Morgunblaðið - 24.04.2013, Page 44

Morgunblaðið - 24.04.2013, Page 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur meira sjálfstraust en áður. Gefðu sjálfum þér gaum. Þú hefur næga orku til þess að nenna að eyða orðum í fólk sem hefur arfavitlausar skoðanir. 20. apríl - 20. maí  Naut Óvæntur gestur veitir þér nýja sýn á mál sem þú hefur lengi verið að glíma við. Haltu áfram að gefa af þér og vertu tillits- samur við fólkið í kringum þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú verður að standast allar freist- ingar um að segja frá leyndarmáli, jafnvel þótt það kynni að ýta undir stöðu þína. Leggðu til atlögu og framtíðin er þín. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér er óhætt að tjá þig ef þú heldur þig innan ákveðinna marka. Láttu ekki á neinu bera þótt ýmislegt komi þér á óvart, allt fer á besta veg í lokin. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert eitthvað viðkvæmur og þarft um- fram allt að halda sjálfsstjórn innan um aðra. Upp koma tilfinningamál sem þú verður að leysa. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þig langar mikið til þess að eyða pen- ingum í dag, kaupa eitthvað fallegt handa þér eða ástvinum. Taktu samt vel á móti ráðum ættingja þíns því þau munu reynast þér gott veganesti. 23. sept. - 22. okt.  Vog Sá sem þú síst áttir von á skýtur nú upp kollinum og réttir fram sáttarhendi. Þú ættir að kynna þér eitthvað nýtt og framandi í dag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt þér finnist heimurinn vera að hrynja, er það ekki svo. Allt sem er skrýtið, og forvitnilegt togar í þig. Hertu upp hugann; hún/hann er kannski ekki svo slæm/ur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér liggur sitthvað á hjarta sem þú skalt láta það flakka. Staðfastir ein- staklingar hafa breytt gömlum og úreltum hefðum með því að neita að fara eftir þeim. 22. des. - 19. janúar Steingeit Í stað þess að einblína á trén sérðu loks skóginn. Farðu beint til þeirra,sem róginum dreifa og komdu þínum málum á hreint gagnvart þeim. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það gefur lífinu lit að upplifa eitt- hvað nýtt og spennandi. Hafðu það í huga þegar þú veltir því fyrir þér hvað skal gera um helgina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt hart sé gengið eftir svari frá þér, skaltu taka því rólega og velta hlutunum fyrir sér. Vertu vandlátur á val samstarfsmanna. Stundir í einrúmi færa þér frið og ró. Enn líður að kosningum. Eins oggeta má nærri eru margir hag- yrðingar með hugann við það. Einar Baldvin Pálsson kastar fram óborg- anlegri slitru: Flokks- er -forma- Sturla -ður frekar svekk- hann Jónsson -tur -dæmi rangt fór karl í kjör- klaufi alg- er þessi -jör. Og hann orti fyrir fáeinum vikum: Heldur mun Hekla víst gjósa en Helvíti þar undir frjósa. En fréttnæmast væri ef þjóðin nú færi Framsóknarflokkinn að kjósa. Jón Karl Einarsson orti á afmæl- isdegi séra Hjálmars Jónssonar í lið- inni viku: Ekkert tálmar andans dug, oft hann sálma kveður. Einn kann Hjálmar orðsins flug, aðrir mjálma tómum hug. Séra Hjálmar svaraði með hring- hendu og bætti við innan sviga að orðið varla væri rímsins vegna og þýddi „alls ekki“. Gamall karl að gæðum bý, glaður harla matast. Og Jóni Karli jafnvel í éljum varla fatast. Kristján Runólfsson lagði orð í belg: Elska flestir ljóðalestur, ljóst það sést ef að er gáð. Hér er bestur Hjálmar prestur, hann er mestur Guðs af náð. Séra Hjálmar svaraði að bragði: Ekki hnígur andlegt fjör né eykur ríg um trúna. Kristján flýgur eins og ör, ögn þó lýgur núna. Hjálmar orti í vetur að gefnu til- efni: Hnyttinn breskur húmor deyr, horfið bros af flestum. Nú í vetur neyta þeir nautakjöts af hestum. Sigurgeir Jónsson sendi Vísna- horninu hugleiðingu: „Á dögunum tjáði íslenskufræðingur nokkur skoðun sína á því að taka ætti upp sögnina „að læka“. Eiður Svanberg Guðnason fann því allt til foráttu í Molum sínum og einhverjir fleiri líka og færðu m.a. þau rök fyrir því að ekki væri rímorð að finna í ís- lensku móti sögninni að læka. Þá varð þetta til. Það var talað við alla tiltæka sem til stóð að gera brottræka þegar eilítil hæka ákvað að stræka á öndvegissögnina að læka.“ Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af slitru, afmæli og rímorðinu „læka“ Í klípu „GÓÐ TILLAGA. VIÐ HÖFUM SAMBAND VIÐ ÞIG. VIÐ EIGUM BARA EFTIR AÐ HEYRA TILLÖGU KATTARINS.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „REYNDAR LAGÐI ÉG ALLT ÞETTA Á MIG TIL ÞESS EINS AÐ GETA SAGT „NEI“ Í DAG.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að færa stærstu fórnina. ÖRYGGI VARÐ- HUNDUR KOSTNAÐUR FRÚ, ÉG ER ÖGMUNDUR LÖGMAÐUR ... ... OG ÉG ER FULLTRÚI MANNSINS ÞÍNS Í MÁLAREKSTRINUM SEM VARÐAR ÓÚTSKÝRÐA ÞRIGGJA TÍMA SEINKUN Á KVÖLDMATNUM. ÉG GET EKKI ÁKVEÐIÐ MIG. ÆTTI ÉG AÐ GERA EITTHVAÐ? EÐA BYRJA Á EIN- HVERJU OG HÆTTA ÞVÍ SVO? Víkverji átti sér á árum áðurdraum um að verða geimfari. Þegar fyrstu mennirnir stigu fæti á tunglið hélt hann innblásinn af ódauðlegum bókmenntum á borð við bækurnar um unga uppfinninga- manninn Tom Swift að það væri upphafið á óstöðvandi landnámi mannsins í geimnum. Fyrst yrðu reistar borgir á tunglinu, síðan Mars og Venus og síðan koll af kolli vítt um alheiminn. Hann grunaði ekki að tunglferðirnar yrðu aðeins nokkrar og eftir þær myndi mað- urinn að mestu halda sig við jörðina og gufuhvolfið ef frá er skilin rúss- neska geimstöðin Mír og nokkrir skottúrar í geimskutlum. x x x En nú er kominn fram nýr ofur-hugi, sem ætlar að nema land á Mars. Hann er hollenskur verk- fræðingur og ber nafnið Bas Lans- dorp. Lansdorf er byrjaður að leita að sjálfboðaliðum til fararinnar. „Það verður ekki auðvelt, en það mun ganga,“ segir hann. Fyrir Lansdorp vakir að stofna nýlendu á Mars. Í fyrsta umgangi ætlar hann að senda fjóra menn til rauðu plán- etunnar. Þeir eiga að leggja í hann 2022 og vera sjö mánuði á leiðinni. Sá böggull fylgir skammrifi að að- eins er boðið upp á ferð aðra leið. Marsfararnir munu ekki fá far til baka. Fyrst eiga þeir að búa í þröngri geimstöð, síðan að smíða „varanlega byggð“ og að lokum að stofna nýja siðmenningu. Verður þá loks með réttu hægt að tala um Marsbúa. x x x Lansdorp hefur reyndar enga pen-inga til að fjármagna fyrirtækið, en hann hefur ekki áhyggjur af því. Hann ætlar að leyfa jarðarbúum að fylgjast með ævintýrinu í raunveru- leikasjónvarpi. Munu áhorfendur velja þá sem fara. Lansdorp heldur að fyrirtækið muni kosta sex millj- arða dollara (rúmlega 700 milljarða króna), en aðrir telja líklegra að hann muni fara yfir 1.000 milljarða (117.000 milljarða króna). Hann tel- ur að raunveruleikaþátturinn muni fjármagna ferðina til Mars: „Bók- staflega allir jarðarbúar munu vilja fylgjast með.“ víkverji@mbl.is Víkverji Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Því óttumst vér eigi þótt jörðin haggist og fjöllin steypist í djúp hafsins. (Sálmarnir 46:2-3)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.