Morgunblaðið - 24.04.2013, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013
Baldur Sigurðsson, knattspyrnumaður í KR, er 28 ára í dag. Aðsögn hans mun hann ekki halda upp á afmælið þar sem dag-urinn markast af próftöku og fótboltaæfingu. Hann mun
hins vegar gera sér glaðan dag um kvöldið og fara í bíó. „Maður
vaknar snemma og fer á lappir með nýfæddum syni, en svo fer mað-
ur í próf,“ segir Baldur Sigurðsson sem er í meistaranámi í bygging-
arverkfræði við Háskóla Íslands. Eftir æfingu ætlar Baldur að
borða mat með fjölskyldunni en fer svo í bíó með „nördaklúbbnum“ í
KR. ,,Við ætlum að sjá Iron Man 3. Við í nördaklúbbnum stílum inn á
þessar Nexussýningar,“ segir Baldur. Hann er sonur Mývetningsins
Sigurðar Baldurssonar og Húnvetningsins Sigríðar Soffíu Gunn-
arsdóttur. Kærasta Baldurs heitir Pála Marie Einarsdóttir og sonur
þeirra Baldurs heitir Baldur Ari Baldursson sem fæddist 16. janúar.
,,Ég er mikið afmælisbarn en 24. apríl er eiginlega hörmung-
arafmælisdagur þar sem ég hef alla tíð verið í fótbolta og í skóla.
Fótboltatímabilið hefst eftir tvær vikur og svo eru alltaf próf á þess-
um tíma. Ég mun halda upp á svakalegt fertugsafmæli, það er ljóst,“
segir Baldur en þá gerir hann ráð fyrir því að vera búinn að leggja
skóna á hilluna. Baldur hlakkar mikið til sumarsins eins og aðrir
knattspyrnumenn. „Afmælið hefur alltaf verið vorboði og til marks
um að stutt sé í tímabilið,“ segir Baldur.
Baldur Sigurðsson er 28 ára í dag
„Nördaklúbbur-
inn“ ætlar í bíó
Morgunblaðið/Ómar
Afmælisbarn Baldur Sigurðsson er að eigin sögn mikið afmælisbarn.
Hann ætlar meðal annars að taka próf og fara í bíó í tilefni dagsins.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Garðabær Margrét Sif fæddist 30. júlí
kl. 0.17. Hún vó 3.270 g og var 51 cm
löng. Foreldrar hennar eru Anna S.
Gunnarsdóttir og Jóhann K Guð-
mundsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Sigurður Bill fæddist 13.
júlí kl. 1.11. Hann vó 3.315 g og var 50
cm langur. Foreldrar hans eru Anna
Lilja Sigurðardóttir og Arnar Bill
Gunnarsson.
H
örður fæddist í
Keflavík 24.4. 1933
og ólst þar upp.
Hann lauk stúdents-
prófi frá ML 1954,
BA-prófi í dönsku, sögu og upp-
eldisfræði frá HÍ 1956, stundaði
nám í kennslufræði, uppeldissál-
arfræði og dönsku við Kennarahá-
skólann í Kaupmannahöfn 1971-72
og sótti auk þess ýmis námskeið í
dönsku, málakennslu og kennslu-
og uppeldisfræðum hér á landi, í
Danmörku, Svíþjóð og Englandi.
Hörður var kennari við Gagn-
fræðaskólann við Hringbraut
1956-58 og við Hagaskóla 1958-74,
var námstjóri í dönsku við skóla-
rannsóknadeild menntamálaráðu-
neytis 1972-82 og endurskoðandi
námskrár fyrir grunnskóla við
sama ráðuneyti 1982-84 og ann-
aðist endurmenntunarnámskeið
Hörður Bergmann, kennari og rithöfundur - 80 ára
Hvíldarstund í sveitinni Hörður og Einar njóta blíðunnar og taka sér hvíld frá störfunum við sumarbústaðinn.
Vann að höfundarétti
og öryggi á vinnustað
Stórfjölskyldan Hörður og Dóróthea Sveina ásamt börnum, tengdbörnum
og barnabörnum, árið 2001.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
STURTU- OG BAÐHURÐIR
með hertu öryggisgleri
ALMAR STURTUHAUSAR FJÖLBREYTT ÚRVAL
STAR STURTUHORN ÁN BOTNS OASIS STURTUHURÐ ÁN BOTNS
SKINNY handsturtuhaus
SPRING sturtuhaus
EMOTION sturtuhaus