýmiskon- ar sérviskumálum, óþarfa og óþurft- arverkefnum.    Sú áminning er í sjálfu sér þakk-arverð því að full ástæða er til að minna á verk núverandi rík- isstjórnar. Katrín Júlíusdóttir Vilji til marklausra yfirlýsinga STAKSTEINAR Steingrímur J. Sigfússon Veður víða um heim 23.4., kl. 18.00 Reykjavík 3 rigning Bolungarvík 1 alskýjað Akureyri 2 rigning Kirkjubæjarkl. 4 rigning Vestmannaeyjar 5 skýjað Nuuk -7 skýjað Þórshöfn 6 skúrir Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Stokkhólmur 12 heiðskírt Helsinki 5 skúrir Lúxemborg 13 skýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 16 léttskýjað Glasgow 12 skýjað London 18 heiðskírt París 17 léttskýjað Amsterdam 13 léttskýjað Hamborg 13 léttskýjað Berlín 16 skýjað Vín 21 skýjað Moskva 11 heiðskírt Algarve 21 heiðskírt Madríd 22 léttskýjað Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 20 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 17 skýjað Winnipeg -1 heiðskírt Montreal 8 heiðskírt New York 6 alskýjað Chicago 14 alskýjað Orlando 24 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 24. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:23 21:30 ÍSAFJÖRÐUR 5:15 21:47 SIGLUFJÖRÐUR 4:58 21:31 DJÚPIVOGUR 4:49 21:02 Ingólfur Júlíusson, ljósmyndari og margmiðlunarhönnuður, er látinn 42 ára að aldri. Hann greindist með bráðahvítblæði í byrjun október á síðasta ári. Ingólfur Júlíusson fæddist 4. maí 1970 og ólst upp fyrstu árin í Syðra-Garðshorni í Svarfaðardal en síðan frá 5 ára aldri í Breiðholti í Reykjavík. Hann starfaði við flesta fjölmiðla á Íslandi frá árinu 1996, fyrst sem umbrotsmaður á blöðum og tímarit- um, bæði fastráðinn og sem verk- taki, og síðan sem tökumaður fréttamynda í sjónvarpi. Ingólfur fór snemma að taka myndir fyrir blöð. Í nokkur ár starfaði hann sem ljósmyndari Reuters-fréttastof- unnar á Íslandi og sjálfstætt frá árinu 2008. Ingólfur hlaut margvíslegar við- urkenningar, til dæmis var ein mynda hans meðal fréttamynda ársins hjá Reuters árið 2010 og árið 2011 var ein mynd hans valin ein af óvæntustu myndum ársins hjá Time Magazine. Hann hélt nokkrar ljósmynda- sýningar og tók þátt í samsýn- ingum. Ingólfur fékkst við margt annað, svo sem myndbandagerð, tónlist, útskurð og fjallamennsku. Árið 2011 tók hann myndir í bókina Ekki lita útfyrir, þar sem Eva norn skrifaði textann. Ingólfur var kvæntur Monicu Haug og eignuðust þau tvær dætur, Hrafnhildi 11 ára og Söru 9 ára. Andlát Ingólfur Júlíusson Reykjavík • Skútuvogi 1 • Sími: 562 4011 Akureyri • Draupnisgata 2 • Sími: 4600 800 Reyðarfjörður • Nesbraut 9 • Sími: 470 2020 KÆLI/FRYSTISKÁPUR VIKUTILBOÐ KR: 97.900.- TILBOÐ ÁÐUR KR: 139.900.- 30% AFSLÁTTUR Litur: Hvítur Hæð: 180 cm. Stærð kælis: 230 lítrar Stærð frystis: 92 lítrar. Hljóðstig: 40 dB(A) Orkunýtni: A+ RK61810W

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.